Morgunblaðið - 27.11.2014, Síða 86

Morgunblaðið - 27.11.2014, Síða 86
86 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014 Árni Matthíasson arnim@mbl.is Hvetjandi og fræðandi Læknirinn í eldhúsinu – Veislan endalausa bbbmn Eftir Ragnar Frey Ingvarsson. Sögur, 2014. 484 bls. innb. Eins og þeir vita sem séð hafa Ragnar í sjónvarpsþáttum hans þá er hann ræðinn og skemmtilegur og býður af sér góðan þokka og einnig er hann svo hvetjandi að áhorfandi fyllist sjálfstrausti og finnst hann geta eldað hvað sem er eftir að hafa horft á hann. Það skilar sér í bókum hans, var áberandi í bókinni Lækn- irinn í eldhúsinu sem kom út á síð- asta árin og ekki síður í þessari bók. Eitt af einkennum fyrri bókarinnar var hve mikla áherslu Ragnar lagði á uppskriftir sem kalla mætti klass- ískar og voru fyrir vikið ekki eins spennandi fyrir þá sem lengra voru komnir í fræðunum, þó að ýmislegt af því sem hann sagði frá í bókinni hafi verið, og sé, vissulega gagnlegt. Í byrjun deilir Ragnar ýmsum fróðleik með lesendum, líkt og hann gerði í fyrri bókinni, og fyrir vikið stendur þessi sjálfstæð, þetta er ekki framhald heldur ný bók á gömlum grunni. Uppskriftirnar eru eðlilega nýjar, en Ragnar hefur líka mjakað sér út úr klassíkinni yfir í framandlegri fæðu, ekki mjög langt reyndar, en það er ekki bara estra- gon og ansjósur, heldir líka sambak olek og sultaðar sítrónur. Myndirnar eru alla jafna af- skaplega vek heppnaðar, en lit- greiningin stundum út í móa – á bls. 108 er til að mynda frábær mynd sem kemur vel út, en á 104 eru lit- irnir arfaslæmir. Uppskriftirnar í bókinni eru for- vitnilegar og girnilegar að sama skapi, en það er býsna mikið af kjötréttum, með naut í aðal- hlutverki – obbi uppskrifta af aðal- réttum er kjötréttir. Að því sögðu þá er fiskur í hávegum, fjölmargar uppskriftir að fiskréttum og eins er uppskriftir að pastaréttum, ýmsu meðlæti, eftirréttum og svo má telja. Þetta er mikið bók að vöxtum og endalaust hægt að blaða í henni, hvort sem maður er að skoða upp- skriftir eða fræðast um hráefni og aðferðir. Eitt smálegt – gellur eru kverk- siginn á fiski, en ekki kinnarnar. Hráefni úr nándinni Sveitasæla – Góður matur – gott líf bbbbn Eftir Ingu Elsu Bergþórsdóttur og Gísla Egil Hrafnsson. Veröld, 2014. 246 bls. innb. Þau Inga Elsa Bergþórsdóttir og Gísli Egill Hrafnsson hafa sent frá sér hverja afbragðsbókina af ann- arri á síðustu árum, bækur sem eru sannkallað augakonfekt fyrir upp- setningu og framúrskarandi mynd- vinnslu. Þegar matreiðslubækur eru annars vegar skiptir þó mestu hvernig uppskriftirnar eru og skemmst frá því að segja að þær eru spennandi, girnilega og margar ævintýralegar – er hægt að biðja um meira. Líkt og í fyrri verkum leggja þau áherslu að sækja hráefni í nándina, grípa þar sitthvað sem manni hefði ekki dottið í hug að elda á þennan hátt og oft ekki dottið í hug að elda yfirleitt. Þannig eru í þessari af- bragðsbók uppskriftir með greni- toppum, fífilknúppum, skjald- fléttublómum og þara, svo dæmi séu tekin, að ógleymdu frábærlega freistandi blómasalati. Fjölmargt á maður eftir að prófa og búinn að prófa sumt, en aðallega fær maður þó í bókinni innblástur til eigin til- rauna eins og alla jafna í bestu upp- skriftabókum, til að mynda er kafl- inn um sjávargróður einkar forvitnilegur með fínni mynd af þeim þörungum sem koma við sögu í uppskriftunum. Reytingur af villum er í bókinni, vodkað vantar á einum stað (bls. 120), salt verður að söltum, sem er ekki í samræmi við málvenju, hundasúra er nefnd í uppskrift sem á væntanlega að vera túnsúra, dandelion (fífill) er svo skrifað (en ekki dandeleon) og svo kann ég bet- ur við ólífur en ólívur, enda er síð- arnefndi rithátturinn sjaldséður. Inngangstexti í köflum er líka þunnur sumstaðar, þó að hann sé víða bæði fræðandi og skemmti- legur. Yfirlit yfir nýútkomnar matreiðslubækur Klassískur bræðingur og hráefni úr nándinni Ljósmynd/Gísli Egill Hrafnsson Blómlegt Ýmsir réttir í Sveitasælu eru framandlegir þó að hráefnið sé fengið úr nágrenninu – til að mynda pikklaðir fíflaknúppar sem sjá má hér. Ljósmynd/Árni Torfason Girnilegt Ein af uppskriftunum úr Veislunni endalausu: Rósmarin-stjaksett langa með rauðlauk, hvítvíni og kirsjuberjatómötum. Í tilefni þess að 29. júlí sl. voru 800 ár liðin frá fæðingu Sturlu Þórðar- sonar standa Stofnun Árna Magnús- sonar í íslenskum fræðum, Háskóli Íslands og Óslóarháskóli fyrir al- þjóðlegri ráð- stefnu í Norræna húsinu sem hefst í dag og stendur til sunnudags. „Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem hafa áhuga á íslenskum mið- aldafræðum og þeim verkum sem Sturla skrifaði,“ segir Úlfar Bragason, rannsóknarprófessor á Stofnun Árna Magnússonar í ís- lenskum fræðum. „Stór hluti fyrirlesaranna kemur að utan, því eins og flestir vita þá eru íslensk miðaldafræði alþjóðleg fræði,“ segir Úlfar, en tuttugu fræði- menn flytja erindi á ráðstefnunni og eru lykilfyrirlesarar þau Theodore M. Andersson, fyrrverandi prófess- or við Stanford-háskólann, R.I. Moore, sagnfræðingur sem kennir við Newcastle-háskólann, og Ro- berta Frank, miðaldafræðingur og kennari við Yale-háskólann. „Sturlu verður jafnan minnst sem eins helsta skálds, rithöfundar og lögspekings á Íslandi á 13. öld. Sturla var hirðskáld Magnúsar laga- bætis Noregskonungs, sagði fyrir Hákonar sögu Hákonarsonar og Magnúss sögu lagabætis, tók saman eina gerð Landnámubókar og rakti í Íslendinga sögu, sem varðveitt er í Sturlungusamsteypunni, helstu róstur sem urðu á Íslandi á 13. öld,“ segir m.a. í kynningu á ráðstefnunni. Allar nánari upplýsingar um dag- skrá ráðstefnunnar má finna á vefn- um arnastofnun.is. Þess má að lok- um geta að aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Rétt er að geta þess að ráðstefnan fer fram á ensku. Matthías Johann- essen og Gerður Kristný taka þátt í setningu ráðstefnunnar í dag kl. 13 og Einar Kárason og Þorsteinn frá Hamri ljúka henni á laugardaginn kl. 16.15. silja@mbl.is Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdottir Úr Flateyjarbók Hákon Noregskon- ungur og Bárður jarl. Sturla ritaði. Alþjóðleg ráðstefna um Sturlu Þórðarson Úlfar Bragason
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.