Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 86
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 56
Almennilegur, hreinskil-inn og metnaðarfullur eru orð sem lýsa Heimi Hallgrímssyni ágæt-lega. Í vikunni var til-kynnt að tannlæknirinn
úr Vestmannaeyjum myndi stýra
karlalandsliði Íslands til jafns við
Svíann Lars Lagerbäck næstu tvö
árin. Að þeim tíma loknum mun
Heimir stýra skútunni í undan-
keppni HM 2018.
„Ég er að sjálfsögðu ákaflega
stoltur yfir því trausti sem mér er
sýnt. Þetta er samt ekki bara hrós
fyrir mig heldur ÍBV líka,“ segir
Heimir og ljóst að virðing hans
fyrir uppeldisfélaginu er mikil.
Heimir spilaði með ÍBV upp
alla yngri flokka en hætti þegar
hann gekk upp í 2. flokk.
„Ég var svo lítill á þeim tíma-
punkti. Hópurinn var fjölmennur
og ég sá engan tilgang í að vera
þarna. Við vorum bara með eitt
lið sem ég hefði aldrei komist í,“
segir Heimir, sem á svipuðum
tíma byrjaði að aðstoða Pólverj-
ann Gregor Bielatovic við þjálfun
yngri flokka.
„Okkur var safnað saman
nokkrum sem vorum taldir efni í
góða þjálfara. Forráðamenn ÍBV
vildu að við ynnum með Gregor.
Það kveikti hjá mér áhuga á þjálf-
un hvernig hann nálgaðist fót-
bolta.“ Heimir tók í kjölfarið vaxt-
arkipp og fór að spila aftur.
„Þá varð karlinn brjálaður því
hann sá að ég var betri en hann
hafði talið. Hann húðskammaði
mig fyrir að hafa hætt í eitt ár,“
segir Heimir og brosir.
Hélt að starfið væri hans 2011
Úr varð að Heimir spilaði með
hléum í áratug í meistaraflokki
ÍBV í stöðu miðvarðar ásamt því
að þjálfa. Hann stýrði kvennaliði
félagsins í fimm ár og karlaliðinu
sömuleiðis í fimm ár.
„Ég fékk alltaf stærra og
stærra hlutverk hjá ÍBV. Þeir
bjuggu mig í raun og veru til. Ég
verð þeim ævinlega þakklátur
fyrir að hafa haft trú á mér.“
Sumarið 2011 ákvað hann að
nóg væri komið og tilkynnti áður
en tímabilið var úti að hann yrði
ekki áfram hjá ÍBV.
„Það er erfitt að vera þjálfari í
Eyjum. Ég vildi gefa Eyjamönn-
um tíma til að finna nýjan þjálf-
ara og honum kost á að vera með
mér síðustu leikina og kynnast
félaginu,“ segir Heimir. Skömmu
síðar hringdi síminn. Geir Þor-
steinsson, formaður KSÍ, var á
línunni.
„Ég bjóst við því að ég væri að
fara að verða næsti landsliðsþjálf-
ari,“ segir Heimir og hlær. Geir
hafi tjáð honum að sambandið
væri í leit að erlendum þjálfara
og vildi Heimi sem hans aðstoðar-
mann.
„Þeir réðu mig áður en gengið
var frá ráðningu á aðalþjálfara,“
segir Heimir. KSÍ heyrði hljóðið í
Roy Keane og skömmu síðar var
nafn Lars Lagerbäck komið upp
á borðið. Heimir þekkti aðeins til
Svíans frá því Lagerbäck kenndi
honum í þrjá daga á þjálfaranám-
skeiði á Englandi. „Ég veit ekkert
hvort hann man eftir mér en ég
vissi vel hver hann var.“
Hefði endað illa
Síðan eru liðin tvö ár og karla-
landsliðið náði sínum besta árangri
frá upphafi. Liðið beið lægri hlut í
umspilsleikjum gegn Króötum um
laust sæti á HM á dögunum og eru
væntingar til liðsins miklar. Heim-
ir segist sjá það núna, eftir árin
tvö sem aðstoðarmaður Svíans, að
hann hafi ekki verið tilbúinn að
taka við landsliðinu fyrir tveimur
árum eins og hann taldi sig vera.
„Ég sé sjálfur núna að það hefði
aldrei gengið. Ég hefði haldið
áfram að þjálfa landsliðið eins og
ÍBV. Það hefði alltaf endað illa,“
segir Heimir. Hann nefnir sem
dæmi að hann hafi, sem þjálf-
ari ÍBV, lagt upp með að hafa
skemmtilegar æfingar þegar illa
gekk til að hressa hópinn við. Hjá
Lars sé hins vegar stöðugt unnið í
ákveðnum hlutum.
„Leikmenn vita að hverju þeir
ganga. Þeir ráða ekki neinu en vita
nákvæmlega hvað er að gerast í
íslenska landsliðinu.“ Mikilvægast
sé að leggja áherslu á grunnatriðin
á þeim skamma tíma sem landslið-
ið komi saman.
„Ég hefði örugglega farið í að
sýna hvað ég kann mikið á meðan
Lars, sem kann miklu meira en
ég, einbeitir sér að grunnatrið-
unum,“ segir Heimir af einskærri
einlægni. Hann segist hafa lært
margt af Lars og þá sérstaklega
hvernig hann vinni með atvinnu-
mönnum líkt og tilfellið er með
flesta okkar landsliðsmenn.
Erfitt að öðlast virðingu
„Ef þú skoðar söguna þá hefur það
ekki verið framaskref fyrir þjálf-
ara að taka við íslenska landslið-
inu,“ segir Heimir. Aðeins í undan-
tekningartilfellum hafi menn gert
eitthvað merkilegt eftir að hafa
gegnt starfi landsliðsþjálfara.
„Ég held að ástæðan sé sú að
við erum bara aldir upp í áhuga-
mannafótbolta. Það er dálítið erfitt
að öðlast virðingu atvinnumanna.“
Hann rifjar upp gagnrýni lands-
liðsmannsins fyrrverandi, Grétars
Rafns Steinssonar, á umhverf-
ið sem íslenskir landsliðsmenn
þyrftu að sætta sig við.
„Ég skil hvað hann átti við. Þó
að við séum Ísland, séum lítil þjóð
og höfum lítinn pening þá verðum
við að skapa þessum mönnum í
það minnsta svipaða umgjörð og
þeir eru vanir,“ segir Heimir. Lars
kunni þá list vel að skapa leik-
mönnum frelsi til að vera atvinnu-
menn í stað þess að setja reglur
líkt og þurfi stundum hjá íslensk-
um félagsliðum. Nefnir hann
morgunmat leikmanna sem dæmi.
„Það er ekki þannig að allir
þurfi að mæta á slaginu sjö heldur
mega menn mæta á bilinu átta til
tíu.“ Þannig geti þeir sofið lengur
sem vilja en aðrir vaknað snemma.
Æfing sé svo fljótlega í kjölfar
morgunverðar svo leikmenn geti
nýtt daginn í persónuleg erindi.
„Við reynum að hanna þetta
þannig að leikmennirnir geti verið
þeir sjálfir, notið þess að vera á
Íslandi og frjálsir.“
Lars lætur hrósið til annarra
Heimir er þakklátur fyrir árin tvö
sem aðstoðarmaður Lars Lager-
bäck. Þó hafi ekki komið til greina
af hans hálfu að vera áfram í hlut-
verki aðstoðarmanns.
„Ég er það metnaðarfullur að ég
ætla ekki að vera heimsins besti
aðstoðarþjálfari. Það kom aldrei
til greina af minni hálfu,“ segir
Heimir. Markmið
hans hafi verið
að læra sem mest
á árunum tveim-
ur og sjá svo
hvaða tækifæri
byðust í fram-
haldinu. „Ég er
kannski einn af
fáum þjálfurum
sem þarf ekki á
þessu að halda.
Ég er með gott
starf og alltaf
plan B. Ég er
heppinn að
því leytinu til
að ég get sagt
nei og á auðvelt
með það.“
Ekki hefur
farið fram hjá
þeim sem setið
hafa fundi með
þeim Heimi og
Lars að virðing þeirra
er gagnkvæm. Sví-
inn vísar spurningum
reglulega til Heimis og
bendir á að hann viti hitt
og þetta mun betur þrátt
fyrir reynslu þess sænska
á stóra sviðinu.
„Einn af mörgum kostum
Lars er að hann lætur þá
sem eru í kringum hann líða
vel,“ segir Heimir. „Á ákveðn-
um augnablikum, þar sem flest-
ir myndu taka hrósið til sín og
spenna sig upp, þá lætur hann
hrósið til annarra. Það er eitt-
hvað sem ég hef reynt að tileinka
mér og læra af honum.“
Eyjamaðurinn segir Lars
alltaf hafa látið sig hafa það á
tilfinningunni að þeirra vinna
væri fullkomin samvinna.
„Við veljum alltaf liðið
saman. Auðvitað höfum við
aðeins deilt en þá tökum við
rökræðu þar til við finnum
lausn. Hann hefur aldrei sagt:
„Nei, þetta verður svona!““
Töpum aldrei 5-0 á heimavelli
Heimir neitar að ljúka við-
talinu án þess að ræða um
samstarfsfólk sitt í lands-
liðinu.
„Það hefur verið alveg
stórkostlegt að vinna með
því,“ segir Heimir og
næst á dagskrá eru
stuðningsmenn-
irnir.
„Það er
alveg nýtt að
endurtekið sé uppselt á Laugar-
dalsvöll þegar landsliðið er að
spila hvort sem andstæðingur-
inn er Albanía eða Kýpur. Að fá
í kringum eitt þúsund manns til
Króatíu er algjör brandari,“ segir
Heimir. Hann segist stoltur af því
að hafa tekið þátt í því með stuðn-
ingssveitinni Tólfunni að bæði
fjölga stuðningsmönnum en einn-
ig bæta stemninguna. Aðspurð-
ur hvort hann hafi áhyggjur af
því að stuðningurinn hverfi um
leið og landsliðið steinliggi 5-0 á
Laugardalsvelli er Heimir fljótur
til svars:
„Í fyrsta lagi munum við aldrei
tapa 5-0 á Laugardalsvellinum,“
segir Heimir léttur en hugsar sig
svo aðeins lengur um. „Nei, ég
held að stemningin sé komin til að
vera. Ég gef mér það að uppselt
verði á Laugardalsvöll það sem
eftir er. Ég held að mikið þurfi
að ganga á til þess að stemningin
hrynji eftir þetta tap í Króatíu.“
Ég hefði haldið
áfram að þjálfa lands-
liðið eins og ÍBV. Það
hefði alltaf endað illa.
Það er einn annar
tannlæknir í Eyjum og ég
er sennilega að ganga af
honum dauðum.
Heimir Hallgrímsson
Tannlækni vantar í Vestmannaeyjum
Heimir er kvæntur Írisi Sæmundsdóttur, fyrrverandi landsliðskonu í knatt-
spyrnu, og eiga þau tvo syni, Hallgrím 17 ára og Kristófer 11 ára, sem eru
á kafi í fótbolta.
„Þau eru ákaflega stolt af því að ég sé í þessu starfi og hvöttu mig til að
taka það að mér,“ segir Heimir sem rekur tannlæknastofu í Eyjum. Hann
segir fjölskylduna orðna vana því að hann sé á kafi í þjálfun meðfram
tannlæknastarfinu. Hann er einn með stofu í Eyjum í augnablikinu.
„Ég var alltaf með tannlækni hjá mér en nú er hann farinn í sérnám.
Ég er í smávandræðum þessa stundina og vantar tannlækni til að leysa
mig af.“ Óvíst sé hvort hann þurfi að flytja stofuna upp á land en einhver
gæti ímyndað sér að nú hlakkaði í keppinautum á tannlæknamarkaðnum í
Eyjum. Heimir þvertekur fyrir það.
„Það er einn annar tannlæknir og ég er sennilega að ganga af honum
dauðum,“ segir Heimir og hlær. Hann telur þurfa að lágmarki tvo til þrjá
tannlækna á Eyjunni fögru til að halda úti góðri þjónustu.
„Það er oft talað um 1.200 manns á tannlækni. Kollegi minn yrði með
um 4.000 manns á meðan ég væri í burtu. Það er alltof mikið.“
Vildi ekki verða
heimsins besti
aðstoðarþjálfari
Heimir Hallgrímsson hefur lært mikið við hlið Lars Lagerbäck og er til-
búinn að stýra skipinu sjálfur eft ir tvö ár. Hann segir erfi tt fyrir áhuga -
þjálfara að öðlast virðingu atvinnumanna. Tannlæknirinn í Eyjum
gæti verið að setja kollega sinn á Eyjunni fögru í ómögulega stöðu.
Kolbeinn Tumi
Daðason
kolbeinntumi@frettabladid.is
TVEIR ÖFLUGIR
Heimir Hallgrímsson
með Gylfa Þór
Sigurðssyni eftir 2-1
sigur á Albönum.