Fréttablaðið - 29.11.2013, Side 70

Fréttablaðið - 29.11.2013, Side 70
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 40 Havnakórið frá Færeyjum ásamt Sinfóníuhljómsveit áhugamanna flytur óratoríuna Messías í Langholts- kirkju sunnudaginn 1. desember klukkan 16. Stjórnandi er Ólavur Hátún. Einsöngvarar eru Hallveig Rúnars- dóttir, Sesselja Kristjánsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson og Ágúst Ólafsson. „Ólavur Hátún, sem er þessi stóri karakter í tón- listarlífinu í Færeyjum, hefur í tugi ára látið flytja til skiptis Jólaóratoríuna eftir Bach og Messías eftir Händel í Þórshöfn fyrir jólin,“ segir Hallveig Rúnars- dóttir spurð hvernig samstarf hennar og Havnakórsins hafi komið til. „Hann hefur alltaf fengið íslenska söngvara til liðs við sig og fyrir tveimur árum hafði hann samband við mig og bað mig að koma og syngja með kórnum í Messíasi. Ég tók því boði fagnandi og fór svo aftur í fyrra og söng með þeim í Jólaóratoríunni.“ Hallveig segir samstarfið við Havnakórið hafa verið hreint út sagt stórkostlegt. „Fólkið í þessum kór er alveg meiriháttar og alltaf mikil stemning. Ólavur ákvað síðan að heiðra þetta samstarf við íslenska söngvara með því að flytja kórinn hingað og halda eina tónleika hér í ár. Hann lítur á það sem sitt grand finale.“ Jón Stefánsson, organisti og kórstjóri í Langholtskirkju, fagnar þessari heim- sókn mjög. „Ekki er fjarri lagi að segja að Ólavur Hátún sé faðir færeyskrar tónlistarmenning- ar. Hann hefur stjórnað kórum, lengst af Havnarkórn- um, staðið fyrir kóramótum árlega með þekktum stjórn- endum víðs vegar að úr heiminum, staðið fyrir stofnun tónlistarskóla um allar byggðir Færeyja og verið óþreyt- andi að efla tónlistarmenningu í Færeyjum. Hinn rúm- lega áttræði eldhugi er ekki á því að leggja árar í bát og nú hefur hann stefnt kór sínum til Íslands til að flytja Messías.“ Einungis verður um þessa einu tónleika að ræða hér- lendis, en Messías verður síðan fluttur í Þórshöfn með sömu söngvurum seinna í desember. fridrikab@frettabladid.is Havnakórið fl ytur Messías eft ir Händel Færeyski kórstjórinn Ólavur Hátún kemur með Havnakórið í heimsókn til Íslands um helgina og Messías verður fl uttur í Langholts- kirkju á sunnudaginn með íslenskum einsöngvurum við undirleik Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna. ÓLAVUR HÁTÚN HALLVEIG RÚNARSDÓTTIR HAVNAKÓRIÐ Kórinn nýtur aðstoðar íslenskra einsöngvara við flutning Messíasar á sunnudaginn og í Færeyjum seinna í desember.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.