Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 6
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Fermingartilboðin
hafin
10 hælisleitendur fengu á síðasta ári samþykki fyrir
því að búa á Íslandi.
Þetta nemur þremur á hverja 100
þúsund íbúa, og lenda Íslendingar
þar með neðarlega á lista Evrópu-
landa yfir hlutfall hælisleitenda sem
fá samþykkta búsetu.
Malta er í efsta sæti, með 348 sam-
þykkta hælisleitendur á hverja 100
þúsund íbúa. Þar á eftir kemur Svíþjóð
með 161 og Noregur með 123.
Heimildir: Eurostat og Aftenposten
ORKUMÁL Fyrstu drög atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins að lagafrum-
varpi sem á að auka notkun á endurnýjan-
legum orkugjöfum í samgöngum voru að
stórum hluta skrifuð af
hagsmunaaðilanum Carb-
on Recycling. Þetta sýna
gögn sem Fréttablaðið
hefur undir höndum.
Carbon Recycling, sem
framleiðir og selur endur-
nýjanlega eldsneytið met-
anól sem nota má sem
íblöndunarefni í bensín,
hafði frumkvæði að því að
senda ráðuneytinu skjal sem innihélt tillögu
að frumvarpinu.
„Við sendum að okkar frumkvæði þess-
ar tillögur sem voru byggðar á því hvernig
þetta hefði verið útfært í öðrum aðildarríkj-
um Evrópska efnahags-
svæðisins og hvernig væri
einfaldast að útfæra þetta
á Íslandi. Síðan fór þetta
með breytingum ráðu-
neytisins fyrir Grænu
orkuna, sem er samstarfs-
vettvangur stjórnvalda
og hagsmunaaðila á sviði
endurnýjanlegrar orku og
eldsneytis, og þar fengu
allir að skoða drögin og
þar á meðal við,“ segir Benedikt Stefánsson,
framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Carbon
Recycling.
Sex mánuðum síðar varð frumvarpið að
lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í sam-
göngum á landi. Lögin taka gildi um næstu
áramót og skylda seljendur eldsneytis til að
tryggja að minnst 3,5 prósent af eldsneytis-
sölu þeirra verði af endurnýjanlegum upp-
runa.
„Okkur varð svolítið bylt við þegar okkur
var sagt að hagsmunaaðili hefði átt svona
mikla aðkomu að þessu. Við hjá Skeljungi
höfum ekki tekið þátt í að skrifa lagafrum-
vörp og því kom þetta á óvart,“ segir Einar
Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs.
Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Félags
íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB), gagnrýnir að ekki
hafi verið leitað eftir
formlegu áliti félagsins
við gerð frumvarpsins.
„Ef
það er
rétt að
einka-
fyrirtæki hafi haft raun-
veruleg áhrif á fyrstu drög
þá er það eitthvað sem á
ekki að gerast. Við vorum
hvorki kölluð fyrir þing-
nefnd í aðdraganda þess
að þetta frumvarp varð að
lögum né til að mynda þegar
atvinnuveganefnd var að
kalla til fulltrúa, eins og þeir
sögðu, allra aðila. Rödd neyt-
enda var ekki kölluð að því
borði,“ segir Runólfur.
Í skriflegu svari atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðu-
neytisins segir að ráðuneytið
sé ekki sammála því að Carb-
on Recycling hafi átt mikla
aðkomu að gerð umrædds
frumvarps á upphafsstigum
þess.
„Samanburður sýnir að
mikill munur er á texta þessa
tillögu skjals sem barst frá
Carbon Recycling og þess
frumvarps sem lagt var fram
á Alþingi sex mánuðum síðar,“
segir í svari ráðuneytisins.
haraldur@frettabladid.is
Hagsmunaaðili samdi fyrstu
drög að frumvarpi til laga
Carbon Recycling skrifaði stóran hluta af fyrstu drögum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins að frum-
varpi um endurnýjanlegt eldsneyti. Ráðuneytið segir of mikið gert úr aðkomu fyrirtækisins að málinu.
NÁNAST EINS
Hér má ann-
ars vegar sjá
fyrstu síðuna í
tillögu Carbon
Recycling og
hins vegar
fyrstu síðuna í
drögum ráðu-
neytisins.
BENEDIKT
STEFÁNSSON
EINAR ÖRN
ÓLAFSSON
RUNÓLFUR
ÓLAFSSON
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Sunnudagur
Strekkingur suðvestanlands.
VINDASAMT EN HLÝTT Það verður víða fremur hvasst í dag og á morgun en á
sunnudaginn dregur heldur úr vindi. Rigning eða slydda sunnan- og vestantil í dag og
næstu daga eru horfur á skúrum eða slydduéljum í flestum landshlutum.
0°
9
m/s
4°
12
m/s
4°
6
m/s
6°
9
m/s
Á morgun
10-18 m/s vestantil, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
7°
-1°
5°
1°
2°
Alicante
Aþena
Basel
15°
14°
5°
Berlín
Billund
Frankfurt
6°
7°
6°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
5°
6°
6°
Las Palmas
London
Mallorca
23°
10°
12°
New York
Orlando
Ósló
3°
20°
1°
París
San Francisco
Stokkhólmur
9°
16°
2°
3°
2
m/s
6°
3
m/s
0°
6
m/s
1°
7
m/s
1°
6
m/s
2°
9
m/s
-6°
7
m/s
6°
2°
5°
4°
4°
FJÁRMÁL Frumvarp Eyglóar Harð-
ardóttur, félags- og húsnæðismála-
ráðherra, sem snýr að kostnaði
einstaklinga við gjaldþrot er efnis-
lega tilbúið og er nú á borði fjár-
málaráðuneytisins í hefðbundnu
kostnaðarmati.
Síðasti dagur til að leggja frum-
varpið fyrir Alþingi er í dag og
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er Eygló staðráðin í því að
ná því í gegn. Frumvarpið kveður
á um að ríkis valdið aðstoði þá ein-
staklinga sem eru ekki í fjárhags-
legri stöðu til
að greiða þær
250.000 krónur
sem þarf til að
fara í gjaldþrot.
Ekki stendur til
að fella upphæð-
ina niður. Hjón
sem vilja fara í
gjaldþrot þurfa
því að greiða
hálfa milljón
króna, sem mörgum hefur reynst
óyfirstíganleg.
Þingsályktun um aðgerðir vegna
skuldavanda heimilanna var lögð
fram í sumar. Einn liður í ályktun-
inni snerist um að kanna hvernig
eignalausum einstaklingum verði
gert kleift að greiða kostnað vegna
gjaldþrotaskipta á búi sínu og hafa
velferðarráðuneytið og innanríkis-
ráðuneytið unnið að málinu.
Hjá héraðsdómum landsins hefur
uppkveðnum gjaldþrotaúrskurðum
einstaklinga fjölgað úr 185 á árinu
2011 í 291 á árinu 2012, samkvæmt
ársskýrslu Dómstólaráðs. - fb
Frumvarp um kostnað einstaklinga við gjaldþrot líklega lagt fram í dag:
Ríkið aðstoði gjaldþrota fólk
EYGLÓ
HARÐARDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan hyggst
ekkert aðhafast vegna kæru Gylfa
Ægissonar tónlistarmanns gegn
Hinsegin dögum. Gylfi kærði sam-
tökin þar sem hann taldi að ýmis
atvik sem áttu sér stað í Gleðigöng-
unni í sumar hefðu verið brot á
barnaverndarlögum. Í tilkynningu
frá lögreglu segir að ekki þyki efni
til að hefja rannsókn út af kærunni.
Gylfi kallar frávísunina „barna-
níð Barnaverndarnefndar, aðstoð-
arsaksóknara og yfirvalda“ á
stuðningssíðu sinni. - jbg
Ekki efni til að rannsaka:
Kæru Gylfa vís-
að frá lögreglu
„Það er búið að klámvæða jólin,“
segir Bubbi Morthens meðal
annars í viðtali við helgarútgáfu
Fréttablaðsins sem kemur út á
morgun. Þar ræðir tónlistarmað-
urinn um nýútkomna jólaplötu
sína, Æsku
minnar jól,
trúna, heilsuna
og nýlegt áfall
sem hann varð
fyrir í lífi sínu.
Í blaðinu er
einnig rætt
við listamann-
inn Ragnar
Kjartansson
sem sýnir um
allan heim, hannar kærleiks-
kúlu og opnar sýningu í Reykja-
vík í fyrsta sinn í þrjú ár. Þá er
farið yfir val álitsgjafa á bestu
og verstu plötuumslögum árs-
ins, sagan að baki hinum vin-
sælu bókum og kvikmyndum um
Hungurleikana skoðuð og margt
fleira. - kg
Helgarútgáfa Fréttablaðsins:
Bubbi segir frá
nýlegu áfalli
BUBBI
MORTHENS
SVEITASTJÓRNARMÁL Ljósin verða
tendruð á Óslóartrénu á Austur-
velli klukkan fjögur á sunnu-
daginn. Jón Gnarr borgarstjóri
mun veita grenitrénu viðtöku úr
hendi Dags Wernø Holter, sendi-
herra Noregs og Rinu Marin
Hansen, borgarfulltrúa Verka-
mannaflokksins í Ósló. Hinn sjö
ára gamli norsk-íslenski Ólafur
Gunnar Steen Bjarnason mun
síðan tendra ljósin á trénu.
Rúm sextíu ár eru síðan íbúar
Óslóar færðu Reykvíkingum
fyrsta grenitréð að gjöf og hefur
það ávallt átt sinn stað á Austur-
velli síðan. - sáp
Rúm sextíu ár frá fyrsta tré:
Ljósin tendruð
á Óslóartrénu