Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 80
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 50
BAKÞANKAR
Kolbeins Tuma
Daðasonar
Myndbandið tekið
upp á einum degi
Hljómsveitin Hjaltalín frumsýndi nýtt myndband við lagið I Feel You af plötunni
Enter 4 í Kaldalóni í Hörpu. Myndbandið var tekið upp á einum degi í stúdíó 1
hjá Stúdíó Sýrlandi í Vatnagörðum og var meðal annars notast við tvö þúsund
lítra fi skabúr við gerð myndbandsins. Hjaltalín nýtti tækifærið í frumsýningar-
teitinu og tilkynnti að tónleikar yrðu í Eldborgarsal Hörpu um næstu páska.
ÞRUSUBAND Högni, Sigríður Thorlacius, Axel og Guðmundur í Hjaltalín. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÞRÍR FÉLAGAR Anton Smári Gunnarsson
kvikmyndatökumaður, Hörður Sveinsson,
leikstjóri myndbandsins, ásamt Snorra
Eldjárn og Steinþóri Helga Arnsteinssyni,
umboðsmanni Hjaltalín.
HEILLANDI Í HÖRPU Salome Rannveig
Gunnarsdóttir, Fylkir Birgisson og Guð-
mundur Úlfarsson.
GUL OG GLAÐLEG Grétar Amasin og Erla
María.
THE HUNGER GAMES 2 KL. 6 - 9 -10
NORTHWEST KL. 6 - 8
Miðasala á: og
PRINCE AVALANCHE
THE HUNGER GAMES 2
THE HUNGER GAMES 2 LÚXUS
THE COUNCELOR
CAPTAIN PHILIPS
FURÐUFUGLAR 2D
Ú ÓT RB 2D Í SL.TAL
KL. 5.50 - 8
KL. 4 - 5 - 6 - 8 - 9 - 11
KL. 5 - 8 - 11
KL. 8 - 10.30
KL. 10.10
KL. 3.30
KL. 3.30
NORTHWEST
THE PAST
THE HUNGER GAMES 2
PHILOMENA
CAPTAIN PHILIPS
HROSS Í OSS
KL. 10.45
KL. 5.15 - 10.15
KL. 6 - 8 - 9 - 11
KL. 5.45 - 8
KL. 8
KL. 6
DR. WHO 50TH
ANNIVERSARY SPECIAL
PARADÍS: VON
“IT COULD BE HIS BEST FILM
SO FAR” - THE GUARDIAN
THE BROKEN
CIRCLE BREAKDOWN
BESTA LEIKKONA Í
AÐALHLUTVERKI
TRIBECA 2013
SJÁ SÝNINGATÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
HUNGER GAMES 2 4, 6, 7, 9, 10
PHILOMENA 3:50, 5:50, 8
CARRIE 10:10
FURÐUFUGLAR 3:50 2D
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
S.B. - FBL T.V. - Bíóvefurinn.is
“ÞAÐ BESTA SEM HEFUR KOMIÐ
FRÁ HOLLYWOOD Í LANGAN TÍMA”
S.B. - FBL
5%
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
EMPIRE
EMPIRETOTAL FILM
M.S. WVAI RADIO
J.B – WDR RADIO
JOBLO.COM
ROLLING STONE
GQ
DEADLINE HOLLYWOOD
ENTERTAINMENT WEEKLY
VAR ÍSLENSKUR ÞINGMAÐUR Í INNSTA HRING WIKILEAKS?
MÖGNUÐ MYND SEM VAR TEKIN AÐ HLUTA TIL Á ÍSLANDI
Árin í Landakotsskóla
Ástæðan fyrir því að foreldrar mínir ákváðu að mér væri best borgið hjá
kaþólikkunum í Landakotsskóla var ein-
faldlega sú að skólinn var handan göt-
unnar. Auk þess hafði hann gott orð
á sér. Skóli þar sem maður þarf að
borga skólagjöld hlýtur að vera betri
en þar sem þau þekkjast ekki. Er
það ekki?
FAÐIR vorið var á sínum stað í
upphafi dags og frímínúturnar buðu
upp á fátt annað en eltingaleik á möl-
inni. Leika sér með bolta? Ekki mögu-
leiki. Krakkarnir sem hlaupa yfir
Landakotstúnið í frímínútum í
dag og fela sig í garði foreldra
minna vita ekki hve gott þau
hafa það.
ÞÓTT ég hafi komist stór-
áfallalaust í gegnum bekk-
ina sjö var það ekki þannig
hjá öllum. Margrét Möller,
sem nú er orðin landsþekkt,
kunni þá list best allra að
láta þeim sem leið illa líða
enn verr. Aðrir pössuðu sig
að sýna alltaf á sér sparihliðarnar þegar
sú þýska var nærri.
AUGLJÓST var að Margrét gekk ekki
heil til skógar og voru foreldrar upp til
hópa hálfsmeykir við hana. Hins vegar
datt engum í hug að kynferðisleg áreitni
og verri hlutir á sömu línu væri á meðal
þess sem á gekk. Hvað þá að hollenski
skólastjórinn séra Georg væri jafnilla inn-
rættur og síðar hefur komið í ljós.
ALLIR vissu að eitthvað mikið væri að en
gerðu lítið í því. Hverjum dettur í hug að
rukka skólagjöld á þann hátt að senda sjö
ára börn heim með tómt umslag mánað-
arlega? Hvaða kennarar bjóða útvöldum
börnum heim til sín en ekki öðrum? Og
baktala þá sömu? Hvers lags kennari býr
í skólanum? Er eðlilegt að foreldrar séu
smeykir við hann? Hvers konar skólastjóri
heldur slíkum kennara í vinnu?
Í einhverjum grunnskólum viðgengst
vafalítið háttsemi eins óeðlileg og í nunnu-
skólanum á sínum tíma. Vonandi hafa for-
eldrar barna í þeim skóla kjark til þess að
láta í sér heyra áður en það er um seinan.