Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 42
FRÉTTABLAÐIÐ Hönnun og aðventan. Dúkkubörn. Eva Dögg Rúnarsdóttir. List og jólasveinar. Breki skartgripir. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
4 • LÍFIÐ 29. NÓVEMBER 2013
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ
AÐ GERA Í TILEFNI
AÐVENTUNNAR?
„Ég er sko svaka jólastelpa. Ég
set upp ljós og set oftast saman í
aðventu krans. Annars finnst mér að-
ventan komin þegar Frank Sinatra er
byrjaður að syngja jólalögin í stof-
unni minni við flöktandi kertaljós. En
hann kemur reyndar aldrei í eigin
persónu … en það má vona.“
Það eru komin ljós í gluggana og
kertin loga af gömlum vana hvert
kvöld og ég ætla að draga heima-
smíðað jólatré frá því í fyrra upp úr
kjallaranum um helgina. Ég er í bana-
stuði yfir þessari fornu hefð og við
fjölskyldan höldum Guði og trúar-
brögðum utan við hátíðina. Jólin í ár
eru merkileg fyrir mig því mér hlotn-
aðist sá heiður að vera hluti af appa-
rati sem við köllum Jólafólin. Þar verð
ég ásamt meistara Megasi og gítar-
istanum Kristni Árnasyni. Við munum
halda tónleika á nokkrum vel völdum
stöðum nú fyrri hluta desem ber
og erum öll á sömu blaðsíðu hvað
viðkemur jólunum. Við litla fjölskyld-
an höldum síðan til New York til að
eyða jólunum með góðum vinum
okkar sem þar búa. Góðgerðarmál
eru mér einnig ofarlega í huga
þessi jól. Ég held við ættum að
muna að sælla er að gefa en að
þiggja og ég skora á fólk sem ekki
þekkir þá tilfinningu að láta til skar-
ar skríða í góðgerðarmálum þessi
jól, því það færir andann og ham-
ingjustuðulinn yfir á annað stig.
Gleðileg jól.
Ég er reyndar búin að vera að hlusta
á jólalög allan nóvember þar sem ég
var að búa til handrit að Hátíðarstund-
inni sem verður sýnd núna í desember
á Stöð 2. Við erum nýbúin að taka upp
þættina þannig að í þeim er ég búin
að setja saman og skreyta piparköku-
hús, skreyta jólatré, borða hátíðarsteik-
ina og syngja jólalög. Ég fæ því stóran
skerf af jólahátíðinni þetta árið því há-
tíðin sjálf er rétt að ganga í garð svona
samkvæmt dagatalinu. Heima hjá mér
er ég þó búin að skreyta örlítið, búa til
jólaskraut úr trölladeigi með börnunum,
búa til aðventukrans, baka smákökur
og borða þær.
Ágústa Eva Erlendsdóttir,
leikkona, tónlistarkona og
Mjölnismær
Friðrika Hjördís Geirsdóttir,
stjörnukokkur
Sesselja Thorberg/ Fröken
Fix, innanhússhönnuður.
M
agnea Einarsdótt-
ir var í fornámi í
hönnun og myndlist
í Myndlistarskól-
anum en sótti á er-
lendar slóðir. Hún fór til Parísar
og lærði í Parsons í eitt ár og út-
skrifaðist sem fatahönnuður í
fyrra frá Central Saint Mart-
ins í London. „Ég sérhæfði mig
í prjóni og þegar ég sótti um í
Saint Martins var mér boðið að
sérhæfa mig og mér leist mjög
vel á það,“ segir Magnea Ein-
arsdóttir fatahönnuður. „Línan
sem ég var að gera núna er beint
framhald af útskriftarlínunni
minni en hún verður seld í dömu-
deildinni í JÖR í desember. Þetta
er eina íslenska merkið þar.“ Í
fyrravetur tók Magnea þátt í
fatahönnunarkeppni á vegum ít-
alska Vogue og lenti í öðru sæti. Í
kjölfarið fékk hún góða kynningu
og var boðið að taka þátt í tveim-
ur sýningum, á Brighton-tísku-
vikunni í London og tískuviku á
Spáni. Flíkurnar fengu óskipta
athygli á sýningunum og ákvað
Magnea að þróa línuna frekar
og láta framleiða á Íslandi. „Það
var svolítil áskorun að nota ís-
lenska ull og ég var ekkert sér-
staklega hrifin í byrjun en þetta
bara virkaði sem var svo gaman.
Ég gerði útsaumaða ullarkjóla,
blandað saman við gúmmí og
ýmis prjónamynstur. Ég er búin
að vera rosalega góð við ullina og
mýkja hana vel upp,“ segir Magn-
ea. Aðspurð um markhópinn seg-
ist hún sjá fyrir sér konur á aldr-
inum 20-45 ára. „Þetta er töffara-
leg prjónalína og ég vil að fólk
hugsi öðruvísi um prjón þegar
það sér vörurnar mínar.“
TÍSKA ÍSLENSK
DÖMULÍNA ÚR
ULL OG GÚMMÍI
Magnea Einarsdóttir fatahönnuður hefur sérhæft sig
í ullarlínu sem verður fáanleg í JÖR í desember.
Ullarlínan er
kvenleg og töff-
araleg í senn.
Magnea Einarsdóttir er spennt að fá línuna sína í verslunina JÖR á Laugavegi.
MYND/DANÍEL
MYNDIR ALDÍS PÁLSDÓTTIR