Morgunblaðið - 27.11.2014, Qupperneq 54
54 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014
Laugavegi 34 101 Reykjavík | Sími: 551 4301 | gudsteinn.is
Jakkaföt frá
32.000,-
Guðsteins Eyjólfssonar sf
V E R S L U N
Hin fagra og forna Albanía
28. mars - 8. apríl
Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum ferðamönnum.
Enn hefur alþjóðavæðingin ekki náð að festa þar rætur og er
lítt sjáanleg. Þar má sjá ævaforna menningu, söguna á hverju
horni, gríðarfallega náttúru og fagrar strendur og kynnast
einstakri gestrisni heimamanna þar sem gömul gildi eru í
hávegum höfð.
Verð 336.950 kr. á mann
í 2ja manna herbergi
Meginefni úrskurð-
arins er að lánveit-
anda sé óheimilt við
veitingu á verð-
tryggðu láni, að miða
upplýsingar til lántaka
við 0% verðbólgu.
Með því sé verið að
villa um fyrir neyt-
anda og betra sé að
miða við ríkjandi verð-
bólgu þegar lánið er
veitt. Dómararnir þykjast vita
þarna um almennan skilning neyt-
enda, en upplýsa okkur þess í stað
um eigið skilningsleysi á mati verð-
mæta. Vissulega er almennur skiln-
ingur og þar með talinn skilningur
lögfræðinga á mati verðmæta frek-
ar lélegur. Hins vegar er augljóst,
að besta aðferðin við að fá lánþega
til að meta skynsamlega hvernig
verðmæti afborgana, höfuðstóls og
vaxtagreiðslna breytast þegar líður
á lánstímann, er að leyfa þeim að
beita því verðmætamati sem þeir
eru gæddir á tíma veitingar láns-
ins, frekar en að miða
við óþekkta breytingu
á vísitölu, sem er nú
heldur ekki á allra
valdi að skilja. Hag-
fræðingar eiga helst
að hafa skilning á mati
verðmæta. Það er um
það bil hálf öld síðan
lagður var stærð-
fræðilegur grunnur að
skilgreiningu mats á
verðmætum. Þar er
tekið á þeim vanda, að
mat ólíkra einstaklinga og ólíkra
hópa þeirra er ólíkt. Það breytist
einnig með tímanum. Það er þó bót
í máli að dómararnir virðast gera
sér grein fyrir að efni úrskurðarins
hefur ekkert með það að gera,
hvort verðtrygging er góð eða
slæm.
Úrskurður EFTA
Eftir Halldór I.
Elíasson
»Hagfræðingar eiga
helst að hafa skiln-
ing á mati verðmæta.
Halldór I. Elíasson
Höfundur er stærðfræðingur.
Kynning á niðurstöðum svokall-
aðrar „Leiðréttingar“ fór fram 10.
nóvember síðastliðinn. Rangfærslur
og villandi umfjöllun hefur einkennt
umræður og skrif um niðurstöð-
urnar. Þingmenn Framsóknar-
flokksins hafa t.d. í riti og ræðum í
kjölfar kynningarinnar lagt áherslu
á að „Leiðréttingin“ gagnist fyrst og
fremst þeim tekjulægri í þjóðfélag-
inu. Líneik A. Sævarsdóttir og Karl
Garðarson, þingmenn Framsóknar-
flokksins, fullyrða t.d. í Morgun-
blaðinu 17. nóvember sl. að jöfnun
milli tekjuhópa einkenni aðgerðina
og að í raun eigi sér stað tilfærsla frá
tekjuhærri hópum til tekjulægri!
Þessi fullyrðing er mjög fjarri raun-
veruleikanum.
„Leiðréttingin“ gengur út á að
bæta hluta af þjóðinni upp hluta af
tapi vegna bankahrunsins. Í kynn-
ingu á „Leiðréttingunni“ kemur
fram hversu hátt hlutfall af bóta-
fjárhæðinni rennur til fólks með
mismunandi miklar tekjur. Gögn frá
Ríkisskattstjóra sýna hversu margir
eru með tekjur á ákveðnum bilum.
Auðvelt er því að reikna út hversu
miklar bætur fólk fær að meðaltali
eftir tekjuhópum. Á meðfylgjandi
myndum má sjá þær bætur sem
„Leiðréttingin“ færir fólki í mismun-
andi tekjuhópum að meðaltali. Önn-
ur myndin sýnir meðalbætur ein-
staklinga eftir tekjum
en hin meðalbætur
samskattaðra aðila.
Báðar myndirnar sýna
að þeir tekjuhærri eru
að meðaltali að fá mun
meira í sinn hlut með
„Leiðréttingunni“.
Nokkur fjöldi para og
einstaklinga með árs-
tekjur undir einni
m.kr. (mánaðartekjur
undir 80 þús. kr.) fær
skuldaniðurfellingu.
Stór hluti þeirra gæti
verið búsettur erlendis
og með erlendar tekjur. Gögnin
gætu því ýkt fjölda tekjulægri sem
þýðir að munur á bótunum eftir
tekjum gæti verið enn meiri en
gögnin benda til.
Aðgerðin færir fjármuni frá þeim
tekjulægri til þeirra tekjuhærri.
Einstaklingar sem eru með undir
500 þús. í mánaðartekjur fá að með-
altali um 130 þús. í bætur með
„Leiðréttingu“ en einstaklingar sem
eru með yfir 500 þús. í mán-
aðartekjur fá að meðaltali um 440
þús. í bætur. Heildar-
fjárhæð leiðréttingar-
innar er um 75 ma.kr.
Ef þessari fjárhæð
hefði verið dreift á alla
skattgreiðendur hefði
hver skattgreiðandi
fengið um 280.000 kr. í
sinn hlut. Eðlilegt er að
líta svo á að hinir tekju-
lægri eigi jafnmikinn
hlut í almannafé og hin-
ir tekjuhærri. Aðgerðir
stjórnvalda fela því í
raun í sér að tekjulágir
greiði tekjuháum bætur.
Endurskilgreining á
lágum launum
Í umfjöllun um skuldaniðurfell-
ingaraðgerðina hafa stjórnmála-
menn stundum túlkað árslaun upp á
7 m.kr. hjá einstaklingum (580.000
kr. á mánuði) og 16 m.kr. hjá fólki í
sambúð (670.000 kr. að meðaltali á
mánuði) sem lág laun og bent á að
75% af leiðréttingunni hafi farið til
fólks með tekjur undir þessum við-
miðunarmörkum. Gögn frá Ríkis-
skattstjóra sýna að tæp 90% af
skattframteljendum eru undir við-
miðunarmörkunum. Þeir 10% tekju-
hæstu fá því um 25% af „Leiðrétt-
ingunni“. Samkvæmt gögnum
Hagstofunnar var helmingur fólks í
fullri vinnu á árinu 2013 með lægri
heildarlaun en 464.000 kr. á mánuði.
Jafnvel þótt stjórnmálamenn endur-
skilgreini hvað séu lág laun í land-
inu, þá breytist það ekki að skulda-
niðurfellingin felur í sér tilfærslu á
fjármunum frá hinum tekjulægri til
hinna tekjuhærri.
Eftir Oddgeir Ágúst Ottesen
» Sannleikurinn er þó
sá að „Leiðrétt-
ingin“ felur að meðaltali
í sér tilfærslu á fjár-
munum frá tekjulágum
til tekjuhárra.
Oddgeir Ágúst Ottesen
Höfundur er hagfræðingur
og varaþingmaður.
Um blekkingar og áróður
um „Leiðréttinguna“
Meðalbætur á einstaklinga eftir árstekjum
0-1 4-5 10-111-2 5-6 11-122-3 8-96-7 >123-4 9-107-8
Þús kr.
m.kr.
600
500
400
300
200
100
0
Meðalleiðrétting eftir tekjum
„Leiðrétting“ miðað við jafna dreifingu
Meðalbætur samskattaðra eftir árstekjum
0-
1
4-
5
10
-11
12
-131-2 5-6 11-
12 16
+
2-3 8-
96-7 13
-14
14
-153-
4
9-1
0
15
-167-8
Þús kr.
m.kr.
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
0
Meðalleiðrétting samskattaðra
Leiðrétting samskattaðra miðað við jafna dreifingu
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 24. nóvember lauk 3ja
kvölda hraðsveitakeppni félagsins.
Sigurvegari var sveit Sigurjóns
Björnssonar. Með honum spiluðu:
Sigurjón Harðarson, Haraldur Inga-
son, Jón Guðmar Jónsson og Her-
mann Friðriksson.
Staða efstu sveita:
Sigurjón Harðarson 1902
Dröfn Guðmundsdóttir 1847
Vestri 1835
Miðvikudagsklúbburinn 1747
Mánudaginn 1. desember byrjar
aðalsveitakeppni félagsins. Fjöldi
spilakvölda fer eftir þátttöku.
BH spilar á mánudagskvöldum í
Hraunseli, Flatahrauni 3, Hafnar-
firði. Spilamennska byrjar kl. 19 og
eru allir spilarar velkomnir.
Keppnisstjóri er Sveinn R. Eiríks-
son.
Bridsfélag Reykjavíkur
Eftir 3 kvöld af 5 í aðaltvímenn-
ingnum er staðan þessi:
Jón Baldursson – Sigurbjörn Haraldss. 1563
Snorri Karlsson – Þorlákur Jónsson 1487
Vignir Haukss. – Guðjón Sigurjónss. 1432
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is