Morgunblaðið - 27.11.2014, Síða 73
MINNINGAR 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014
✝ Bylgja Helga-dóttir fæddist í
Ólafsvík 28. októ-
ber 1960. Hún lést á
heimili sínu 13. nóv-
ember 2014.
Foreldrar henn-
ar eru Helgi Sal-
omonson, f. 25.10.
1915, d. 22.7. 1981,
og Inga M. Freder-
iksen, f. 5.10. 1934.
Bylgja var næst-
yngst tíu systkina. Saman áttu
Helgi og Inga Öldu, f. 26.12.
1958, Báru, f. 7.7. 1962, d. 12.5.
2004. Hin systkinin eru, sam-
mæðra, Linda María Frederik-
sen, f. 27.1. 1954, og samfeðra,
Ragnheiður, f. 24.3. 1943, Er-
lingur, f. 12.5. 1944, Sigurjón, f.
15.3. 1947, Kristinn, f. 2.1. 1950,
Svavar, f. 12.8. 1951, Kristín, f.
24.12. 1954.
Bylgja Helga-
dóttir giftist Gísla
Karlssyni 1981, þau
slitu samvistum
1986, saman eiga
þau tvær dætur,
Rakel Gísladóttur,
f. 1.12. 1984, Anítu
Gísladóttur, f. 20.9.
1985, sonur Gabríel
Gísli Þórisson, f.
25.4. 2010, sam-
býlismaður Anítu er Ívar
Birschbach, f. 17.4. 1986.
Bylgja ólst upp í Ólafsvík til
tíu ára aldurs og flutti síðan til
Reykjavíkur með fjölskyldu
sinni. Hún stundaði ýmis störf
að loknu grunnskólanámi.
Útför Bylgju verður gerð frá
Háteigskirkju í dag, 27. nóv-
ember 2014, klukkan 15.
Með sárum söknuði kveð ég
þig, elsku dóttir.
Vegir skiptast – allt fer ýmsar leiðir
inn á fyrirheitsins lönd.
Einum lífið arma breiðir,
öðrum dauðinn réttir hönd.
Einum flutt er árdags kveðja,
öðrum sungið dánarlag,
allt þó saman knýtt sem keðja,
krossför ein með sama brag.
Veikt og sterkt í streng er undið
stórt og smátt er saman bundið.
Allt, sem á hjarta, ber í sér þrá
upp í söngvanna ríki;
herskarar drottins sálirnar sjá
syngjandi engla í líki.
Veikasta strengnum berst ómur af
upp til sólkonungs hallar;
rétt eins og lindir renna í haf,
raddir þar sameinast allar.
Hvað er ekki í einu ljóði falið,
einum söng frá góðu hjarta?
Já, allt, sem fagurt er,
skal vera talið
efst við dómsins hástól bjarta.
(Einar Benediktsson.)
Kveðja,
mamma.
Þeir sem guðirnir elska deyja
ungir segir máltækið, en það er
svo erfitt að sætta sig við að þessi
hjarthlýja systir er farin, og
hræðilegt að móðir okkar skuli
vera að kveðja aðra dóttur sína.
Bylgja var næstyngst okkar
tíu systkina. Það var oft mikið
fjör í Stekkjarholtinu þar sem við
stórfjölskyldan bjuggum og á ég
margar góðar æskuminningar
frá Ólafsvík. Síðan fluttum við
með foreldrum okkar til Reykja-
víkur og við tók nýr kafli í lífi
okkar, ungarnir flugu úr hreiðr-
inu hver á eftir öðrum og sköp-
uðu sitt eigið hreiður vítt og
dreift.
Bylgja hafði mikið dálæti á
dansi hér áður fyrr og var
„Grease“-dansinn æfður stíft
flest kvöld í Klúbbnum. Þær voru
ófáar helgarnar sem við skemmt-
um okkur þar.
Það var mikil gleðistund þegar
Gabríel litli, barnabarn hennar
fæddist og þreyttist hún aldrei á
að segja okkur hversu yndislegur
hann væri.
Það var alltaf mikið líf og fjör í
kringum Bylgju og stutt í hlát-
urinn en fyrst og fremst var hún
þekkt fyrir að vera hjarthlý og
góð persóna sem vildi allt fyrir
alla gera og mátti ekkert aumt
sjá.
Ég veit að hún er á góðum stað
núna og að pabbi, Bára systir og
Falí hafa tekið á móti henni.
Megi góði guð styrkja móður
okkar og dætur hennar á þessum
erfiðu stundum.
Eins og gullhörpuljóð,
eins og geislandi blær,
eins og fiðrildi og blóm,
eins og fjallalind tær,
eins og jólaljós blítt,
eins og jörðin sem grær,
lifir sál þín í mér,
ó, þú systir mín kær.
Þú varst mildi og ást
og þitt móðerni bar
við sinn líknsama barm
dagsins lifandi svar:
allt sem grét, allt sem hló,
átti griðastað þar
– jafnvel nálæð þín ein
sérstök náðargjöf var.
Hversu þreytt sem þú varst,
hvað sem þrautin var sár.
þá var hugur þinn samt
eins og himinninn blár:
eins og birta og dögg
vour bros þín og tár.
Og nú ljómar þín sól
bak við lokaðar brár.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Hvíl í friði, elsku systir.
Alda Helgadóttir.
Elsku Bylgja mín, ósköp er nú
sárt að sjá á eftir þér. Ég sakna
þín alveg óskaplega og það er
stórt tómarúm í hjarta mínu.
Ég veit að þér líður vel núna,
ástin mín, og að það hefur verið
tekið vel á móti þér. Knúsaðu afa,
Báru og alla hina frá mér. Við
hittumst í sumarlandinu góða
þegar minn tími kemur, þangað
til, taktu í spil og láttu afa spila á
nikkuna fyrir þig, njóttu þín
bara, ástin mín.
Fósturlandsins Freyja
fagra Vanadís,
móðir, kona meyja,
meðtak lof og prís.
Blessað sé þitt blíða
bros og gullið tár.
Þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár.
(Matthías Jochumsson.)
Þín ávallt elskandi,
Inga Helga,
Sigurður og börn.
„Þeir sem guðirnir elska deyja
ungir“ segir máltækið en það er
bara svo erfitt að sætta sig við
það. Elsku besta Bylgja mín, nú
ertu farin og það er ótrúlegt að
hugsa til þess á hverjum degi að
þú sért ekki með okkur lengur.
Síðustu dagar hafa verið mjög
svo þungbærir og söknuðurinn
mikill. Ég hef mig ekki ennþá í að
eyða nafninu þínu út úr símanum
mínum, þar stendur ennþá
„Bylgja frænka“. Það sem við
höfum ekki brallað saman í gegn-
um tíðina. Þau eru líka ófá spila-
kvöldin. Elsku Bylgja, ég get
endalaust rifjað upp gamlar og
góðar stundir með þér elskan
mín. Ég mun búa að þessum ynd-
islegu minningum um þig enda-
laust og um alla tíð. Sama hvað
bjátaði á hjá þér eða hjá einhverj-
um öðrum þá varstu alltaf sú
fyrsta til að bjóða fram aðstoð
þína þó svo að þú ættir nóg með
sjálfa þig. Ég er svo endalaus
þakklát fyrir að hafa heimsótt þig
og líka talað við þig í síma aðeins
nokkrum dögum áður en ég fékk
þessar slæmu fréttir. Nokkrum
dögum áður en þú kvaddir fór ég
með kápu til þín sem ég var ekki
að nota og þú varst svo glöð og
þakklát eins og alltaf og sagðir
„ástarþakkir, elskan mín“. Því
miður munum við ekki sjá þig í
kápunni, eins og hún klæddi þig
vel og þú varst flott í henni, elsk-
an mín.
Þú varst alltaf svo þakklát og
nægjusöm fyrir minnstu hluti og
kunnir svo vel að meta. Elsku
Bylgja mín, þú gerðir allt fyrir
alla þegar þú mögulega gast og
ég er svo fegin að hafa getað glatt
þig og gert þetta fyrir þig. Þegar
ég fór kvaddi ég þig með faðmlagi
og kossi eins og alltaf. Sem betur
fer kvöddumst við innilega og ég
er svo þakklát fyrir það. Ég sá að
nammiskálin var á borðinu með
drakúlamolum í sem þér þóttu
svo góðir og Freyju karamellur í
poka, alltaf þótti þér gott að hafa
nammi í skál „endilega fáðu þér,
elskan“, sagðir þú alltaf enda er-
um við miklir nammigrísir ég og
þú. Nú ertu komin til Helga afa,
pabba þíns sem þú alltaf sagðir
að vekti yfir þér og til Báru
frænku, systur þinnar sem þér
þótti svo endalaust vænt um.
Elsku Aníta og Rakel, missir
ykkar er mestur og megi góður
guð vera með ykkur og gefa ykk-
ur styrk og elsku Gabríel Gísli
yndið hennar ömmu sinnar,
amma mun nú fylgjast með þér
frá himnum.
Elsku amma, þú ert nú að
horfa á eftir dóttur í annað sinn
svo ég bið góðan guð um að
styrkja þig og elsku mömmu og
Öldu sem ekki eru bara að missa
systur heldur einnig góða vin-
konu.
Elsku Bylgja mín, ég elska þig
og mun gera um alla tíð, mikið
eru englarnir á himnum heppnir
að fá þig til sín, elsku orkuboltinn
minn og gleðigjafi, þú átt alla-
vega eftir að rústa þeim í kana
svo mikið er víst. Ég hef nú skrif-
að niður nokkur orð til minningar
um þig, elskan mín, og ég veit að
þú munt lesa þau yfir og segja
„Helga … hættu nú alveg.“ Mikið
vildi ég samt að ég hefði notið
nærveru þinnar lengur hér á
jörð. Ég ætla að kveðja þig eins
og ég kvaddi þig síðast „bless
elskan og við sjáumst“. Endalaus
ást á þig.
Verndi þig englar, elskan mín,
þá augun fögru lykjast þín.
Líði þeir kringum hvílu hljótt
á hvítum vængjum um miðja nótt.
Helga frænka.
Bylgja Helgadóttir
Fleiri minningargreinar
um Bylgja Helgadóttir bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Okkar elskulegi,
MAGNÚS B. BERGMANN,
Hlévangi,
áður Sólvallagötu 6,
Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi
föstudaginn 21. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 5.
desember kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Gunnar, Bjarni og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður, stjúpföður, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR V. FRIÐÞJÓFSSONAR,
fv. skrifstofustjóra við Háskóla Íslands.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
á hjúkrunarheimilinu Skjóli.
.
Jenný Ólafsdóttir,
Sigríður Sigurðardóttir, Jón Hörðdal Jónasson,
Ólöf Sigfríður Sigurðardóttir,
Sigurbjörg Sigurðardóttir, Þórir Jónsson,
Sigrún Jóns, Stefán Jakobsson
og barnabörn.
✝
Okkar ástkæru foreldrar, tengdaforeldrar, afi, langafi, amma
og langamma,
RÓSINKRANS KRISTJÁNSSON
Rósi,
leigubílstjóri
lést á hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn 7. nóvember.
SIGURLÍN ESTER MAGNÚSDÓTTIR
Edda,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 23. nóvember.
Útför þeirra fer fram frá Fíladelfíukirkju í dag,
fimmtudaginn 27. nóvember, kl. 13.00.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Grundar V3, fyrir alla ástúð
og frábæra umönnun.
Örn Sævar Rósinkransson, Helga Gunnarsdóttir,
Unnur Rut Rósinkransdóttir, Hörður Finnbogason,
Kristján Rósinkransson, Birgitta Þórey Pétursdóttir,
Linda Rósinkransdóttir, Nikulás Þorvarðarson,
Magnús Sverrisson, Ásta Ragnarsdóttir,
Jóhann Magni Sverrisson, Leidy Karen Steinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Við systkinin og fjölskyldur okkar þökkum
innilega fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR ÓLAFAR ÓLAFSDÓTTUR,
Tröllakór 1-3,
Kópavogi,
sem lést mánudaginn 13. október á Landspítalanum
í Fossvogi.
Útförin hefur farið fram.
Guðlaug S. Björnsdóttir, Þór Magnússon,
Guðjón Björnsson, Friðrika A. Sigvaldadóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför bróður okkar og mágs,
STEFÁNS ANTONS JÓNSSONAR,
Sjónarhóli,
Stokkseyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
Sigurjón Jónsson, Ólafía Kristín Jónsdóttir,
Steingrímur Jónsson, Jóhanna Erla Sigurþórsdóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞORKELL FJELDSTED,
Ferjukoti,
sem lést þriðjudaginn 18. nóvember,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju
laugardaginn 29. nóvember kl. 11.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag Borgarfjarðar.
Heba Magnúsdóttir,
Magnús Fjeldsted, Margrét Helgadóttir,
Heiða Dís Fjeldsted, Þórður Sigurðsson,
Elísabet Fjeldsted, Axel Eiríksson,
Björgvin Fjeldsted
og barnabörn.
✝
Faðir okkar,
BJÖRN JÓNATAN EMILSSON
arkitekt
og byggingatæknifræðingur,
er látinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Andrea Dögg Björnsdóttir,
Emil Björnsson,
Birgir Örn Björnsson,
Katrín Björnsdóttir,
Einar Björnsson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
LAUFEY GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hofstöðum,
lést fimmtudaginn 20. nóvember
á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi.
Jarðsungið verður frá Stykkishólmskirkju
laugardaginn 29. nóvember kl. 14.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og langömmubörn.