Morgunblaðið - 25.10.2014, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 25.10.2014, Qupperneq 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2014 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Téð ráðstefna fór fram í New-castle, sem kann að þykjaeinkennilegt, en skýrist af því að skipuleggjandinn, sekkja- pípuleikarinn og fræðimaðurinn dr. Simon McKerrel er með stöðu við háskólann þar. Fræðimenn dreif víðsvegar að, lunginn af þeim Skotar nema hvað en einnig tóku bandarískir, nýsjálenskir og íslenskir kennismiðir þátt í atinu. Yðar einlægur lagði þarna fram „pappír“ (að flytja fyrirlestur er einatt kallað „give paper“) um hvernig skosk þjóðarsál end- urspeglast í völdum poppsveitum eins og Proclaimers, Runrig og Arab Strap og var fyrirlesturinn byggður á meistararitgerð sem hann skrifaði við Edinborgarhá- skóla. Áhersla ráðstefnunnar var annars á skoska þjóðlagatónlist eða „traditional“-tónlist og kom þessi fyrirlestur minn, ásamt öðr- um, m.a. inn á breyttar hug- myndir um þá list. Allt eðlilegt Margt áhugavert kom fram á þessari tveggja daga ráðstefnu, skárra væri það nú. En það er jafnvel áhugaverðara að skoða hvernig svona ráðstefnur virka al- mennt. Og fyrir félagsfræðing er þetta samskiptafræðileg gull- náma. Í félagsfræðinni er rætt um dulda virkni samfélagsstofnana, t.d. er yfirlýst markmið skóla að uppfræða en hlutverk þeirra er um leið hreinlega að vera vist- arverur fyrir ungmenni, sjá til þess að þau séu í sambandi við jafningja sína o.s.frv. Þessi virkni er hins vegar aldrei nefnd berum orðum í skipuritum. Ráðstefnur lúta samskonar lögmálum, op- inberlega er fræðafólk að lýsa hugmyndum sínum og kenningum í gegnum fyrirlestra en það sem gerist þar fyrir utan er ekki síður mikilvægt. Á pöbbnum er rúm fyr- ir óformlegri samræður þar sem tengslum er komið á og upplýs- ingar af alls konar tagi ganga á milli fólks; gamlir kolleggar og Að skilja Skotland … í gegnum tónlistina Hálandahöfðingjar Sekkjapípan er eitt þekktasta tákn Skotlands. vopnasystkin treysta böndin; það er hlegið, sungið og fíflast. Ráð- stefnur virka þá oft sem vel þegið uppbrot á rútínu dagvinnunnar, þarna gefst tækifæri til að leysa ærlega frá skjóðunni eftir langar einverur á bókasöfnum og fólkið sem maður rekst á þarna getur verið skemmtilega skrautlegt. Á þessari tilteknu ráðstefnu sat ég t.a.m. eitt síðdegið og sötraði kaffi með sjötugum Ameríkana, aðsóps- miklum og sjarmerandi kjaftaski sem er sérfræðingur í japanskri þjóðlagatónlist, hefðarkonu frá Lundúnum sem var að rannsaka Mogwai og gírugum gaur frá Manchester (sem er annarar kyn- slóðar Íri eins og honum varð tíð- rætt um) en hann var að hefja sitt doktorsnám. Hann var jarpur á hár en með alhvíta og síða skegg- barta að hætti Jóns Sigurðssonar. Skipti þeim út fyrir hipsteramott- una sagði hann mér. Allt eðlilegt hér. Ýmiss konar óskráðar reglur í samskiptum dúkka upp, t.d. í fyr- irspurnatímanum í kjölfar fyr- irlestranna þar sem nærfellt allar spurningar hefjast á: „Þakka þér fyrir þetta. Afar áhugavert … en ég velti því fyrir mér …“. Öll gagnrýni er iðulega sett í lúmska baðmull, eitthvað sem Englend- ingar/Bretar eru miklir sérfræð- ingar í. Hvað ertu (skosk) tónlist? Á þessum ráðstefnum sem ég hef sótt í ár hefur mér þótt mjög merkilegt að upplifa þessa ríku þörf okkar mannskepnunnar fyrir samveru. Og þegar samhygðin er hvað sterkust keyrir hún hæglega yfir allar akademískar hártoganir, eins gaman og maður hefur ann- ars af þeim. Það var þaðan sem sáttin og sælan sem ég fann innra með mér í lok ráðstefnu var, ekki að ég hafi uppgötvað að þessi skoski fiðlari væri í raun og veru frá Aberdeen en ekki Elgin. Þegar fólk hættir í vinnum talar það allt- af um að það sem það muni sakna mest séu vinnufélagarnir. Þeir skipta meira máli en það sem þú ert endilega að gera virðist vera. Það er sjaldnast (les: aldrei) einhver niðurstaða úr svona ráð- stefnum en tilgangurinn var að fá fólk til að hugsa um gildi og merkingu skoskrar tónlistar í dag, sérstaklega í kjölfar nýafstaðinna kosninga þar sem Skotar höfnuðu sjálfstæði. Skoska þjóðarsálin hef- ur eðlilega gengið í gegnum mikið umrót vegna þess og færið fyrir svona ráðstefnu því upplagt. McKerrell er mikill módernisti, ungur fræðimaður með glampa í augum og umhugað um framtíð lands síns. Breytingar, þróun og nýsköpun innan skoskrar alþýðu- tónlistar – eins mótsagnakennt og það hljómar – er jákvætt fremur en neikvætt að hans mati. Auðvit- að voru margir á öndverðum meiði og á því var gjarnan tekið í baðmullarvöfðum umræðum á pöbbnum um kvöldið. » Á pöbbnum er rúmfyrir óformlegri samræður þar sem tengslum er komið á og upplýsingar af alls kon- ar tagi ganga á milli fólks  Ráðstefnan Understanding Scotland Musically fór fram í upphafi vikunnar  Eigindir skoskrar alþýðutónlistar skoðaðar í krók og kima Þriðja plata Skálmaldar, Með vætt- um, verður gefin út formlega 31. október. Harðir aðdáendur víkinga- málmsveitarinnar þurfa þó ekki að bíða svo lengi því plötuna verður hægt að fá í sérstakri forsölu á Gauknum í dag þar sem hljómsveitin heldur tvenna tónleika, þá fyrri kl. 16 fyrir fólk á öllum aldri og þá seinni kl. 22 fyrir 20 ára og eldri. Miðasala hefst á Gauknum klukkan 14. Auk þess að spila og syngja munu Skálmeldingar veita áritanir og spjalla við gesti og gangandi og eftir kvöldtónleikana heldur stuðið áfram því þá verður platan nýja sett í græj- urnar, eins og Skálmeldingar orða það í tilkynningu. Ljósmynd/Lárus Sigurðarson Skálmöld Þriðja breiðskífa hljómsveitarinnar, Með vættum, verður seld í forsölu á Gauknum í dag en hún kemur út formlega 31. október. Með vættum í forsölu og tvennir tónleikar í dag BRÁÐSKEMMTILEG MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Ísl. tal POWERSÝNING KL. 10 Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar 16 16 16 16 16 L L L FURY Sýnd kl. 7-10 powersýning BORGRÍKI 2 Sýnd kl. 3:45-5:50-8-10:10 KASSATRÖLLIN 2D Sýnd kl. 1:45 - 3:50 KASSATRÖLLIN 3D Sýnd kl. 1:45 GONE GIRL Sýnd kl. 10 DRACULA UNTOLD Sýnd kl. 8 TOMBSTONES Sýnd kl. 5:40 SMÁHEIMAR 2D Sýnd kl. 1:40 - 3:40 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND UM EINKASPÆJARA SEM FLÆKIST INN Í HEIM EITURLYFJASALA LIAM NEESON ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON MARGUR ER KNÁR ÞÓTT HANN SÉ SMÁR... -Empire -H.S.S., MBL -H.S., MBL ★★★★★ -T.V., biovefurinn ★★★★★ -V.J.V., Svarthöfði.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.