Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 24
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 22
Í Hlíðarskóla í Skjaldarvík rétt
norðan við Akureyri geta nem-
endur valið hvað þeir gera í tvær
kennslustundir á hverjum degi,
eina stund fyrir hádegi og aðra
eftir hádegi.
Nemendur, sem eru 20, velja
á föstudegi fyrir vikuna fram
undan úr fjölbreyttu framboði
viðfangsefna, að sögn Bryndís-
ar Valgarðsdóttur, skólastjóra
Hlíðarskóla sem er sérskóli fyrir
nemendur með hegðunar- og til-
finningavanda. „Hver kennari
fær nýja stundatöflu á hverjum
mánudegi og hann þarf að vera
viðbúinn því að fá frá einum upp
í 20 nemendur í kennslustund til
sín. Þetta verkefni, sem við köll-
um Flugið, er nú á þriðja ári og
getur reynt á en enginn kenn-
ari vill bakka út úr þessu. Við
sjáum öll plúsana og höldum að
við séum á réttri leið.“
Bryndís segir nemendur oft
vera búna að missa sjálfstraust
og vera með lélega sjálfsmynd
þegar þeir koma í Hlíðarskóla
en nú eru þar nemendur í 4. til
10. bekk. „Börnin upplifa að það
sé alltaf verið að ráðskast með
þau og að þau hafi enga stjórn
á umhverfinu. Þegar þau koma
til okkar er búið að reyna allt til
þrautar í grunnskólanum þeirra.
Þau þurfa að læra ákveðnar
námsgreinar hjá okkur en mörg
eru búin að missa mikið úr skól-
anum óháð námsgetu. Það kemur
fyrir að áttundu og níundu bekk-
ingar séu varla læsir. Ef börnin
fá að hafa sjálf eitthvað um það
að segja hvað þau gera geta þau
fengið löngun til að læra og trúa
á sjálf sig.“
Ákveðið var að hafa íslensku
og stærðfræði meðal valgreina
í tilraunaskyni. „Það sem hefur
sannfært mig mest um að við
séum á réttri leið er sú stað-
reynd að miðstigsstrákar sem
eru sumir miklir töffarar hafa
verið að sækja í stærðfræði og
velja hana sjálfir. Ég spurði einn
hvers vegna hann gerði það og
hann sagðist bara vera svo fjári
lélegur í henni að hann yrði að
gera eitthvað í því. Kennari sem
heldur aðallega utan um stærð-
fræði segir að það sé afgerandi
munur á hugarfari nemenda eftir
því hvort þeir koma í stærðfræði
í valinu eða samkvæmt stunda-
töflu þótt þeir læri af sömu bók-
inni. Við sjáum að börnin eru
orðin glaðari. Við spyrjum þau
í hverri viku um viðhorf þeirra
og þau segja að það hafi verið
gaman. Á tveimur árum erum
við búin að bjóða upp á 180 val-
möguleika sem ellefu starfsmenn
hafa sinnt.“
Að sögn Bryndísar vinnur
skólinn ekki bara með nemend-
um heldur einnig foreldrunum.
„Þetta er eini skólinn sem vinn-
ur út frá heildinni. Við lítum svo
á að foreldrarnir þurfi líka hjálp.
Tveir af starfsmönnunum ell-
efu, félagsráðgjafi og sálfræð-
ingur, vinna eingöngu með for-
eldrunum. Þeir eru styrktir í að
taka öðru vísi á málum og breyta
mynstrinu sem myndast hafði
heima fyrir.“
Kveikjan að verkefninu var
aðferð sem reynd var í Lauga-
skóla í Reykjadal sem er fram-
haldsskóli. „Okkur leist vel á það
sem verið er að gera með krakka
sem koma þangað í 1. bekk,“
segir Bryndís.
Hún kveðst fullviss um að allir
skólar getið farið þá leið sem
farin er í Hlíðarskóla. „Grunn-
skólinn á Bakkafirði er að byrja
að þróa svona verkefni. Ég er
ekki í vafa um að þetta er eitt-
hvað sem skiptir máli. Þetta
er óskaplega spennandi leið.“
ibs@frettabladid.is
Val á námsgreinum
eykur sjálfstraustið
Börn sem upplifa að alltaf sé verið að ráðskast með þau verða glaðari þegar þau fá
að hafa eitthvað um það að segja hvað þau læra, segir skólastjóri Hlíðarskóla.
Ég er
ekki í vafa
um að þetta
er eitthvað
sem skiptir
máli. Þetta
er óskaplega
spennandi leið
Bryndís Valgarðsdóttir
skólastjóri
Í HLÍÐARSKÓLA Starfsfólk og nemendur vinna í efna- og eðlisfræði með þurrís sem m.a. er notaður til að búa til ís úr jógúrti.
Nemendur eru að meðaltali eitt til þrjú ár í Hlíðarskóla.
Ísland er í þriðja sæti
þegar borin er saman heil-
brigðisþjónusta í 34 Evr-
ópulöndum. Ísland er jafn-
framt eina landið sem
hlýtur hæstu einkunn fyrir
árangur meðferðar í öllum
tíu sjúkdómaflokkunum
sem skoðaðir voru.
Í frétt á vef landlækn-
is er greint frá niður-
stöðum Health Consumer
Powerhouse þar sem notaðir eru
42 gagnreyndir mælikvarðar við
mælingar á gæðum heil-
brigðisþjónustu. „Þetta eru
mjög ánægjuleg tíðindi, að
við skulum halda þriðja
sætinu sem við vorum í. Við
erum efst Norðurlandanna
á eftir Hollandi og Sviss,“
segir Laura Scheving Thor-
steinsson, verkefnisstjóri
hjá landlækni. Hún segir
að niðurstöður þessara
mælinga séu sérstaklega
ánægjulegar með tilliti til þeirra
þrenginga sem hér hafa verið.
Hún getur þess að í greinargerð
Health Consumer Powerhouse sé
vakin athygli á því að þrátt fyrir
gríðarlegar efnahagsþrengingar
hafi Íslandi tekist að halda óbreytt-
um gæðum í heilbrigðisþjónustu
og haldið þriðja sætinu þau ár sem
landið hefur verið með í saman-
burðinum.
EHCI-vísitalan hefur orðið að
staðli fyrir mælingar á nútíma-
heilbrigðisþjónustu síðan hún var
fyrst kynnt árið 2005. Vísitalan er
reiknuð út frá opinberum gögn-
um, könnunum meðal sjúklinga og
sjálfstæðum rannsóknum sænska
fyrirtækisins Health Consumer
Powerhouse Ltd. Vísitalan mælir
gæði heilbrigðisþjónustu í Evrópu
og Kanada og er þannig mikilvægt
tæki til valdeflingar fyrir sjúklinga
og neytendur. - ibs
Mælingar sænska fyrirtækisins Health Consumer Powerhouse á gæðum heilbrigðisþjónustu:
Heilbrigðisþjónusta hér í þriðja sæti í Evrópu
Vísindamenn frá Bandaríkjun-
um og Mexíkó hafa fundið leifar
af chili í fimm leirkrukkum sem
taldar eru vera frá því 400 f.Kr.
til 300 e.Kr. Krukkurnar fundust
við fornleifauppgröft í Chiapas í
suðvesturhluta Mexíkó.
Leifar af chili hafa áður fund-
ist í sex þúsund ára gömlum ílát-
um í Ekvador í Suður-Ameríku.
Krukkurnar sem fundust nú eru
með stút og er þess vegna talið
að þær hafi verið notaðar undir
vökva.
Leifar í leirkrukkum:
Chili á matseðli
í þúsundir ára
LAURA
SCHEVING THOR-
STEINSSON
➜ Ísland er jafnframt eina
landið sem hlýtur hæstu ein-
kunn fyrir árangur meðferðar
í öllum tíu sjúksómaflokkum.
Því meiri svefn sem unglingar fá þeim mun minni líkur eru á því
að þeir fái kvef, flensu eða aðrar umgangspestir. Þetta kemur fram
í grein Kathryn Orzech og starfsfélaga hennar í ritinu Journal of
Sleep Research.
Orzech, sem starfar við svefnrannsóknir við Bradley-sjúkra-
húsið í Bandaríkjunum, fylgdist ásamt samstarfsmönnum sínum
með 56 unglingum á aldrinum 14 til 19 ára að vetri til. Nemendur
voru með mæli sem sýndi líkamshreyfingar þeirra svo hægt væri
að skrá svefn og vöku. Nemendur voru einnig vikulega spurðir um
heilsufarið.
Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að því lengur sem
nemendur sváfu þeim mun minni var hættan á að þeir veiktust og
væru fjarverandi frá skólanum.
Þetta kann að þýða að svefn verndi gegn sjúkdómum. Á hinn
bóginn kann það að vera að þeir sem oft eru veikir sofi almennt
illa án þess að eitt leiði til annars. En vísindamennirnir sáu einnig
að þeir sem voru oft veikir höfðu sofið minna en venjulega í sex
sólarhringa áður en þeir veiktust. Það kann að vera vísbending um
að svefninn hafi áhrif. Vísindamennirnir mæla með meiri og reglu-
legri svefni.
Rannsókn vísindamanna í Bandaríkjunum:
Minni veikindi
sé svefninn langur