Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 3
JÓLAÞORPIÐ SKREYTTLeikskólabörn Hafnarfjarðar eru í óða önn að skreyta jólatrén sem umlykja þorpið með fallegum hlutum sem þau hafa búið til. Leikskólabörn hafa skreytt Jólaþorpið frá upphafi, eða þau ellefu ár sem þorp-ið hefur risið.
M atreiðslumaðurinn Úlfar Fibjö
ELDAÐ MEÐ HOLTA HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast
með honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
20% afslÁTTUR um helgina
Ótrúlegt úrval af jólakjólum fyrir 12 ára og eldri
Jólakjólarnir komnir
hollur kostur á 5 mín.
PlokkfiskurSPIL
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013
Kynningarblað
Ævintýralandið, Besta
svarið, Spilin hjá Magna,
dýrasta skáksettið,
barnaleikir á netinu. ,
Ævintýralandið er alíslenskt spil sem byggist á þykj-ustuleik barna. Í spilinu
vinna allir saman og það er tilval-
ið fyrir fjölskyldur með börn á aldr-
inum 4 til 12 ára. Einn leikmaður er
stjórnandi leiksins. Hann er sögu-
maður í ævintýri en aðrir þátt-
takendur skapa og leika hver sína
söguhetju í því. Sögur eru dregn-
ar af handahófi og inn í þær flétt-
ast talandi dýr, spennandi fólk og
alls kyns hlutir sem sumir hafa yfir-
náttúrulega krafta.
Magnús Halldór Pálsson hefur
reynslu af spilinu og er afar ánægð-
É
að Áróra var í skýjunum. „Þar sem
móðir hennar er upptekin í skóla
höfum við Áróra spilað mikið tvö
saman og það þykir henni alveg
jafn gaman,“ segir Magnús sem
telur að Ævintýralandið geti haft
mjög þroskandi áhrif. „Mér finnst
sem þykjustuleikir Áróru séu orðn-
ir mun f lóknari og dýpri núna,“
segir hann.
Ein af mörgum jákvæðum hlið-
um spilsins að mati Magnúsar er
hvað það er sveigjanlegt. „Það er
ekkert mál að víkja út af reglum og
söguþræði. Þá tekur spilið heldur
ekki langan tíma Gert er ráð f i
Ímyndunaraflið fer á flug í Ævintýralandinu
Ævintýralandið er skemmtilegt fjölskylduspil fyrir fullorðna og börn. Magnús Halldór Pálsson hefur spilað Ævintýralandið með dóttur sinni Áróru, fjögurra ára. Hann segir spilið veita þeim feðginum góðar samverustundir auk þess sem það þroski ímyndunarafl þeirrar stuttu.Lífi
Svava Sigbertsdót
tir
einkaþjálf ri
ÞJÁLFAR NICOLE
SCHERZINGER Í
X FAKTOR 2
FÖSTUDAGUR
29. NÓVEMBER 2
013
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Föstudagur
26
3 SÉRBLÖÐ
Lífið | Spil | Fólk
Sími: 512 5000
29. nóvember 2013
281. tölublað 13. árgangur
SPORT Landsliðsþjálfarinn Heimir
Hallgrímsson fer yfir þjálfaraferilinn í
ítarlegu viðtali við Fréttablaðið. 56
LÍFIÐ
FRÉTTIR
Vill breyta tískuheiminum
til hins betra
Eva Dögg Rúnarsdóttir ræðir Amper-
sand, skólínu sem hún hannaði fyrir
Shoe the Bear og umhverfisvitund.
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
OPIÐ
TIL KL. 22.00
SVARTUR
FÖSTUDAGUR
25% AF
ÖLLUM VÖRUM
BARA Í DAG
MENNING Jóhanna Guðrún syngur
vinsælasta lag landsins með Baggalút
og segist geta djammað edrú. 62
Bolungarvík 0° S 9
Akureyri 1° SV 6
Egilsstaðir 0° SV 6
Kirkjubæjarkl. 4° SV 2
Reykjavík 4° SV 6
Hvasst V-til Í dag hvessir af suðvestri
með úrkomu sunnan- og vestanlands er
líða tekur á daginn. Hægari vindur og
minni úrkoma í öðrum landshlutum. 4
SKOÐUN Pawel Bartoszek leggur til
að fólk hætti að hata símana. 27
ORKUMÁL Fyrstu drög að frum-
varpi til laga sem ýta eiga undir
notkun á endurnýjanlegum orku-
gjöfum í samgöngum komu frá
Carbon Recycling. Fyrirtækið
framleiðir metanól sem nota má
sem íblöndunarefni í bensín.
„Við sendum að okkar frum-
kvæði þessar tillögur sem voru
byggðar á því hvernig þetta hefði
verið útfært í öðrum aðildarríkj-
um Evrópska efnahagssvæðisins,“
segir Benedikt Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar
Carbon Recycling.
Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið játar því í skriflegu
svari að fyrirtækið hafi haft frum-
kvæði að því að senda ráðuneytinu
frumvarpstexta, en hafnar því að
það hafi haft mikil áhrif á endan-
lega löggjöf. „Samanburður sýnir
að mikill munur er á texta þessa
tillögu skjals sem barst frá Carbon
Recycling og þess frumvarps sem
lagt var fram á Alþingi sex mán-
uðum síðar,“ segir í svari ráðu-
neytisins.
Lögin taka gildi um næstu ára-
mót og skylda seljendur eldsneyt-
is til að tryggja að minnst 3,5 pró-
sent af eldsneytissölu þeirra verði
af endurnýjanlegum uppruna.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda (FÍB), gagnrýnir
að ekki hafi verið leitað eftir form-
legu áliti félagsins við gerð frum-
varpsins. „Ef það er rétt að einka-
fyrirtæki hafi haft raunveruleg
áhrif á fyrstu drög þá er það eitt-
hvað sem á ekki að gerast.,“ segir
Runólfur. - hg / sjá síðu 4
Hagsmunaaðili samdi
fyrstu frumvarpsdrög
Fyrstu drög frumvarps um endurnýjanlegt eldsneyti komu frá Carbon Recycling, sem
á ríkra hagsmuna að gæta. Ráðuneyti segir mikinn mun á drögunum og lögunum.
Ef það er rétt að
einkaaðili hafi haft
raunveruleg áhrif á fyrstu
drög þá er það eitthvað
sem á ekki að gerast.
Runólfur Ólafsson
framkvæmdastjóri FÍB
FJARSKIPTI Fjarskiptafyrirtækin Vodafone, Síminn
og Nova munu frá og með þrettánda des-
ember bjóða upp á snjallsímana iPhone
5s og iPhone 5c milliliðalaust.
Hingað til hafa fyrirtækin keypt
símana í gegnum erlenda milliliði
en núna þarf þess ekki lengur
vegna samninga sem hafa verið
undirritaðir við Apple. Símarnir
verða því fáanlegir á Íslandi á svipuðum
tíma og í stærri löndum Evrópu.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun útsölu-
verð iPhone alls staðar lækka og getur sú lækk-
un numið allt að fimmtíu þúsund krónum.
Aðspurð segist Liv Bergþórsdóttir,
forstjóri Nova, vera mjög ánægð
með samninginn. „Við hjá Nova
höfum unnið að því um langt
skeið að ná þessum beina samn-
ingi við Apple og það er mikið
fagnaðarefni að það hafi nú tekist.“
- fb
Vodafone, Síminn og Nova geta frá 13. desember selt iPhone milliliðalaust:
iPhone lækkar um tugi þúsunda
SÍLDIN REKIN Í BURTU Landhelgisgæslan hóf í gær tilraunir með notkun hvellhetta, eða smásprengja sem kallast Thunderflash til að fæla síld úr Kolgrafafirði á
Snæfellsnesi. Smölun síldar með Thunderflash er aðferð sem var eitt sinn notuð við nótaveiðar en er í dag bönnuð. Vonir eru bundnar við að þessi aðferð virki við að koma
síldinni á hreyfingu og út úr firðinum en hún er gerð að frumkvæði Hafrannsóknastofnunar. FRÉTABLAÐIÐ/PJÉTUR
Ríkið aðstoði fólk í gjaldþrot
Félags- og húsnæðismálaráðherra
ætlar að leggja fram frumvarp um
ríkisaðstoð við fólk sem ekki stendur
undir kostnaði við að krefjast eigin
gjaldþrots. 4
Vilja vernda Laugaveg Ferðafélag
Íslands hefur sett á fót sérstakan
umhverfissjóð. 8
Faðernið kannað Hægt er að kaupa
á netinu einföld erfðapróf sem skila
niðurstöðu á vikutíma. 16
LÖGREGLUMÁL Starfsmenn
Reykjavíkurborgar, að lögreglu
ásjáandi, förguðu sönnunargögn-
um um hatursglæp á moskulóð í
Reykjavík.
Meðal sönnunargagna voru
blóði drifnar síður úr Kóraninum
og þrjú svínshöfuð.
„Við höfum ekkert í höndunum
til að rannsaka,“ segir Benedikt
Lund, lögreglufulltrúi hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Hann telur ólíklegt að frekar
verði aðhafst í málinu. - bj / sjá síðu 2
Sönnunargögnum var hent:
Hatursglæpur
ekki í rannsókn
BLÓÐI DRIFNAR BLAÐSÍÐUR Starfs-
menn borgarinnar förguðu sönnunar-
gögnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM