Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Síða 44
Morgunblaðið/Golli
*Samkvæmt mælingum Hagstofunnar voru regluleg mán-aðarlaun fullvinnandi launamanna hér á landi um 436.000 kr.árið 2013 og heildarlaun að meðaltali 526.000 kr. Um 75%launamanna eru með regluleg laun undir500.000 kr og 17% með regluleglaun á bilinu 250-300.000 kr. Aðmeðaltali voru regluleg laun karla
475.000 kr og regluleg laun kvenna
393.000 kr.
Fjármál
heimilanna
Þessi dægrin er Valgeir Skagfjörð m.a. að skrifa leikrit um Hallgrím Pét-
ursson ætlað unglingum í 8.-10. bekk grunnaskóla og á verkið að fara á
fjalirnar í haust. Hann vinnur líka hörðum höndum við að aðstoða fólk
sem langar að hætta að reykja og bók hans um þau mál var endur-
útgefin um áramótin.
Hvað eruð þið mörg í heimili?
Við erum mismörg í heimili þessa daga. Dætur mínar ganga hér inn og
út með kærastana sína og hund og kærastan mín, Ingibjörg Kaldalóns,
er hér mörgum stundum.
Hvað má alltaf finna í ísskápnum?
Ég á alltaf til egg í ísskápnum. Ef það eru til egg, þá er alltaf eitthvað að
borða. Fullt hús matar.
Hvað fer fjölskyldan með í mat
og hreinlætisvörur á viku?
Ég hugsa svona í kringum tuttuguþúsundkall á viku, plús, mínus.
Hvar kaupirðu helst inn?
Ég kaupi inn í Bónus eða Krónunni. Melabúðin freistar stundum. Þar er
margt gott og gómsætt á boðstólum sem ekki fæst annars staðar.
Hvað freistar mest í matvörubúðinni?
Ég er mjög veikur fyrir alls konar heilsuvörum og góðu tei en löstur
minn er að vera veiklundaður gagnvart ýmsum framandi sósum og
kryddum.
Hvernig sparar þú í heimilishaldinu?
Ég spara með því t.d. að reykja ekki, kaupa ekki áfengi, nota ekki mjólk-
urvörur aðrar en smjör og ost, og kaupi ekki gosdrykki, drekk mest
vatn og te. Ég veit að það hljómar eins og ég eigi ekkert líf en heilsan er
mér mjög mikilvæg svo ég reyni að temja mér hófsaman, einfaldan lífs-
stíl. Í krafti þess leyfi ég mér eitt og annað á hátíðis- og tyllidögum.
Hvað vantar helst á heimilið?
Það vantar ekkert á heimilið. Dætur mínar væru mér ósammála. En ef
eitthvað, þá mundi ég vilja eiga nýjasta iMacinn með 27" skjá.
Skothelt sparnaðarráð?
Hætta að reykja, ef maður reykir. Og/eða panta pítsu miklu sjaldnar.
Það er hellings peningur sem sparast með því t.d. að búa til pítsu
heima, eða grilla sína eigin borgara í stað þess að fara á Búlluna eða
Stælinn. En það má alveg stundum leyfa sér eitthvað smá. Annars verð-
ur lífið leiðinlegt.
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Þarf að leyfa sér smá
Valgeir segir hægt að spara hellings pening með
því að gera pítsurnar heima.
Það er synd að henda mat en
stundum gerist það að í innkaupa-
körfuna rata vörur sem enginn hef-
ur lyst á.
Aurapúkinn hefur stundum lent í
þessu þegar hann prufar nýjar kex-
eða sælgætistegundir og þykir hon-
um fjarska leitt að sjá opinn og hálf-
kláraðan pakkann sitja inni í skáp
eða ofan í skúffu svo vikum og
mánuðum skiptir.
Til að leysa þennan vanda hefur
púkinn brugðið á ráð að baka smá-
kökur og mylja eða brytja þessi
óvinsælu sætindi niður og blanda út
í deigið.
Merkilegt hvað allt verður betra
þegar það er komið í smáköku-
form, rjúkandi heitt, beint úr ofn-
inum.
Svona má t.d. gera við gamlar
karamellur, óvinsælustu Quality
Street-konfektmolana, ævafornt og
þurrt kex eða hnetur, og þurrkaða
ávexti sem enginn vill.
púkinn
Aura-
Má bjarga
vondu
nammi?H
verjum myndi ekki þykja
ánægjulegt að sjá uppá-
halds handsápuna sína
til sölu með helmings af-
slætti? Eða ávaxtasafann sem börn-
in svolgra í sig alla daga boðinn á
20% lægra verði? Hvað ef mjólkin
sem fer út í kaffið eða út á morg-
unkornið væri 10% ódýrari?
Það merkilega er að þessi tilboðs-
verð standa okkur öllum til boða, ef
við bara þorum að bæta smá vatni
út í og þynna þessar vörur og
margar aðrar nauðsynjavörur heim-
ilisins.
Handsápan helminguð
Auðveldast af öllu er að þynna út
fljótandi sápur og á það við bæði
um handsápu, hársápu og jafnvel
hárnæringu. Mest liggur á að
þynna handsápuna því pumpan sem
skammtar úr flöskunni sprautar
alltaf sama rúmmáli af vökva, á
meðan það má skammta af meiri
nákvæmni úr sjampó-flöskunni.
Fréttavefur Yahoo bendir á að yf-
irleitt skammtar pumpan miklu
meiri sápu en þarf til að þvo hend-
urnar vel og alla jafna óhætt að
þynna sápuna til helminga með
vatni.
Þegar reyna á að spara með því
að þynna út vörurnar í baðherberg-
inu er gott að byrja hægt. Athug-
aðu hvort það breytir einhverju að
bæta vatni ofan í þegar búið er að
nota einn tíunda af sjampóflöskunni,
eða hvort hárnæringin dugar ekki
örugglega þótt hún sé drýgð að ein-
um fimmta hluta með vatni. Sumum
þykir útþynnt vara m.a.s. vera
betri, og t.d. hefur þynnt hársápa
síður þurrkandi áhrif á hárið.
Mjólkin og safinn
Að þynna út matvæli getur verið
vandasamara því bara lítið magn af
vatni getur breytt bragðinu mjög
greinilega. Sparnaðarráðavefurinn
Moneysavingmom.com segir það
geta hentað sumum að bæta vatni
út í nýmjólk svo að hlutfall vatnsins
verður allt að 30%. Vatnsþynnt
mjólk er samt ekki allra og getur
hjálpað til að byrja mjög, mjög
hægt á þessari vegferð.
Að þynna út ávaxtasafa getur
stundum verið auðveldara og bragð-
áhrifin ekki jafn greinileg. Aftur er
aðalreglan sú að byrja smátt, sjá
hvort örlítil viðbót af vatni breytir
einhverju, og svo prufa meira og
meira. Í sumum tilvikum ætti að
vera hægt að þynna safann um
helming á móti vatni en eiga samt
nærandi, bragðgóðan og svalandi
drykk í ísskápnum.
Þvottalögurinn þynntur
Annar sparnaðarvefur, Cheap-
ism.com, segir oft hægt að þynna út
hreinsiefni fyrir heimilið, jafnvel um
allt að helming, á móti vatni beint
úr krananum. Að blanda vatni út í
spreybrúsann eða sápuflöskuna á
ekki að rýra virkni sápunnar svo að
eftir sé tekið. Það sama á að gilda
um fljótandi sápu fyrir þvottavélina.
Rétt er að fólk vari sig á að ekki
má bæta vatni út í allar hreinsivör-
ur. Það má t.d. alls ekki blanda
vatni út í stíflueyði, klósetthreinsi
og ofnhreinsi. Í þessum sterku
hreinsivörum eru efni sem valdið
geta kröftugum efnahvörfum ef þau
komast í snertingu við vatn, fram-
kallað hita og þrýsting sem sprengt
getur umbúðir og gefið frá sér
hættulegar gastegundir.
EINS OG 50% AFSLÁTTUR
Hægt að spara mikið
með því að þynna út
ÓHÆTT ER AÐ BLANDA HANDSÁPU TIL HELMINGA Á MÓTI VATNI, BÆTA
KRANAVATNI Á SJAMPÓ-BRÚSANN OG JAFNVEL ÚT Í ÁVAXTASAFANN LÍKA.
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Auðvelt er að þynna með vatni margt af því sem finna má á baðherberg-
inu. Sterk hreinsiefni eins og stíflueyði má þó alls ekki þynna út.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Heildarlaun að meðaltali 526.000 kr.