Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 88
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 58
FÓTBOLTI Ryan Giggs hefur verið á
toppnum í fótboltaheiminum í meira
en tvo áratugi og ef marka má spila-
mennsku kappans í fyrrakvöld þá
er það nánast óskiljanlegt að velski
miðjumaðurinn hafi komið í heim-
inn 29. nóvember 1973.
Ryan Giggs fagnar fertugsaf-
mæli sínu í dag en hann er enn á
fullri ferð með aðalliði Manchester
United og bætir leikjamet félags-
ins í hvert skipti sem hann stígur
inn á völlinn. „Ég hef svo sem ekki
hugsað sérstaklega um þessi tíma-
mót. Þegar ég var stíga mín fyrstu
spor með liðinu þá sá ég menn eins
og Brucey og Robbo sem voru 33
og 34 ára gamlir. Mér fannst þeir
vera ævagamlir þá svo ég get varla
ímyndað mér hvað ungu strákarn-
ir halda um mig í dag,“ sagði Ryan
Giggs í viðtali við The Telegraph.
Hann er spurður út í fertugsaf-
mælisdaginn. „Þetta er nú bara
eins og hver annar dagur. Þeir
eru margir svona dagar eins og
afmælis dagar eða jól sem maður
eyðir á fótboltaæfingum. Ég mun
eyða jóladegi á hótelherbergi í Hull.
Ég löngu orðinn vanur þessu enda
búinn að standa í þessu í 22 ár,“
sagði Giggs.
Giggs hefur fengið ótal gull-
in tækifæri til að setja punktinn
aftan við magnaðan feril en hann
er ekki tilbúinn að segja nóg komið
þótt það þekkist varla í boltanum að
leikmenn spili á hæsta stigi og með
einu besta félagsliði heims á hans
aldri. Fyrir vikið hefur hann séð til
þess að mörg meta hans verða seint
bætt auk þess sem hann bætir við
nýjum metum á hverju ári.
„Ég veit ekki lengur hvað ég á að
segja um Ryan,“ sagði Wayne Roo-
ney eftir sigurinn á Bayer Leverku-
sen. Giggs hljóp yfir tíu kílómetra
í leiknum og aðeins tveir leikmenn
United-liðsins náðu því. Hann var
allt í öllu í leik liðsins á miðjunni
og þegar sumir tóku að þreytast
í þýska liðinu þá klóruðu þeir sér
örugglega í höfðinu yfir lungnaþoli
„gamlingjans“.
Ryan Giggs er óhræddur við að
láta heyra í sér í klefanum og miðl-
ar af reynslu sinni til yngri leik-
manna United-liðsins. Hann ræðir
þetta í fyrrnefndu viðtali í The
Telegraph.
„Ég verð enn þá reiður í búnings-
klefanum. Ég öskra á strákana og
ég er „kvartari“. Ef einhver gerir
mistök þá læt ég viðkomandi vita af
því. Það er hluti af mínu starfi og ég
vona að þessir strákar læri af því.
Það styrkti mig þegar Bryan Rob-
son gerði það við mig þegar ég var
yngri,“ rifjar Ryan Giggs upp.
Ryan Giggs var boðinn fyrsti
samningurinn hjá Manchester
United á 17 ára afmælisdaginn
þegar Manchester United hafði
ekki unnið enska meistaratitilinn í
að verða aldarfjórðung. Giggs átti
heldur betur eftir að bæta úr því.
Hann hefur nú unnið 35 titla með
félaginu, þar af varð hann enskur
meistari í þrettánda sinn síðastlið-
ið vor.
Giggs fékk íþróttahæfileika sína í
vöggugjöf frá föður sínum sem var
rúgbý-leikmaður. Það gat samt eng-
inn séð fyrir sér hversu lengi hann
héldi sér á toppnum. Það er magnað
að vera enn hjá sama félagi eftir 23
ár og það er enn magnaðra að hann
sé enn að berjast um sæti í byrj-
unarliði Man chester United þegar
hann dettur inn á fimmtugsaldur-
inn. Já, Giggs er fyrir löngu orðinn
eitt af undrum fótboltans.
„Fólk mun alltaf ræða aldur
Ryans en það getur enginn efast
um getu hans inni á fótboltavellin-
um. Hann er frábær og sýndi það í
kvöld í öllu sem hann gerði í leikn-
um. Hann átti nóg inni og er æðis-
lega fjölhæfur leikmaður,“ sagði
David Moyes, núverandi knatt-
spyrnustjóri, eftir 5-0 útisigur á
Bayer Leverkusen í fyrrakvöld.
Giggs spilaði þarna sinn 148. leik
í Meistaradeildinni en fyrr í vetur
bætti hann leikjametinu í deild
þeirra bestu við öll sem hann hefur
safnað að sér á stórkostlegum ferli.
„Hann er ótrúlegur og það er
jafnvel hægt að segja að hann
sé alltaf að verða betri. Yfirsýn-
in og sendingin í síðasta markinu
sem Nani skoraði var stórbrot-
in. Hann er líka í mögnuðu formi.
Ég er heppinn að fá að vinna með
honum,“ sagði Moyes, en hann réð
Ryan Giggs sem aðstoðarþjálfara
þegar hann tók við liðinu af Sir Alex
Ferguson.
„Manchester United hefur verið
fullkominn klúbbur fyrir mig,“
sagði Ryan Giggs einhvern tímann,
en það er hægt að segja á móti að
Ryan Giggs hafi verið fullkominn
leikmaður fyrir Manchest er United.
Hann er hvergi nærri hættur og er
opinberlega farinn að tala um að
spila þúsund leiki fyrir Manchester
United. Það þýðir bara eitt til tvö
tímabil í viðbót, sem ætti að gleðja
stuðningsmenn United sem elska
manninn nú nóg fyrir.
Ég mun eyða jóladegi
á hótelherbergi í Hull. Ég
er löngu orðinn vanur
þessu enda búinn að
standa í þessu í 22 ár.
Óskar Ófeigur
Jónsson
ooj@frettabladid.is
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN Ryan Giggs heldur upp á stóráfanga í dag. NORDICPHOTOS/GETTY
Fertugur og enn í fullu fj öri
Afmælisbarn dagsins er Ryan Giggs, sigursælasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Líklegt er að metin hans standi um
ókomna tíð. Hann er á sínu 24. tímabili með Manchester United og sýndi snilli sína enn á ný í stórsigri í Meistaradeildinni í vikunni.
Helstu titlar Ryan Giggs á ferli sínum með Manchester United
Enska úrvalsdeildinEnska bikarkeppnin Enski deildabikarinnMeistaradeildin Samfélagsskjöldurinn
ÁR
1993
1994
1996
1997
1999
2000
2001
2003
2007
2008
2009
2011
2013
ÁR
1993
1994
1996
1997
2003
2007
2008
2010
2013
ÁR
1999
2008
ÁR
1992
2006
2009
2010
ÁR
1994
1996
1999
2004