Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Qupperneq 41
11.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
M
agabolir voru nú ald-
eilis til umræðu í lið-
inni viku eftir að of-
urfyrirsætan Cara
Delevingne og söngvarinn Rih-
anna mættu báðar í slíkum bolum
á Met Gala sem fram fór í New
York. Delevingne klæddist hvít-
um buxum við svartan topp sem
hannað var af Bítladótturinni,
Stellu McCartney. Rihanna
klæddist hvítum topp með ermum
og var í síðu pilsi við sem náði vel
upp í mittið. Hennar kjóll var
einnig frá McCartney.
Ég er ekki veruleikafirrt og
geri mér alveg grein fyrir að þess-
ar Hollywood-píur sem eru allar í
stærð 0 púlla þetta náttúrlega. Og
þetta verði dálítið flóknara fyrir
okkur venjulegu Guggurnar sem
fara helst ekki út úr húsi nema í
aðhaldssokkabuxum eða þeim
mun meiri búnaði. Megum við
venjulegu Guggurnar lifa? Og
næsta spurning: Megum við taka
á móti sumrinu í magabol?
Frjálslyndið í mér segir að við
eigum að finna okkur leið til að
púlla þennan tískustraum en samt
verð ég aðeins að fara yfir eitt eða
tvennt fyrst.
Það sem kom mér stórlega á
óvart þegar ég sá þessar myndir
er að þær kveiktu í mér og ég
hugsaði með mér að þetta væri
kannski ekki svo afleit hugmynd
eftir allt saman. Eftir öll árin sem
hlegið hefur verið að fólki í maga-
bolum þarf ég að éta ýmislegt of-
an í mig. Innst inni finnst mér
eitthvað varið í þetta.
Þess vegna hringdi ég í tengsla-
netið mitt og spurði mínar konur
út í magaboli og voru svörin ákaf-
lega einsleit. Konunum í kringum
mig finnst töff að vera í magabol
en þær myndu bara aldrei þora að
klæðast slíkum bolum sjálfar.
„Ferlega smart á öðrum,“ var
svarað alveg í kór.
Eftir að hafa farið nánar í gegn-
um þetta er alveg ljóst að maga-
bolirnir sem þykja móðins núna
sýna yfirleitt bara efri magann –
ekki þann neðri sem gerir það að
verkum að þetta verður í flestum
tilfellum mun klæðilegra.
Efri maginn er sjaldnast að
trufla okkur heldur neðri maginn
og honum viljum við helst pakka
inn og fela vel og vandlega. Eftir
áratuga reynslu erum við flestar
komnar með allskonar ráð til að
láta þennan líkamspart virka sem
rýrastan. Stundum tekst það –
stundum ekki …
Vondu fréttirnar eru þær að
það þýðir víst ekkert að fjárfesta
bara í bumbubana, hanga í honum
öll kvöld fyrir framan sjónvarpið,
og treysta á að þetta reddist bara
allt saman á núll einni (og vömbin
hverfi). Auðvitað skaðar það eng-
an að fara út að hlaupa, lyfta lóð-
um eða skottast í einn og einn
jógatíma en sannleikurinn er því
miður sá að þetta gerist víst allt í
eldhúsinu.
Þið vitað bara hvernig þetta er.
Þegar maður er svoleiðis búinn að
dæla í sig kökum, lakkrísrúllum
og hrískúlum, hakka í sig pítsu
með pepperoni, borða yfir sig af
pasta með rjómasósu og taka
þristinn … Þá líður okkur eins og
við séum að fara í 12 vikna són-
arinn og erum klárlega ekki að
fara í magabolnum í næsta partí
en …
Ef við sleppum sjoppuferð-
unum og lifum svolítið í ljósinu
gæti magabolur verið hin besta
hugmynd. Það þarf bara að passa
að vera í nógu háum buxum við
eða pilsi sem nær alveg upp í
mittið eins og Rihanna og þær
gerðu. Og passa að bilið á milli
flíka verði ekki of mikið. Það hef-
ur nú ekki drepið neinn hingað til
að sýna fimm sentimetra af holdi
eða svo. martamaria@mbl.is
Cara Delevingne í Stellu McCartney.
Mega konur í
magabol lifa?
Rihanna, einnig í Stellu McCartney.
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi - www.spennandi.com
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
Mikið úrval af fatnaði og gjafavöru
fyrir brúðkaupin í sumar
SPORTÍS
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS
NÝ SENDING
SUMAR 2014