Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 35
JÓLAÞORPIÐ SKREYTT
Leikskólabörn Hafnarfjarðar eru í óða önn
að skreyta jólatrén sem umlykja þorpið
með fallegum hlutum sem þau hafa búið
til. Leikskólabörn hafa skreytt Jólaþorpið
frá upphafi, eða þau ellefu ár sem þorp-
ið hefur risið.
Matreiðslumaðurinn Úlfar Finn-björnsson sér um sjónvarps-þáttinn Eldað með Holta á ÍNN.
Þar eldar hann ljúffenga rétti úr Holta-
kjúklingi fyrir áhorfendur. Hér færir Úlfar
okkur, ásamt Eiríki Friðrikssyni mat-
reiðslumeistara, uppskrift að stórkost-
legum hátíðarfugli með kryddblöndu og
ljúffengri sósu. Hægt er að fylgjast með
Úlfari elda þessa girnilegu máltíð í kvöld
klukkan 21.30 á sjónvarpsstöðinni ÍNN.
Þættirnir verða svo endursýndir yfir
helgina. Einnig er hægt að horfa á þá á
heimasíðu ÍNN, inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast
með honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
HÁTÍÐ Í BÆ Jólalegur
hátíðarfugl frá Holta.
MYND/DANÍVEL
TRÖNUBERJASULTA
1 poki trönuber
100 g sykur (sama magn af sykri
og berjum)
Smá púrtvín
Sjóða við vægan hita í eina klst.
Það má bragðbæta með salti og
hlynsírópi (maple syrup)
FYLLING
1 poki fyllingarblanda frá Kosti
hálfur laukur
1 sellerístöng
5 stórir sveppir
Lesið vel leiðbeiningar á fyllingarblönd-
unni og byggið á þeim. Allt saxað og sett
á pönnu og kraumað þar til það verður
mjúkt. Síðan sett saman við mixið og
bleytt með rjóma, bræddu smjöri og smá
kjúklingasoði. Um tíu blöðum af saxaðri
salvíu bætt út í. Fuglinn er fylltur og
afgangur settur í ofnfast mót og fuglinn
bakaður.
SÓSAN
Vængir, háls og innmatur steikt í potti
ásamt lauk, gulrót og selleríi. Lárviðar-
laufi, piparkornum og smá tómatkrafti
bætt í vatn og soðið í um eina klst. Sósan
sigtuð og þykkt með sósujafnara. Rjóma
bætt út í og kjúklingakrafti ef þarf.
SÆTKARTÖFLUMÚS
3 sætar kartöflur bakaðar í hýði í ofni
á 200 gráðum þar til þær eru mjúkar.
Hýði flett af og kartöflur maukaðar í
potti. Smá smjöri bætt í og salti og pipar
ásamt einni msk. hunangi (má sleppa).
STÓRKOSTLEGUR HÁTÍÐARFUGL
20%
afslÁTTUR
um helgina
Ótrúlegt úrval af jólakjólum
fyrir 12 ára og eldri
Jólakjólarnir komnir
hollur kostur á 5 mín.
Plokkfiskur