Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Page 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Page 29
U ppáhaldsstaðurinn er líklega við borðstofu- borðið því mér finnst ofsalega gaman að borða góðan mat og svo nýtist borðið einn- ig ósjaldan sem sníðaborð og allskyns hönnunarborð. Þar vinn ég prótótýpur, prófa mig áfram, fæ nýjar hugmyndir og hendi þeim slæmu út af borðinu,“ segir Elín Hrund Þorgeirsdóttir. Elínu finnst gaman að endurnýta og leggur mikið upp úr endur- vinnslu og umhverfisvernd í hönnun sinni fyrir Dýrindi þar sem hún hannar púða og töskur sem hún selur meðal annars í Kraum og Kistunni í Hofi. „Stíllinn minn er frekar strákalegur og afslappaður held ég. Ég hef aldrei verið mikil blúnda í mér,“ segir Elín og telur mikilvægt við innréttingu heimilisins að það endurspegli hana og sé notalegt og bjart. „Heimilið þarf að vera staður þar sem gott er að hvílast en líka þar sem hægt er að hugsa og fá stór- kostlegar og skemmtilegar hugmyndir.“ Spurð hvað vanti inn á heimilið segir Elín sófaborð efst á óskalistanum. „Það má ekki kosta of mikið en þarf samt að vera fagurt og nýtast sem skyldi. Þetta fer því miður ekki alltaf saman. Svo vantar mig líka matardiska og svona ryksugu sem ryksugar sjálf!“ Eldhúsið á Brávallagötunni er bæði bjart og notalegt. Persónulegar myndir ramma inn hurðina á skemmtilegan hátt. Elín Hrund Þorgeirsdóttir hönnuður. „Uppáhaldsstaðurinn er líklega við borðstofuborðið því mér finnst ofsalega gaman að borða góðan mat og svo nýtist borðið einnig ósjaldan sem sníðaborð og allskyns hönnunarborð.“ Strákalegur og af- slappaður heimilisstíll ELÍN HRUND ÞORGEIRSDÓTTIR BÝR ÁSAMT DÓTTUR SINNI Í FALLEGRI ÍBÚÐ Í VESTURBÆNUM. ELÍN HEFUR MIKINN ÁHUGA Á HÖNNUN OG HEFUR STARFAÐ SEM MARKAÐSSTJÓRI, BLAÐAMAÐUR OG SÝNINGARSTJÓRI ÁSAMT ÞVÍ SEM HÚN HANNAR FALLEGAR VÖRUR UNDIR NAFNINU DÝRINDI. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is ÞYKIR GAMAN AÐ ENDURNÝTA * Stíllinnminn erfrekar stráka- legur og af- slappaður held ég. Ég hef aldr- ei verið mikil blúnda í mér.“ 11.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Faxafeni 5, Reykjavik, S: 588 8477 | Skeiði 1, Ísafirði, S: 456 4566 Dalsbraut 1, Akureyri • S: 558 1100 • www.betrabak.is TILVALIN BRÚÐARGJÖF NÝ SENDING – MIKIÐ ÚRVAL SÆNGURFATA DAGAR 50% AFSLÁTTUR AF ELDRI SÆNGURFATA-LÍNUM ALLT AÐ 20% AFSLÁTTUR AF NÝJUM SÆNGURFATA-LÍNUM

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.