Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 10
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
NÁTTÚRA Stjórn Ferðafélags
Íslands hefur stofnað umhverfis-
sjóð til að byggja upp þjónustu og
vernda náttúru í Þórsmörk, Land-
mannalaugum og á hinni vinsælu
gönguleið þar á milli – Laugaveg-
inum.
Í fyrstu verður tekna aflað með
lágu gjaldi til viðbótar við far-
gjöld og gistingu. Eins er Ferða-
félagið að ganga frá samningum
við fimm fyrirtæki sem bakhjarla
sjóðsins.
Ólafur Örn Haraldsson, for-
seti Ferðafélagsins, býst við að úr
nokkrum milljónum króna verði að
moða strax í vor. „Síðan, árið 2015,
munum við taka upp umhverfis-
gjald sem verður fellt inn í okkar
sölu á gistingu og ferðum. Við
vonumst því til að sjóðurinn verði
verulega öflugur þegar fram líða
stundir,“ segir Ólafur.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
í vikunni þá er mat sérfræðinga að
30% af 90 kílómetra löngu stíga-
kerfi Þórsmerkursvæðisins séu
í slæmu eða afleitu ástandi. Eins
var greint frá því að tugir sjálf-
boðaliða, margir hverjir útlending-
ar, hafa unnið við uppbyggingu af
veikum mætti. Talið er að viðgerð-
ir á stígakerfinu taki um áratug –
með sama áframhaldi og að því
gefnu að starfsfé fáist til verksins.
Í stjórn umhverfissjóðs Ferða-
félagsins er stefnt að því að virkja
fulltrúa frá sveitarfélögunum á
svæðinu – Rangárþingi ytra og
eystra, Skaftárhreppi og Bláskóga-
byggð. Eins verður sóst eftir að fá
inn í stjórn fulltrúa frá Umhverf-
isstofnun og bakhjörlunum fimm,
sem áður voru nefndir.
„Stjórnin ákveður hvert fram-
lög renna, en fyrsta kastið er það
ætlunin að þessir peningar fari til
endurbóta á göngustígum og til
verndar umhverfisins almennt.
Einnig til bættrar þjónustu á
starfssvæði Ferðafélagsins,“ segir
Ólafur.
Ferðafélagið lagði Laugaveginn
á sínum tíma og á nokkra gisti-
skála sem varða veginn. Þórsmörk
er síðan hið eina sanna heimasetur
í huga margra félagsmanna.
„Laugavegurinn, með upphafs-
punkta í Landmannalaugum og í
Þórsmörk, er orðinn ein af tíu eft-
irsóttustu gönguleiðum í heimi
– ef horft er til upplýsinga frá
Lonely Planet og National Geo-
graphic. Uppbygging er því nauð-
synleg, ekki aðeins bætt þjónusta
heldur einnig að gætt sé að nátt-
úrunni. Það stendur engum nær
en Ferðafélaginu að fóstra það,“
segir Ólafur. svavar@frettabladid.is
Stofna umhverfissjóð
til verndar Laugavegi
Ferðafélag Íslands hefur sett á fót sérstakan umhverfissjóð. Tilefnið er náttúru-
vernd á starfssvæði félagsins – ekki síst við hina vinsælu gönguleið Laugaveginn.
Fimm fyrirtæki verða bakhjarlar sjóðsins. Sveitarfélögin verða virkjuð í stjórn.
Við von-
umst því til
að sjóðurinn
verði verulega
öflugur þegar
fram líða
stundir.
Ólafur Örn Haraldsson,
forseti Ferðafélags Íslands
Mótmælin
halda áfram
1TAÍLAND Yingluck
Shinawatra,
forsætisráðherra
Taílands, skoraði
í gær á mótmæl-
endur að hætta
nú við frekari
mótmæli gegn
stjórn sinni,
eftir að stjórnin
stóðst atkvæða-
greiðslu um van-
traust á þingi.
Mótmælendur
hafa hins vegar haldið ótrauðir áfram og leggja undir sig fleiri opinberar
byggingar, þar á meðal höfuðstöðvar lögreglunnar.
Átök í Kaíró
2EGYPTALAND Egypskar öryggissveitir beittu táragasi og vatnsþrýsti-byssum á mótmælendur, sem höfðu safnast saman fyrir utan háskólann
í Kaíró. Að minnsta kosti einn mótmælandi lét lífið. Mótmælendurnir lýstu
stuðningi við Múhamed Morsí, sem steypt var af forsetastóli í sumar og
hefur síðan setið í stofufangelsi. Stjórnvöld hafa heitið því að taka af fullri
hörku á öllum, sem virða ekki ný lög sem gera það refsivert að efna til
mótmæla án þess að hafa fengið til þess formlegt leyfi fyrirfram.
Hótar að bannfæra þingmenn
3GRIKKLAND Metropolitan Serafím, biskup af Píraeus í Grikklandi, hefur brugðist ókvæða við áformum grískra þingmanna, sem vilja leiða í lög
heimild til þess að samkynhneigðir gangi í hjónaband. Biskupinn hótar
að bannfæra alla þá þingmenn úr sínu biskupsdæmi sem styðja lögin. Svo
skoraði hann á kirkjuna til að kalla saman neyðarþing til að ræða þetta mál.
Dæmdur í lífstíðarfangelsi
4BRETLAND 24 ára breskur karlmaður hefur verið dæmdur í lífstíðarfang-elsi fyrir að myrða mann sem hann taldi vera barnaníðing. Lee James
myrti Bijan Ebrahimi í borginni Bristol í júlí og kveikti í líki hans. James
þarf að sitja inni í 18 ár hið minnsta, en annar maður, Stephen Norley, var
dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að aðstoða hann við að losa sig við líkið.
Rannsókn lögreglu á Ebrahimi leiddi hins vegar ekkert saknæmt í ljós. Hann
hafði verið sakaður um að mynda börn í nágrenni við heimili sitt.
DI
ORKUMÁL „Í Rúmeníu eru yfir
hundrað fjarvarmaveitur sem
nýta jarðefnaeldsneyti og þá aðal-
lega innflutt gas frá Rússlandi.
Þessi áætlun býður upp á einstakt
tækifæri fyrir samvinnu íslenskra
ráðgjafarfyrirtækja og rúmenskra
sveitarfélaga um að standa sam-
eiginlega að uppbyggingu hita-
veitna sem nýta jarðhita,“ segir
Jónas Ketilsson hjá Orkustofnun.
Hann fór fyrr í vikunni ásamt
Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, og
íslenskri sendinefnd á vegum Orku-
stofnunar, til Búkarest. Þar var svo-
kölluð Rondine-áætlun sett af stað,
en hún hefur verið í undirbúningi
hjá Orkustofnun frá árinu 2011.
„Við væntum mikils af sam-
starfi um jarðhita- og vatnsafls-
verkefni í Rúmeníu og áætlunin er
fyrsta skrefið í því þar sem hún
býður upp á tækifæri fyrir Rúm-
ena til að byggja hitaveitur,“ segir
Jónas. - hg
Áætlun um orkumálasamstarf kynnt í Búkarest:
Horft til jarðvarma-
verkefna í Rúmeníu
Í BÚKAREST Jónas Ketilsson flutti erindi um jarðvarmaverkefni í Rúmeníu.
MYND/ORKUSTOFNUN.
UPPBYGGING
Þúsund krónur eru
nefndar sem upp-
hæð umhverfis-
gjaldsins. Ef þeir
sem ganga Lauga-
veginn greiða það
gjald væru árlegar
tekjur sex til átta
milljónir króna.
MYND/HREINN ÓSKARSSON
HEIMURINN
1
3
2
4