Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 92
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 62
Sem umboðsmaður Hugleiks
Dagssonar ætla ég að sjálfsögðu á
uppistandið Djókaín í Háskólabíói
í kvöld. Á laugardagskvöldið er
mér boðið í risotto og kampavín
til vinkonu minnar sem er að flytja
heim frá Feneyjum.
Diljá Ámundadóttir, varaborgarfulltrúi,
framkvæmdastýra og umboðsmaður.
HELGIN
Benedikt Hermannsson, for-
sprakki sveitarinnar Benni Hemm
Hemm, spilar á stórri tónlistarhá-
tíð í Skotlandi, sem heitir Celtic
Connection og fer fram í janú-
ar. „Á hátíðinni er þjóðlagatón-
listarþema og munum við spila
með þekktum skoskum þjóðlaga-
hetjum,“ segir Benedikt. Nóg
er um að vera hjá Benedikt og
félögum, en sveitin sendir nú frá
sér sína fimmtu plötu sem ber tit-
ilinn Eliminate the Evil Relive the
Good Times. Platan er tekin upp
í Skotlandi. „Við tókum þetta upp
í pínulitlu hljóðveri í Glasgow.
Þetta er öðru vísi en hinar plöt-
urnar sem við höfum gert, aðeins
þyngra, aðeins meira myrkur yfir
þessu,“ segir Benedikt. Platan
var tekin upp á segulband, sem er
óvanalegt. „Þetta er allt öðru vísi.
Maður getur ekki tekið hverja
línu upp oft og skeytt því saman.
Maður þarf að gera þetta almenni-
lega,“ útskýrir Benedikt. - kak
Fer á svið með skosk um
þjóðlagahetjum
Benni Hemm Hemm gefur út sína fi mmtu plötu.
NÝ PLATA Benni kemur fram í Skot-
landi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þegar maður lifir á tónlistinni
er maður opnari fyrir alls konar
verkefnum,“ segir söngkonan
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, sem
hefur verið ansi sýnileg undan-
farið á hinum ýmsu viðburðum,
einnig syngur hún vinsælasta
lag landsins um þessar mundir.
„Ég drekk ekki, það fer nú eftir
því hvernig fólk túlkar það að
djamma. Ég djamma alveg edrú,“
segir Jóhanna Guðrún létt í lundu
spurð hvort textinn eigi við hana.
Lagið, Mamma þarf að djamma,
eftir Baggalútsmenn, er orðið að
nokkurs konar þjóðsöng og ákaf-
lega vinsælt um þessar mundir.
„Þetta er hressandi og skemmti-
legt lag en ég bjóst nú samt ekki
við því að það yrði svona rosa-
lega vinsælt.“ Jóhanna Guðrún
segir það hafa verið mjög gaman
að vinna með Baggalútsmönnum.
„Þeir eru rosalega skemmtilegir
og hæfileikaríkir.“
Hún kemur mikið fram með
hljómsveitinni um þessar mundir.
„Ég kem mikið fram með þeim á
næstunni, á alls kyns skemmtun-
um og mannfögnuðum.“
Jóhanna Guðrún hefur einn-
ig talsvert komið fram á dans-
leikjum undanfarið. „Ég söng
aldrei á böllum hérna áður fyrr,
enda er ég bara 23 ára gömul, en
núna hef ég gert svolítið af því og
finnst það rosalega gaman. Oftast
er hringt í mig þegar það vantar
söngkonu á dansleiki og ég kem þá
inn og tek nokkur lög.“
Jóhanna Guðrún er ásamt kær-
astanum sínum, Davíð Sigurgeirs-
syni, nú að grúska í efni sem gæti
litið dagsins ljós á næsta ári.
- glp
„Ég djamma alveg þó ég sé edrú”
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir syngur vinsælasta lag landsins um þessar mundir.
ÚT UM ALLT Jóhanna Guðrún Jóns-
dóttir syngur vinsælasta lag landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Daníel Páll Jónsson fór nýstárlegar leiðir
í heilsuátaki sem hann fór í fyrr á árinu.
Hann notaði Facebook til að hjálpa sér og
keypti sér ekki líkamsræktarkort til þess
að breyta um lífsstíl. Daníel hefur nú lést
um 46,8 kíló og hefur einnig létt mikið á
sér andlega.
„Ég notaði Facebook sem aðhald. Ég
setti inn myndir af mér vikulega og var
í keppni um að vera léttari í hverri viku,
svo árangurinn myndi sjást. Ég ákvað að
vera ekki með öfgakennt mataræði, ég
tók í raun enga sérstaka fæðutegund út,
bara minnkaði skammtana og borðaði
hægar,“ útskýrir Daníel. Daníel segist
hafa notað afar náttúrulegar leiðir.
„Ég notaði ekki neinar brennslutöfl-
ur eða fæðubótarefni. Ég borðaði bara
venjulega fæðu en passaði upp á hitaein-
ingafjölda og kynnti mér næringarinni-
hald mjög vel.“ Daníel hefur oft reynt að
fara í átak en aldrei gengið eins vel og nú.
„Ég var kominn með kæfisvefn og
þetta var farið að hafa ýmiss konar sál-
ræna og líkamlega kvilla. Ég var í raun
búinn að ná botninum. Þegar líkamlegt
ástand hamlar svefni er stutt í andlega
erfiðleika. Ég var kominn með kvíða og
leið ekki vel. Ég þurfti einfaldlega að
taka mig á. Ég hafði ekki um neitt annað
að velja og eftir átakið eru þessir kvillar
algjörlega á bak og burt.“ Hann valdi að
fara sínar eigin leiðir í átakinu.
„Ég vildi ekki vera bundinn við að
fara í líkamsræktarstöðvar í ákveðna
tíma og vera bundinn þannig. Ég ákvað
því að fara í mikið af gönguferðum. Ég
tók strætó í vinnuna og gekk alltaf heim
og um helgar fór ég í langa göngutúra
sem gerðu mikið fyrir líkama og sál. Ég
byrjaði að ganga því ég gat ekki hlaupið,
ég var búinn að rústa öðru hnénu vegna
ofþyngdar.“
Daníel finnur skiljanlega mikinn
mun á sjálfum sér, enda tæplega
fimmtíu kílóum léttari.
„Ég er farinn að geta stund-
að útivist, hlaupið og farið á
rjúpnaveiðar. Ég er farinn
að geta gert hluti sem ég gat
ekki gert áður. Tilfinning-
in er alveg hreint frábær.“
Hann segir að fólk þurfi
að finna það hjá sjálfu sér
hvað virkar fyrir það, vilji
það grennast.
„Ef ég ætti að ráð-
leggja fólki eitthvað þá
er það að borða einfald-
lega minna og minnka
skammtana, borða
hægar og vakta árangur-
inn vel. Lítil smáatriði
eins og að missa nokkur
kíló eða geta þrengt belt-
ið geta skipt miklu máli í
að styrkja mann í svona
átaki. Ég leyfði mér
alveg helling en hreyfði
mig mikið í staðinn.“
Hann segir lífið ekki alltaf
hafa verið auðvelt á meðan á
átakinu stóð.
„Þetta var erfitt, ekki spurn-
ing. Svona átaki fylgja skapsveifl-
ur. En þetta var svo sannarlega
þess virði.“
kjartanatli@frettabladid.is
GOTT GRAF Hér sést þróun kílóamissisins. MYNDIR/EINKASAFN
Missti tæp fi mmtíu kíló
með hjálp Facebook
Daníel fékk nóg af því að vera of þungur og breytti um lífs stíl. Hann not aði
Facebook til að hjálpa sér og setti myndir af sér inn á síðuna í hverri viku. Í dag er
hann tæplega fi mmtíu kílóum léttari og getur gert hluti sem hann gat ekki áður.
ÞVÍLÍKUR
MUNUR
DANÍEL
HEFUR
LÉST UM
46,8
kíló á 46 vikum
Ég var
kominn með
kæfisvefn og
þetta var farið
að hafa ýmiss
konar sálræna
og líkamlega
kvilla.“
GEYSIVINSÆLIR
GOÐHEIMAR
MYNDASÖGUR SEM KÆTA OG
FRÆÐA, KYNSLÓÐ EFTIR KYNSLÓÐ!