Morgunblaðið - 27.11.2014, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.11.2014, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014 sjónvarpsefni og kynningar- og auglýsingaefni. Starfsfólki N4 hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum árum, enda hafa viðtökurnar við því sem við erum að gera verið mjög já- kvæðar og hvetjandi.“ Viðmælandinn í aðalhlutverki „Í okkar sjónvarpi heyrist fyrst og fremst rödd landsbyggðarinnar og þannig viljum við hafa hlutina, enda skilgreinum við okkur sem þjónustumiðil landsbyggðarinnar, þar sem viðmælandinn er í aðal- hlutverki. Auðvitað reynum við að skoða alla króka og kima sam- félagsins, en við látum hefðbundnu fréttamálin að mestu eiga sig, enda sinna aðrir miðlar þeim ágætlega. Þegar við tökum á málum sem telj- ast til gallharðra frétta fá viðmæl- endurnir gjarnan nokkuð góðan tíma til að útskýra sína hlið á við- komandi máli. Þessi stefna hefur fallið í góðan jarðveg hjá áhorf- endum, þannig að ég sé ekki fyrir mér að N4 setji á laggirnar sér- staka fréttastofu í náinni framtíð. Við viljum sem sagt vaxa og dafna með því að halda áfram á svipuðum nótum og við höfum verið að gera til þessa.“ Kristján segir að ekki standi á viðbrögðum frá áhorfendum stöðv- arinnar. „Já, sem betur fer og það gleður mig hversu ríkan áhuga fólk hefur á dagskránni. Flestir segja að við séum á réttri braut með því að gefa viðmælendum nokkuð rúman tíma og sleppa hefðbundnum frétta- tengdum málum. Áhorfendur eru um land allt, enda má segja að flest- ir landsmenn eigi rætur að rekja út á land.“ Ókeypis dagskrá en dýr Dagskrá N4 er opin, þannig að allir geta horft á efni stöðvarinnar án þess að greiða fyrir aðganginn. Kristján segir að reksturinn kosti mikla fjármuni, ekkert sé ókeypis í raun og veru. „Fastir starfsmenn eru nærri tuttugu, þannig að N4 telst vera nokkuð stórt fyrirtæki á lands- byggðinni. Til að geta greitt laun og staðið undir öðrum kostnaði, þurf- um við auðvitað að afla tekna. Sem betur fer hefur okkur gengið nokk- uð vel í þeim efnum og auglýsendur eru ánægðir með árangurinn, enda er áhorfið nokkuð gott. Okkar markmið er fyrst og fremst að framleiða gott og áhugavert sjón- varpsefni. Ef vel tekst til, vilja fyrirtæki og stofnanir auglýsa og standa þar með straum af kostn- aðinum við reksturinn.“ Stundum er sagt að fjölmiðlar sem reiða sig á auglýsingar taki helst ekki viðtöl, nema viðkomandi komi með auglýsingar í staðinn. Kristján segir að sú regla eigi alls ekki við um N4. „Nei, það hefur aldrei verið þann- ig, enda færi þá trúverðugleikinn fjandans til að skömmum tíma. Okkar dagskrárgerðarfólk er al- gjörlega sjálfstætt og tekur ákvarð- anir um viðtöl óháð því hvort við- komandi auglýsir hjá okkur eða ekki. Línurnar eru alveg skýrar í þessum efnum.“ Kristján segir að alltaf sé ásókn í viðtöl. „Já, sem betur fer og okkur er nánast aldrei neitað um viðtal. Dag- lega berast margir tölvupóstar frá fólki, þar sem verið er að benda okkur á hugsanlegt sjónvarpsefni og sömuleiðis er mikið hringt í okk- ur. Gott og náið samband við áhorf- endur er okkur mikils virði. Við reynum eftir bestu getu að kynna okkur allar þessar ábendingar, en auðvitað er ekki hægt að sinna þeim öllum, það er bara eins og gengur og gerist.“ Tækifæri góður eigandi Eins og fyrr segir hefur fjárfest- ingarsjóðurinn Tækifæri keypt N4. Kristján segir um að ræða góðan og traustan kaupanda. „Tækifæri er í eigu fyrirtækja og sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og vestra og hluthafarnir eru nærri fjörutíu. Stefna Tækifæris er að fjárfesta í nýsköpun eða nýmæli á Norðurlandi og N4 fellur hiklaust inn í þann ramma. Það er ekki sama hverjir eiga fjölmiðla, við þekkjum þá umræðu. Ég segi hiklaust að Tækifæri sé góður og traustur eig- andi, enda um að ræða félag sem vill fyrst og fremst efla atvinnu- starfsemi á landsbyggðinni.“ Kristján segir að fljótlega eftir áramót verði farið í stefnumótunar- vinnu innan fyrirtækisins, þar sem horft verði til nánustu framtíðar. „Flestir fjölmiðlar vilja sjálfsagt stækka og eflast. Jú, jú, ég vil gjarnan stækka starfssvæðið, en allt slíkt krefst undirbúnings og íhugunar. Áhuginn er sannarlega fyrir hendi og við fáum reglulega fyrirspurnir og heimsóknir frá öðr- um landshlutum. Það er líklega hyggilegast fyrir mig að segja ekki mikið meira í bili, en get þó sagt að verið sé að skoða ýmsa möguleika í þessum efnum.“ Allir landsmenn á sama báti „Almennt vilja Íslendingar að all- ir landsmenn séu á sama báti og þess vegna er nauðsynlegt að fjöl- miðlar séu ekki aðeins staðsettir í Reykjavík. Rödd landsbyggðar- innar þarf að heyrast hátt og skýrt, en mér hefur fundist svokölluð landsbyggðarumræða nokkuð sér- kennileg á köflum. N4 er rödd landsbyggðarinnar og þess vegna er starfsemin mikilvæg,“ segir Kristján. „Vinnudagurinn er oft á tíðum lengri en átta klukkustundir, ekki bara hjá mér, heldur starfsfólkinu almennt. Við höfum öll gríðarlegan áhuga á starfinu og viljum skila góðu verki. Fyrirtækið hefur vaxið hratt, sem að stórum hluta er starfsfólkinu að þakka. Gott og traust starfsfólk er helsta lán stöðv- arinnar,“ segir Kristján Kristjáns- son, nýr framkvæmdastjóri N4 á Akureyri. „N4 er sjónvarpsstöð landsbyggðarinnar“  Stöðin sendir út nýtt íslenskt efni alla virka daga  Við- mælendur fá góðan tíma  Fréttastofa ekki á teikniborðinu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hellt upp á Hilda Jana Gísladóttir fer víða í efnisleit fyrir N4. Hún gefur sér þó tíma til að fá sér kaffi, áður en haldið er í næsta viðtal dagsins. Bjartsýnn „Okkar markmið er fyrst og fremst að framleiða gott og áhugavert sjónvarpsefni. Ef vel tekst til vilja fyrirtæki og stofnanir auglýsa og standa þar með straum af kostnaðinum við reksturinn,“ segir Kristján. VIÐTAL Karl Eskil Pálsson karlesp@simnet.is „Þetta leggst mjög vel í mig, enda þekki ég fyrirtækið og reksturinn ágætlega og starfsfólkið er einhuga um að skila góðu verki, þannig að ég hef enga ástæðu til annars en að hlakka til,“ segir Kristján Krist- jánsson sem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjölmiðlafyrir- tækisins N4 á Akureyri. Fjárfest- ingarfélagið Tækifæri keypti nýver- ið fyrirtækið, en að því félagi standa um fjölmargir hluthafar, meðal ann- ars norðlensk sveitarfélög. „Hjá fyrirtækinu starfa um tutt- ugu manns. Við rekum tvo miðla, annars vegar N4 Dagskrá Norður- lands sem kemur út einu sinni í viku og dreift er um allt Norður- land og hins vegar N4 Sjónvarp, sem sendir út alla virka daga nýtt íslenskt efni. Þá erum við líka með hönnunar- og framleiðsludeild, sem meðal annars framleiðir íslenskt Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16 Síðasta sýningarhelgi Beggja heima Abba Listmuna uppboð Síðustu forvöð til að koma með verk á næsta uppboð er 28. nóvember Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.