Morgunblaðið - 27.11.2014, Side 92
FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 331. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Sá strax að úrið var falsað
2. Íslenskt tilfelli einstakt
3. Aftaka í Stokkhólmi
4. Eyþór aftur í Biggest Loser
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Rithöfundarnir Stefán Máni, Davíð
Stefánsson, Heiðrún Ólafsdóttir og
Bjarni Bjarnason ræða tengsl heim-
speki og skáldskapar í verkum sínum
í Stúdentakjallaranum í kvöld frá kl.
19.30. Erla Karlsdóttir, formaður Fé-
lags áhugamanna um heimspeki,
stýrir umræðunum og er viðburður-
inn á vegum félagsins. Á myndinni
sést Heiðrún Ólafsdóttir.
Morgunblaðið/Golli
Ræða tengsl heim-
speki og skáldskapar
Krafla leikur á
tónleikum djass-
klúbbsins Múlans
á Björtuloftum í
Hörpu í kvöld kl.
21. Krafla mun
einbeita sér að
vanræktum vinum
úr heimi djass-
bókmennta 6. og
7. áratugar síðustu aldar, skv. til-
kynningu. Kröflu skipa Jóel Pálsson,
Kjartan Valdemarsson, Þórður
Högnason og Matthías MD Hem-
stock.
Krafla sinnir van-
ræktum vinum
Verðlaunasýningin Jesús litli snýr
aftur á Litla svið Borgarleikhússins í
kvöld fimmta árið í röð. Sýningin var
frumsýnd 2009 og hlaut Grímuna
sem leikverk og sýning ársins á því
leikári. Sýningin er í huga
margra orðin ómiss-
andi hluti af jóla-
undirbúningnum,
en alls hafa tæp-
lega 18 þúsund
gestir séð sýn-
inguna á 82
sýningum.
Jesús litli snýr aftur
í Borgarleikhúsið
Á föstudag Suðaustan 10-18 m/s, hvassast með SV-ströndinni.
Rigning S- og V-lands, en annars úrkomulítið. Hiti 1 til 8 stig.
Á laugardag Suðlæg átt 10-15 m/s og rigning eða slydda, einkum
A-til. Vestlægari seinnipartinn og skúrir eða él. Hiti 0 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 5-8 m/s, bjartviðri og vægt frost
N-lands, þykknar upp í kvöld. Austan 8-15 syðra. Hiti 1 til 6 stig.
VEÐUR
Íslenskt íþróttafólk í ýms-
um greinum hefur nýtt sér
það í mörg ár að geta
vegna hæfileika sinna
komist á skólastyrk í
háskólanám í Bandaríkj-
unum og æft þar við
bestu aðstæður í mjög
samkeppnisvænu um-
hverfi. Nokkrar af helstu
vonarstjörnum okkar sem
íþróttaþjóðar ala manninn
í Bandaríkjunum nú og
gera það gott. »1-3
Mörg þeirra bestu
í Bandaríkjunum
Ísland mætir Ítalíu í afar mikilvægum
leik í undankeppni heimsmeistara-
móts kvenna í Chieti á Ítalíu í dag.
Ítalska liðið stendur vel að vígi eftir
að hafa sigrað Makedóníu tvisvar en
þessar þrjár þjóðir bítast um eitt
sæti í umspili. „Við sjáum á mynd-
böndunum að við erum
að fara í erfiðan leik og
þurfum að ná mjög
góðri frammistöðu til
að næla í sigur á úti-
velli,“ segir Ágúst Þór
Jóhannsson lands-
liðsþjálfari. » 4
Mikilvægur leikur
gegn Ítölum í dag
Íslandsmeistarar Snæfells og Keflavík
eru áfram efst og jöfn að stigum í
Dominos-deild kvenna í körfuknattleik
eftir að níundu umferð lauk í gær-
kvöldi. Snæfellingar skelltu botnliði
KR með 26 stiga mun í Stykkishólmi.
Á sama tíma lagði Keflavíkurliðið
Hauka, sem eru í þriðja sæti, 73:60, á
heimavelli sínum. Valur komst upp að
hlið Hauka með sigri á Hamri. »2
Snæfell og Keflavík
áfram efst og jöfn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Staða ljósmyndunar hefur breyst
mikið undanfarin ár. Stöðugt fleiri
eiga betri myndavélar og margir í
hópi leikmanna eru afbragðs ljós-
myndarar. Fagmennirnir benda
samt á, að vilji fólk fá fyrsta flokks
ljósmynd sé líklegra að hana sé að fá
hjá ljósmyndurum, sem hafa starfið
að atvinnu, en hjá áhugaljósmynd-
urum.
Erling Aðalsteinsson og Sigríður
Pálsdóttir, Silla, hafa rekið Ljós-
myndastofu Erlings á Eiðistorgi síð-
an 2006. „Þetta hefur gengið ágæt-
lega hjá mér en ljósmyndarar verða
alltaf að vera á tánum og með auk-
inni samkeppni verðum við að vekja
athygli á því sem við gerum umfram
áhugaljósmyndarana, sem margir
hverjir eru mjög góðir,“ segir hann.
„Greinin á undir högg að sækja,“
heldur Erling áfram og bætir við að
svipaða sögu sé að segja í öðrum lög-
vernduðum iðngreinum, eins og til
dæmis í hárgreiðslu. „Það geta allir
klippt og því er sótt að rökurum og
hárgreiðslufólki en yfirleitt er það
samt fólkið, sem starfar í greininni,
sem hefur vinninginn, þegar litið er
til gæðanna.“
Ljósmyndarar hafa þurft að að-
laga sig að aukinni og breyttri
tækni. Erling segir að menn reyni að
gera sitt besta í því efni og sjálfur
hafi hann að mestu hætt að taka
portrett-myndir á filmu 2005 og snú-
ið sér í staðinn að stafrænu
tækninni. Þegar vegabréfamynda-
tökur hafi verið ríkisvæddar 2006
hafi stórt skarð verið höggvið í
rekstur margra ljósmyndastofa og
margir hreinlega þurft að loka stof-
um sínum og hætta rekstri, einkum
úti á landsbyggðinni. „Þótt til
dæmis barnamyndir, fjöl-
skyldumyndir, stúdents-
myndir, brúðkaups-
myndir og ferming-
armyndir séu enn fastir póstar á
ljósmyndastofum er það liðin tíð að
fólk fái ljósmyndara til þess að taka
allar tækifærismyndir,“ segir hann.
Smábarnamyndir vinsælar
Erling segir að ljósmyndarar vilji
gjarnan gleymast og næsti maður
því fenginn til þess að taka myndir í
veislum og við ýmis önnur tækifæri.
„Við þurfum að bregðast við, svara
kröfum markaðarins og kynna fyrir
fólki hvað við erum að gera með því
að hafa myndir okkar sýnilegri,“
segir Erling. Hann nefnir að stöðugt
fleiri vilji til dæmis fá ljósmyndara
til að mynda börnin mánaðarlega á
fyrsta árinu. „Við segjum fólki hvað
við gerum, erum bæði með vefsíðu
og á fésinu, en þegar allt kemur til
alls er það orðsporið sem hefur mest
að segja.“
Orðsporið er mikilvægast
Ljósmyndarar
eiga undir högg
að sækja
Morgunblaðið/Golli
Ljósmyndarinn Erling Ó. Aðalsteinsson og Silla hafa rekið Ljósmyndastofu Erlings á Eiðistorgi síðan árið 2006.
Lárus Karl Ingason, formaður Ljós-
myndarafélags Íslands, segir að
félagið leggi áherslu á að viðhalda
góðu verklagi í ljósmyndun og
stuðla að bættri ljósmyndamenn-
ingu. Hann segir að sótt sé að
ljósmyndurum úr ýmsum
áttum. Tæknin hafi
verið afhent almenn-
ingi og þótt sam-
keppni sé af
hinu góða
skipti
neyt-
enda-
vernd miklu máli. „Auðvitað mega
allir taka myndir og selja myndir
úr sínu safni, en samkvæmt lögum
mega þeir einir taka að sér verk-
efni í ljósmyndun sem eru með til
þess tilskilin sveinsbréf,“ segir
hann. Í mennta- og menningar-
málaráðuneytinu liggur fyrir til-
laga um að afnema þessa lög-
verndun. „Það er mjög undarlegt
að ætla að gjaldfella námið með
einu pennastriki, því flestir þurfa
að fara í skóla til að læra til verka
og fá viðeigandi starfsleyfi,“ segir
Lárus Karl.
Neytendavernd mikilvæg
LJÓSMYNDARAFÉLAG ÍSLANDS ER FAGFÉLAG GREINARINNAR