Morgunblaðið - 27.11.2014, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 27.11.2014, Qupperneq 72
72 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014 ✝ Svavar Þor-steinn Þórhalls- son fæddist 6. júlí 1924 á Finnastöðum Grýtubakkahr., S- Þing. Hann lést í Reykjavík 17. nóv- ember 2014. For- eldrar hans voru Þórhallur Gunn- laugsson, f. 2. júlí 1889 á Hrafnagili í Þorvaldsdal, Ár- skógshr., Eyjaf., d. 18. febrúar 1970 á Grenivík, og Vigdís Þor- steinsdóttir, f. 13. október 1894 á Finnastöðum, Grýtubakkahr., S- Þing., d. 23. janúar 1982 á Greni- vík. Systkini hans eru Jón Mikael, f. 1914, d. 1982, Þórlaug, f. 1915, d. 1978, Sigrún, f. 1916, d. 1994, Guðjón, f. 1919, Svava, f. 1921, d. 1922, drengur, f. 1922, d. 1922, Marta Helga, f. 1926, d. 1926, Jakobína Fanney, f. 1927, d. 2010, f. 25. september1965. Svavar átti 14 afabörn og 10 langafabörn. Svavar var verslunarmaður meirihluta starfsævinnar til 61 árs aldurs. Fyrst hjá Kron og síð- ar Sláturfélagi Suðurlands. Eftir það starfaði hann sem þingvörð- ur hjá Alþingi til 71 árs aldurs. Hann var mikill söngmaður og söng með ótal kórum í gegnum tíðina, meðal annars Þjóðleik- húskórnum, Kór Neskirkju, Dóm- kirkjukórnum og Karlakór Reykjavíkur, eldri félögum. Hann var áhugamaður um skák og brids og tók þátt í keppnum í hvoru tveggja á yngri árum. Áhugi á fótbolta hófst snemma. Fyrst spilaði hann með Magna á Grenivík og eftir að hann fluttist til Reykjavíkur rúmlega tvítugur, með Víkingi. Hann fylgdist alla tíð vel með enska boltanum og var mikill aðdáandi Arsenal. Útför Svavars fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 27. nóvember 2014, og hefst at- höfnin kl. 15. Vilhjálmur Elías, f. 1929, d. 1981, Gunn- laugur, f. 1931. Hálf- bróðir samfeðra Ragnar Hörgdal, f. 1913, d. 1978. Maki Sigríður Frímannsdóttir, f. 20. júní 1926, í Neðri-Sandvík, Grímsey, d. 2. maí 1967. Foreldar hennar voru Frí- mann Sigmundur Frímannsson og Emilía Guðrún Matthíasdóttir. Börn þeirra Hrafnhildur, f. 7. júlí 1948, maki Snorri Björnsson, f. 26. júlí 1947, Þórdís, f. 29. nóvem- ber 1950, Emilía Guðrún, f. 22. apríl 1959, maki Guðmundur Guðmundsson, f. 9. júlí 1955, Harpa, f. 16. júlí 1962, Frímann, f. 26. janúar 1964, maki Elísabet Eggertsdóttir, f. 14. maí 1979, fv. eiginkona Eydís Rósa Eiðsdóttir, Jesús sagði: Ég er upprisan og lífið, sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. (Jóh. 11.25.) Elsku pabbi minn. Nú er kom- ið að kveðjustundinni. Ævin þín var orðin löng, 90 ára síðan í júlí. Á afmælisdaginn þinn í sumar héldum við systkinin þér veislu, þar sem þú naust þín vel, sætur og reffilegur. Hittir þar alla þína afkomendur, bróður og fleiri ætt- ingja. Örugglega kveðjuveisla í þínum huga. Þú varst mitt eina foreldri frá því ég var 8 ára gömul, þegar mamma dó frá okkur fyrir 47 ár- um síðan. Þú syrgðir hana mikið alla tíð. Pabbi, þú elskaðir sveitina þína, fæddur á Finnastöðum og naust þess að koma þangað norð- ur á gamlar slóðir, hitta systkini og aðra ættingja. Söngmaður varstu mikill, tenór, og söngst víða um ævina m.a. í Þjóðleik- húskórnum, Karlakór Reykja- víkur eldri félaga og Neskirkju- kórnum. Þú varst líka mikill skákmaður og bridsspilari. Margir afkomenda þinna hafa erft spilaáhugann. Ekki má gleyma fótboltanum, varst Magnamaður, Víkingur og Ars- enalmaður. Elsku pabbi minn, það verður skrýtið um jólin, þegar við af- komendur þínir hittumst, að ald- urshöfðingjann skuli vanta. Við söknum og syrgjum, en núna hefur þú hitt mömmu, Fanneyju Eddu og aðra sem á undan eru farnir. Skilaðu kærri kveðju til þeirra. Blessuð sé minning pabba. Megi hið eilífa ljós lýsa honum. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Hinsta kveðja frá mér og minni fjölskyldu. Þín dóttir, Emilía Guðrún Svavarsdóttir. Góður og traustur félagi er fallinn. Ávallt stóð hann í fremstu röð í tenórnum og sómdi sér vel enda glæsimenni. Þar stóð líka bróðir hans Gunnlaugur sem löngum léði Karlakór Reykjavík- ur og síðar eldri félögum, rödd sína. Þeir bræður voru söngelsk- ir í orðsins bestu merkingu. Hugurinn hvarflar aftur til söngferðar eldri félaga í Karla- kór Reykjavíkur til Gautaborgar vorið 2002. Gestgjafar voru Bell- manskórinn Göta PP Sångkör og sungið var í glæsilegu félags- heimili þeirra – Valand. Að kons- ert loknum var búist til ferðar á hótelið og hinkrað í anddyrinu eftir rútunni. Hvað gera karla- kórsmenn frá Íslandi þá? Taka að sjálfsögðu lagið. Brátt hljómaði: „áfram veginn í vagninum ek ég“. Þeir stóðu hlið við hlið bræðurnir og innlif- unin leyndi sér ekki. Aðrir hlustuðu og stundin varð ógleymanleg. Hana áttu sænskir og íslenskir söngbræður í sam- einingu. Við eldri félagar í Karlakór Reykjavíkur kveðjum Svavar fé- laga okkar með virðingu og þökk. Blessuð sé minning hans. Fjölskylda og aðstandendur, innilegar samúðarkveðjur. Reynir Ingibjartsson. Svavar Þórhallsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn, með hryggð í hjarta kveð ég þig. Þú varst mér alltaf svo góð- ur og betri afa er ekki hægt að hugsa sér. Ég man hve gaman mér þótti að heim- sækja þig, þegar ég var yngri, og þú lékst við mig af einlægum áhuga og kær- leik. Þú sýndir mér og mínu lífi alltaf mikinn áhuga. Ég sakna þín óendanlega mik- ið. Hvíl í friði, kæri afi minn. Þórhildur Guðmundsdóttir. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, ÞORVALDUR HEIÐDAL JÓNSSON, fyrrum bóndi á Tréstöðum, Víðilundi 16a, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn 24. nóvember. Útförin auglýst síðar. . Þórunn Jóhanna Pálmadóttir, Gerður G. Þorvaldsdóttir, Hermann A. Traustason, Rósa K. Þorvaldsdóttir, Ólafur Jósefsson, Jón Á. Þorvaldsson, Gyða H. Sigþórsdóttir, Gestheiður B. Þorvaldsdóttir, Hermann H. Kristjánsson, afabörn, langafabörn og systkini hins látna. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR HJÁLMAR JÓNSSON, lést 18. nóvember. Útförin fer fram frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 29. nóvember kl. 13.00. Jarðsett verður að Hofi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sundabúðar fyrir alúð og umhyggju. . Guðrún Pétursdóttir, Jón Pétur Einarsson, Aðalbjörg Kjerúlf, Elísabet Einarsdóttir, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Una Björk Kjerúlf, Lilja Rós Aðalsteinsdóttir, Óskar Stefánsson, Auður Ísold, Jökull Þór, Aðalsteinn Ómar, Anna Margrét. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR KATÓ AÐALSTEINN VALTÝSSON, sem lést mánudaginn 17. nóvember á Dalbæ, Dalvík, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 29. nóvember kl. 13.30. . Soffía Guðmundsdóttir, Guðmundur H. Óskarsson, Arna G. Hafsteinsdóttir, Rakel M. Óskarsdóttir, Gunnar Guðmundsson, Þóra K. Óskarsdóttir, Haukur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Friðrik Boga-son fæddist á Seyðisfirði 26. nóv- ember 1933. Hann dó á heimili sínu í Reykjavík 15. nóv- ember 2014. Foreldrar Frið- riks voru Þórunn Vilhjálmsdóttir húsmóðir, f. 1902, d. 1990, og Bogi Friðriksson, f. 1897, d. 1968, verslunarmaður á Seyðisfirði. Bróðir Friðriks er Ari, f. 1930, systir þeirra var Helga, f. 1932, d. 2014, og hálfbróðir Eiríkur Bjarnason, f. fór á eftirlaun árið 1998. Friðrik og Hulda Bára Jó- hannesdóttir, f. 19. júlí 1940, gengu í hjónaband 7. október 1961. Þau slitu samvistir árið 1980. Þau eignuðust þrjá syni: Jóhannes Gest, f. 3. ágúst 1961, Boga Þórarin, f. 2. febrúar 1963, d. 1995, og Ólaf Guðna, f. 24. júní 1973, d. 1992. Kona Jó- hannesar er (Anna) Lovísa Shen, f. 25. janúar 1965, og dætur þeirra eru Bára, f. 21. apríl 1996, og Elísabet, f. 15. apríl 1997. Börn Boga eru Gréta, f. 4. nóvember 1990, og Þorsteinn, f. 13. nóvember 1992. Útför Friðriks fer fram frá Háteigskirkju í dag, 27. nóv- ember 2014, og athöfnin hefst klukkan 13. 1923, d. 2005. Friðrik gekk í Seyðisfjarðarskóla og Alþýðuskólann á Eiðum. Hann stundaði sjó- mennsku og al- menna vinnu á Seyðisfirði og í Reykjavík áður en hann hóf nám í loftskeytaskóla Landssímans. Hann tók loftskeytapróf árið 1961 og símvirkjapróf 1963. Hann starf- aði hjá Pósti og síma frá árinu 1961 og sem flokksstjóri sím- virkja frá 1968, þar til hann Mig langar til að minnast Friðriks frænda míns nokkrum orðum, en hann lést á heimili sínu 15. nóvember sl. á 81. ald- ursári. Friðrik var móðurbróðir minn og bjó lengst af í Kópa- vogi eins og fjölskylda mín svo samgangur milli heimilanna var mikill. Tveir elstu synir hans voru líka á svipuðu reki og ég. Ein af mínum fyrstu bernskuminningum var þegar við krakkarnir vorum eitt sinn að leika okkur í móunum í kringum litla húsið á Álfhóls- veginum, þar sem hann bjó, og Friðrik kom út og kallaði á okkur. Hann hélt á litlu transistor- útvarpi, eins og það hét þá og með stillt á Kanaútvarpið. Það var útsending frá fyrstu mána- lendingunni sem hann vildi ekki að við misstum af, og við sátum dolfallin í kringum hann meðan hann þýddi fyrir okkur það sem fram fór. Friðrik vann lengst af sinni starfsævi hjá Símanum, en hann lærði til loftskeytamanns á sínum tíma. Á tímum lam- paútvarpanna var oft leitað til hans með biluð útvörp til við- gerðar innan fjölskyldunnar. Honum var fleira til lista lagt, svo sem að klippa okkur frændurna, áður en við fengum að safna hári eins og var tískan þá. Ég bætti aðeins við vasa- peningana með því að fá pening hjá mömmu fyrir klippingu, en láta svo Friðrik klippa mig ókeypis. Já, ég á margar góðar minn- ingar um Friðrik frænda minn. Ég hitti hann síðast í sumar við jarðarför móður minnar og grunaði ekki að svo stutt yrði milli þeirra systkina. Þegar maður býr erlendis og sér ættingja sína sjaldan undr- ast maður alltaf hvað fólk hefur elst síðan síðast. Ég sá að Frið- rik var orðinn gamall maður, en samt furðu hress, og ljómaði allur þegar ég fékk hann til að tala um bernskuár þeirra systkina á Seyðisfirði. Friðrik átti ekki alltaf létta ævi. Hann þurfti að lifa verstu martröð flestra foreldra að missa tvo syni sína. Ég veit að það var honum mjög erfitt þó að hann talaði ekki um það. Hann naut þó gleðinnar að eignast fjögur barnabörn og leitaðist við að rækja samband við þau. Ég vil votta syni Friðriks, Jóhannesi, og fjölskyldu hans samúð mína. Einnig öðrum barnabörnum og eftirlifandi bróður Friðriks, Ara. Björn Eðvarð Alexandersson. Enn einn er nú fallinn frá úr hópi gamalla Seyðfirðinga. Nú á skömmum tíma hafa því fallið frá tveir úr hópi þeirra sem slitu barnsskónum hér á Seyð- isfirði á tímum hernámsins 1940-1945, nágrannar héðan frá Seyðisfirði, Friddi Boga og Atli Hauks. Mig langar að minnast Frið- riks hér í þeim fáu orðum sem ásláttarkvótinn skammtar. Friðrik var góður félagi, íhug- ull og rólegur. Maður sem hægt var að treysta. Hér verður ævi hans ekki rakin, en mig langar í fáum orðum að minnast kafla frá bernskuárunum. Stríðið var þá á fullu í öllum sínum djöf- ulskap. Hermenn um allan bæ með heræfingar sínar og ser- imóníur. Þeir voru því fyrir- mynd okkar strákanna á Seyð- isfirði. Að sjálfsögðu var mynduð herdeild, sem samanstóð af um það bil einu regimenti. Foring- inn var Baldur bróðir minn, en undirforingi var Ari, bróðir Fridda. Enginn alvöruher er án tignarmerkja. Þau teiknaði for- inginn við eldhúsborðið heima á Hæð. Þeim svo úthlutað eftir verðleikum. Af ókunnum ástæðum lentu þau flest á börmum Baldurs og Ara. Byssa Baldurs var mikill kjörgripur, sem hann var mjög öfundaður af, enda tryggði hún völd hans innan hersins. Hún var gerð úr gömlum járnslegnum sleðak- jálka, með fremsta hluta hlaupsins úr gamalli látúnspa- trónu nr. 16. Ekki vakti hvað minnstu lotningu fyrir vopni þessu, að á það var fest orginal byssuól af Lee Enfield-herriffli. Í þessum her þjónuðum við Friddi sem óbreyttir dátar, líkt og góði dátinn Sveik, ásamt nokkrum öðrum jafnöldrum. Strangur agi gilti þarna, og var þeim sem brotlegir gerðust grimmilega refsað. Harðasta refsingin fólst í því að eftir æf- ingu, sem foringjarnir voru ekki ánægðir með, var regi- mentinu stillt upp í beina röð, foringinn gekk síðan meðfram henni, benti undirforingjanum á þá brotlegu, sem reif af þeim heiðursmerkin sem fengist höfðu með hlýðni og púli við erfiðar heræfingar. Það var refsing sem erfitt var að sætta sig við, og varð til þess til þess að margur dagsins djarfi dátinn settist niður á stein og grét sáran. Þess skal getið hér að dátinn Friðrik grét aldrei þó að hann þyrfti að þola að okkar mati óverðskuldaða refsingu. Endalok hersins urðu á erf- iðri æfingu í snjó, á köldum vetrardegi uppi í Þófum. Herdeildin var stödd á Þófa- brúninni þegar við Friddi, kald- ir og þreyttir horfðumst í augu og hugsuðum það sama. Nú er komið meira en nóg, hlaupum! Saman þutum við fram á brúnina, settumst á byssuskeft- in og renndum okkur þannig á rassinum niður á jafnsléttu, þ.e. Strandarveginn. Á meðan við renndum okkur niður, burt frá heraganum, stóðu foringj- arnir Baldur og Ari veifandi höndum og hrópandi um hörð- ustu refsingu fyrir liðhlaup. Það dugði samt ekki. Hlaupið var síðan beina leið heim að Hæð, inn í hlýtt eld- húsið til mömmu, lausir frá stríðsbröltinu og aganum sem því fylgdi. Herinn leystist upp eftir þetta liðhlaup okkar Fridda. Þessu fordæmi okkar ættu fleiri að fylgja. Gamli vinur, ég kveð þig með þökk fyrir samfylgdina. Að- standendum þínum er vottuð samúð. Jóhann B. Sveinbjörnsson. Friðrik Bogason var borinn og barnfæddur Seyðfirðingur, fæddist í sjóhúsi sem kallað var Gamla kompaníið. Í því var fiskverkun en á efri hæðinni var lítil íbúð sem foreldrar Friðriks, Bogi og Þórunn, leigðu á kreppuárunum. Hann ólst upp á Búðareyrinni og lék sér þar með „simmalingum“, sonum föðurbróður síns, og fleiri kraftmiklum strákum er uxu úr grasi innan um fjöllin sem girða botn fjarðarins. Á skólaárum sínum var Frið- rik í fimleikaflokki íþróttafröm- uðarins Björns Jónssonar í Firði sem var frumkvöðull í áhaldafimleikum á Íslandi og stjórnaði flokknum á Seyðis- firði frá 1939 þar til hann lést 1965. Eftir að hann settist að í Kópavogi og seinna Reykjavík hafði Friðrik alltaf gaman af því að ferðast um landið. Hann kom til Seyðisfjarðar á hverju sumri síðustu áratugina. Hann fór þangað yfirleitt um versl- unarmannahelgi og ferðaðist þá með fjölskyldu okkar. Hann fór aldrei aftur suður án þess að vera með nokkur box eða fötur af berjum í farteskinu, því hann var alltaf mjög duglegur í ber- jatínslu, eins og Þórunn móðir hans. Friðrik varð fyrir þungum áföllum þegar tveir synir hans kvöddu þennan heim langt fyrir aldur fram. Þeir sem þekktu hann dáðust að æðruleysinu og styrknum sem hann sýndi í sorginni. Hann var fróður maður, víð- lesinn og mikill bókagrúskari, hafði meðal annars áhuga á ættfræði og íslenskum þjóð- háttum. Hann var jafnframt laghentur maður og hjálpsamur við þá frændur sína sem fædd- ust með átta þumalputta. Friðrik var hógvær, barst ekki mikið á og sóttist ekki eft- ir hverfulum veraldarauði, mannvirðingum og hégóma. Engan skugga bar á góðan orðstír hans. Hann var sann- kallaður öðlingur og skildi að- eins eftir sig góðar minningar. Við kveðjum hann með söknuði. Jenna, Önnu, Báru, Elísa- betu, Grétu og Þorsteini vott- um við dýpstu samúð okkar. Bryndís, Þorsteinn, Kristrún og Bogi Þór. Friðrik Bogason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.