Morgunblaðið - 27.11.2014, Page 64

Morgunblaðið - 27.11.2014, Page 64
64 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014 BÆKUR Fágun og látleysi eru orð sem koma í hug margra þegar rætt er um verk Gunnlaugs. Byggingarlist hans er funksjónalismi með mýkt, laus við sýndarmennsku, tilgerð og sér- viskuleg formeinkenni. Þessir eig- inleikar eiga rætur í mann- eskjulegum áherslum hins danska funksjónalisma og þarlendri hefð í byggingarháttum (d. den funktio- nelle tradition) þar sem áhersla var lögð á hagsýni, einfaldleika í formi og vandað handverk. Hið agaða og hógværa yfirbragð sem Gunnlaugur tileinkaði sér á námsárunum í Dan- mörku var nokkuð á skjön við ríkjandi tískur í íslenskri húsagerð: sögustíl og þjóðernishyggju 3. ára- tugarins og tildurslegan skrautstíl eftirstríðsáranna. Yfirlætislaus verk hans hreykja sér ekki. Þau hafa því tilhneigingu til að hverfa í skugga nálægra bygginga sem frekari eru í formi, stíl og mælikvarða. Gunnlaugur Halldórsson kaus að starfa sjálfstætt alla tíð og skreytti ekki nafn sitt með öðrum titli en starfsheitinu arkitekt. Hann var aldrei opinber embættismaður, en slíkir nutu pólitískrar verndar og höfðu forgang að öllum mikilvæg- ustu verkefnum á sviði skipulags- og byggingarmála allt fram undir lok 6. áratugarins. Þetta átti við flestar opinberar byggingar ríkis og bæja sem og hönnun húsnæðis fyrir al- menning til sjávar og sveita. Fram- an af starfsævinni buðust honum fá tækifæri til að teikna áberandi stór- hýsi, enda þótt enginn efaðist um faglega hæfni hans og listræna yf- irburði. Til að mynda bauðst honum aldrei að teikna kirkju. Tækifæri hans lágu í samkeppnum arkitekta og á þeim vettvangi sannaði hann snemma hæfni sína. Gunnlaugur var að því leyti óheppinn að nokkur stór verkefni sem hann vann að í mörg ár urðu ekki að veruleika. Þar má nefna Matthíasarbókhlöðu á Akureyri, náttúrufræðisafn á háskólalóðinni, skautahöll í Reykjavík, höf- uðstöðvar ÁTVR við Suðurlands- braut og Borgarbókasafn Reykja- víkur. Þá nýtur hann ekki sannmælis fyrir afstöðu sína til sögulegra bygginga. Framlagi hans við mótun þjóðhöfðingaseturs á Bessastöðum hefur lítið verið haldið á lofti á meðan Landsbankastækk- unin er iðulega nefnd sem dæmi um einstrengingsleg viðhorf funksjón- alismans í garð eldri bygging- arlistar. Staðreyndin er sú að Gunn- laugur var sá arkitekt af sinni kynslóð sem áhugasamastur var og mest lesinn um íslenskan bygging- ararf og bar varðveislu hans mjög fyrir brjósti á seinni árum. Nægir þar vitna í viðtal sem birtist í Les- bók Morgunblaðsins í júní 1975. Gunnlaugur leit á arkitektastarfið sem listræna köllun þar sem afkom- an var ekki aðalatriði. Trúr þeirri skoðun helgaði hann líf sitt því að vera góður fagmaður og leysa verk sín af trúmennsku og vandvirkni. Hann skrifaði lítið í blöð og gaf sjaldan færi á viðtölum nema til að veita faglegar upplýsingar um ein- stök verk. Þá sjaldan hann tók þátt í opinberi umræðu talaði hann al- mennt fyrir málstað arkitekta og byggingarlistar í landinu. Það var ekki í hans anda að miklast af eigin verkum. Gunnlaugur leit á arkitekt- úr sem listgrein sem þó hefði annað gildi því hún væri hagnýt og þar af leiðandi ekki eins óháð og aðrar list- greinar. Aðspurður um listgildi arkitektúrs svaraði hann svo í við- tali árið 1975: „„Það gagnlega er fallegt“, ku Sókrates hafa sagt, og það mætti túlkast þannig, að það sé agaður strangleiki í mótun, sem öðl- ist þann sess í vitund okkar að við köllum hann list.“ Í byggingum sínum gerði Gunn- laugur þá kröfu að þær væru sannur vitnisburður um samtíð sína. Jafn- framt var hann næmur á þau tíma- lausu gildi sem góður nútímarki- tektúr á sameiginlegan með því besta í byggingararfleifð fyrri alda. Hann gaf lítið fyrir þjóðlegar skír- skotanir í nýrri byggingarlist en bar engu að síður virðingu fyrir fornri byggingarhefð sveitasamfélagsins. Hann leit hefðina með augum funk- sjónalistans. Í því sambandi vitnaði hann til orða Guðmundar Hann- essonar læknis, sem dáðist að feg- urð torfhúsanna tilsýndar í lands- laginu og því hvernig mönnum hefði „… á mörgum öldum […] lærtst að fara svo hyggilega með lítilfjörleg byggingarefni, – torf og baggatæk- ar spýtur, – að húsin stóðust, öllum vonum framar, óblíðu veðráttunnar, stórrigningar og grimdarfrost. Það fór hjer sem oftar að þá urðu húsin sjálfkrafa fögur, þegar vel var á byggingarefninu haldið, og alt svo hentuglega sniðið sem ástæður leyfðu. Minna hefur verið um það talað, að húsakynnin inni í bæj- unum, – baðstofan, – væru fögur og hentug. Og þó stóð hún ekki ytra út- litinu að baki. Þegar inn í hana var komið, blasti öll gerð hússins þægi- lega við auganu, svo einföld sem hún var, og auk þess allir lifnaðarhættir fólksins svo að engin nútíðarlist get- ur betur gert.“ Í viðtalinu í Sunnudagsblaði Tím- ans kallaði Gunnlaugur bygging- armenningu sveitanna „… sameig- inlegt átak heillar þjóðar við að skapa ramma um hið daglega líf“ og átti þar við torfbæina og torfkirkj- urnar. Ágæti þessarar arfleifðar væri hvating fyrir íslenska bygging- arlist í samtímanum, en efnin sem notuð væru ólík og lifnaðarhættir breyttir. „Hver kynslóð verður að byggja í samræmi við sína menn- ingu. Notkun stíltegunda genginna kynslóða ber ekki vitni um menn- ingarafrek okkar kynslóðar, og þess vegna verður „arkitektúr“ að standa á báðum fótum í nútímanum. Ann- ars dagar hann uppi sem nátttröll.“ Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson Höfuðstöðvar Aðalbygging Búnaðarbankans, byggð 1945-48. Fyrsti módernisti íslenskra sjónlista Arkitektinn Gunnlaugur Halldórsson, sem oft hefur verið fyrsti módernisti íslenskra sjónlista, er viðfangsefni samnefndrar bókar sem ritstýrt er af Pétri H. Ármannssyni, arkitekt. Saga Gunnlaugs er hér rakin í myndum og máli, ásamt því að bókinni fylgir verkaskrá og fjöldi teikninga af verkum arkitektsins. Hér er gripið niður í lokakafla bókarinnar, þar sem fjallað er um einkenni byggingalistar hans, en ungur kynntist hann hugsjón módernismans og var hann stefnunni trúr alla sína tíð. Hið íslenska bókmenntafélag gefur út. Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson Landsbankinn Viðbygging og breyting bankans 1934-40. Arkitekt Pétur H. Ármannsson rit- stýrir bókinni um Gunnlaug. Verkamannabústaðir Byggingarfélag alþýðu byggði við Hringbraut á árunum 1936-37. Húsin eru hönnun Gunnlaugs Halldórssonar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.