Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 36
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson,
sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
VILLIJURTIR
„Ég notaði aðalblá-
berjalauf, blóðberg,
einiber og birki-
lauf.“
Rúllupylsukeppnin, sem haldin er í samvinnu við Slow Food-sam-tökin, fór nú fram í annað sinn en
í fyrra fór keppnin fram í Króksfjarðar-
nesi. Þá fengu Strandamennirnir Matt-
hías Lýðsson og Hafdís Sturlaugsdóttir í
Húsavík fyrstu verðlaun fyrir léttreykta
rúllupylsu. Þau hjónin mættu fílefld til
keppni í ár með rúllupylsu sem heitir
því virðulega nafni Fjalladrottning, og
vörðu titil sinn með sóma.
Hafdís hefur nýtt slög í rúllupylsur
allan sinn búskap. „Ég hef yfirleitt gert
reyktar rúllupylsur og það var slík rúllu-
pylsa sem við fórum með í keppnina í
fyrra. Reyndar var hún bara léttreykt
þá því við vorum bara búin að kveikja
upp tvisvar þegar keppnin fór fram,“
segir Hafdís glettin en pylsan sló í gegn
og þótti mjög góð. „Í upphafi gerði ég
rúllupylsur svipaðar þeim sem mamma
gerði en hef síðan prófað mig áfram með
uppskriftir,“ segir Hafdís sem hefur mik-
inn áhuga á villtum íslenskum jurtum og
þær nýtti hún nú í Fjalladrottninguna.
„Í hana notaði ég eingöngu villtar ís-
lenskar jurtir sem krydd auk salts,“
segir Hafdís og telur upp þær jurtir sem
hún notaði í verðlaunarúllupylsuna.
„Ég notaði aðalbláberjalauf, blóðberg,
einiber og birkilauf.“ Fjalladrottningin
lagðist vel í dómarateymið sem Sverrir
Þór Halldórsson matreiðslumeistari
fór fyrir. „Villijurtabragðið kemur vel í
gegn og sérstaklega er blóðbergið yfir-
gnæfandi,“ segir Hafdís og bendir á að
timjanbragðið af blóðberginu eigi mjög
vel við lambakjöt.
Hjónin í Húsavík vinna mikið með
framleiðslu búsins. Þau eru með eigin
kjötvinnslu þar sem þau saga og pakka
lamba- og ærkjöti eftir óskum kaupenda.
Þá eru þau einnig í nýsköpun. „Við
bjuggum til Lostalengjur sem er aðalblá-
berjagrafið og aðeins reykt ærkjöt sem
einnig er þurrkað,“ lýsir Hafdís en afar
gott er að borða Lostalengjurnar hráar
sem forrétt.
Ellefu rúllupylsur kepptu um Íslands-
meistaratitilinn í Sauðfjársetrinu og
voru fæstar þeirra hefðbundnar. „Fólk
lét sannarlega hugmyndaflugið ráða,“
segir Hafdís en í öðru sæti varð rúllu-
pylsan Strandasæla, sem Jón Jónsson
aðstoðarmaður hjá Ferðaþjónustunni
Kirkjubóli á Ströndum hafði útbúið, með
sojasósu, rauðlauk og sveppum. Í þriðja
sæti varð rúllupylsan Ein með öllu sem
Jón Valur Jónsson og Dagrún Ósk Jóns-
dóttir á Kirkjubóli gerðu, en þau notuðu
hráan lauk og steiktan, tómat, remúlaði
og sinnep í sína rúllupylsu. Sú pylsa var
einnig valin sú frumlegasta í keppninni.
En munu hjónin í Húsavík mæta aftur
að ári til að verja Íslandsmeistaratitil-
inn? „Það er aldrei að vita, ef manni
dettur eitthvað nýtt og skemmtilegt í
hug,“ segir Hafdís glaðlega.
FJALLADROTTNING
Í FYRSTA SÆTI
KEPPNI Íslandsmeistaramót í rúllupylsugerð fór fram á Sauðfjársetri á Strönd-
um um liðna helgi. Hjónin í Húsavík urðu hlutskörpust annað árið í röð.
SIGURVEGARAR
Hafdís er hér fyrir miðju
með hinum sigurvegur-
unum á Íslandsmeist-
aramótinu í rúllupylsu-
gerð. MYND/STRANDIR
RÚLLUPYLSUKEPPNI Ellefu rúllupylsur voru skráðar til keppni en Fjalladrottningin, krydduð með íslenskum villijurtum, þótti bera af.
MYND/STRANDIR
Árlegt jóladagatal Norræna húss-
ins byrjar að telja niður dagana til
jóla á morgun, fyrsta sunnudag í
aðventu. Eftir það er opnaður nýr
gluggi á dagatalinu á hverjum degi
til 23. desember og gestir fá að
njóta atriðis í sal Norræna hússins.
Með jóladagatalinu er mark-
mið að bjóða upp á skemmtilega
en óvenjulega dagskrá í hádeginu
á aðventunni og gestir Norræna
hússins fá að kynnast fjölbreyttum
listviðburðum og uppákomum sem
fjalla ekki endilega um jól.
Jóladagatalið í ár var hannað af
listakonunni Söru Riel. Þemað er
loginn, lifandi ljós. Líkja má atrið-
um dagatalsins við ljósið í myrkr-
inu sem eykst í desember og er
ljósloginn kjarni jólahátíðarinnar.
Þeir sem stíga á svið í jóla-
dagatali Norræna hússins verða
Adda, Emilíana Torrini, Frímann,
Spilmenn Ríkínis, Hugleikur
Dagsson, Area of Stylez, Epla-
skífur & Jóga, Kór eldri borgara
í Neskirkju, Tónlistarskólinn
í Reykjavík, Klarínettukórinn,
Jóhanna Guðrún, Kór heyrnar-
lausra, Ólafur Stefánsson, Vil-
borg Arna Gissurardóttir, Selló
Stína, Kvartettinn Kvika, Spectr-
um, Jónína Leósdóttir, Kristín
Eiríksdóttir, Bellstop, Ósk-Hildur
og Steinunn (Mýragull) og Rapp-
stelpur, en þó ekki endilega í
þessari röð.
Jóladagatalið er öllum opið og
aðgangseyrir er enginn. Allir fá
óáfengt jólaglögg og piparkökur.
JÓLADAGATAL Í NORRÆNA HÚSINU
JÓLADAGATALIÐ 2013 Listakonan
Sara Riel á heiðurinn af jóladagatali
Norræna hússins í ár.
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
kopavogur@redcross.is redcross.is/kopavogur
Allur ágóði rennur til verkefna innanlands.
Rauði krossinn í Kópavogi heldur jólabasar laugardaginn
7. desember kl. 14-18 í Rauðakrosshúsinu Hamraborg 11,
2. hæð. Seld verða ýmis handverk sjálfboðaliða deildarinnar,
sauma- og prjónavörur, handgert jólaskraut ásamt öðru föndri.
JÓLABASAR
Rauða krossins í Kópavogi
7. desember
Heitt á könnunni!