Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Side 64
SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2014
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/ S
ÍA
HVAR ER
BARNIÐ
ÞITT?
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið
Í byrjun árs mættu þúsundir unglinga fyrirvaralaust í
Smáralind til að sjá Vine-stjörnur og sagan endurtók
sig svo nýlega þegar YouTube-stjarna mætti til
landsins. Nánast ekkert foreldri hafði heyrt um þessar
stjörnur og uppákomurnar komu mörgum á óvart.
Það er kominn tími til
að tala saman
Vodafone og Dale Carnegie bjóða því foreldrum og
forráðamönnum um land allt á ókeypis vinnustofu
um góð samskipti á netinu.
Hverjar eru þær nýju áskoranir sem netið og
samfélagsmiðlar búa til í samskiptum?
Hvað þarf að vita um netsamskipti?
Hvað eru góð samskipti á milli foreldra og barna?
Næstu námskeið:
12. maí – Reykjavík
15. maí – Reykjanesbær
19. maí – Akranes
21. maí – Selfoss
Skráning og nánari upplýsingar er að finna á
dale.is/vodafone eða í síma 555 7080.
22. maí – Egilsstaðir
26. maí – Ísafjörður
28. maí – Reykjavík
28. júní – Vestmannaeyjar
Snæbjörn Ragnarsson og Óttarr Proppé, sem syngja bakraddir
hjá Pollapönkurunum, skörtuðu báðir forláta Slayer-bolum und-
ir Henson-pollapönksgallanum í forkeppni Eurovision. Báðir
eru þeir þekktari fyrir afrek sín á dökku þungarokkssviðinu,
Snæbjörn með Skálmöld og Óttarr með Ham og Dr. Spock,
fremur en á ljósu og léttu Eurovision-sviði í Danmörku. Snæ-
björn sagðist ekki vera búinn að ákveða hvort Slayer fylgir þeim
á svið á lokakvöldinu.
„Slayer virkaði í forkeppninni. Við erum ekki alveg búnir að
ákveða þetta, meltum þetta yfir morgunkaffibollanum,“ sagði
kappinn afar ánægður með árangurinn sem lukkubolirnir færðu
þeim. Vonandi að sú lukka haldi áfram.
Bakraddirnar
Snæbjörn og
Óttarr skört-
uðu málm-
bolum.
ÞUNGAROKKARARNIR Í POLLAPÖNKI
Slayer á sviði
Þungarokkararnir Tom Araya og Kerry King í Sla-
yer að spila á Golden Gods-verðlaunahátíðinni.
AFP
19 ára gamall björn frá Sýrlandi,
Mangó, fór í aðgerð á sjúkrahúsi
í Ísrael. Starfsmaður dýragarðs-
ins sem sýnir Mangó, veitti því
eftirtekt að hann haltraði og var
hann því settur í röntgen mynda-
töku þar sem sprunga í hryggj-
arlið uppgötvaðist. Var Mangó
því drifinn í aðgerð á Ramat Gan
Wildlife dýralæknastöðinni nærri
Tel Aviv.
Það er ekkert grín að svæfa
250 kílóa björn og ákváðu dýra-
læknarnir að raka feldinn af bak-
inu af Mangó til að hægt væri að
athafna sig betur.
Koddar voru settir í ruslapoka
til að dýrið gæti verið í sem eðli-
legastri stellingu á meðan aðgerð
stæði yfir og blóðþrýstingurinn
mældur í loppunni.
Spítalinn Ramat Gan Wildlife
sinnir rúmum 2.000 dýrum,
stórum sem smáum, á hverju ári
en starfsemin er fjármögnuð með
frjálsum framlögum.
Fyrr á þessu ári sinntu dýra-
læknar á Ramat Gan Wildlife
nashyrningnum Mæju sem hafði
horn á trýninu sem vísaði niður.
Búist er við að Mangó nái sér
að fullu en það mun koma í ljós á
næstu vikum.
FURÐUR VERALDAR
Mangó
í aðgerð
Allt að verða tilbúið. Dýralæknarnir á spítalanum Ramat Gan Wildlife gera
sig og Mangó klára fyrir aðgerðina sem heppnaðist vel.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Katherine Heigl
Leikkona
Sanna Nielsen
Eurovision-keppandi Svía
Sigríður Margrét Oddsdóttir
Forstjóri Já.is