Fréttablaðið - 29.11.2013, Síða 86

Fréttablaðið - 29.11.2013, Síða 86
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 56 Almennilegur, hreinskil-inn og metnaðarfullur eru orð sem lýsa Heimi Hallgrímssyni ágæt-lega. Í vikunni var til-kynnt að tannlæknirinn úr Vestmannaeyjum myndi stýra karlalandsliði Íslands til jafns við Svíann Lars Lagerbäck næstu tvö árin. Að þeim tíma loknum mun Heimir stýra skútunni í undan- keppni HM 2018. „Ég er að sjálfsögðu ákaflega stoltur yfir því trausti sem mér er sýnt. Þetta er samt ekki bara hrós fyrir mig heldur ÍBV líka,“ segir Heimir og ljóst að virðing hans fyrir uppeldisfélaginu er mikil. Heimir spilaði með ÍBV upp alla yngri flokka en hætti þegar hann gekk upp í 2. flokk. „Ég var svo lítill á þeim tíma- punkti. Hópurinn var fjölmennur og ég sá engan tilgang í að vera þarna. Við vorum bara með eitt lið sem ég hefði aldrei komist í,“ segir Heimir, sem á svipuðum tíma byrjaði að aðstoða Pólverj- ann Gregor Bielatovic við þjálfun yngri flokka. „Okkur var safnað saman nokkrum sem vorum taldir efni í góða þjálfara. Forráðamenn ÍBV vildu að við ynnum með Gregor. Það kveikti hjá mér áhuga á þjálf- un hvernig hann nálgaðist fót- bolta.“ Heimir tók í kjölfarið vaxt- arkipp og fór að spila aftur. „Þá varð karlinn brjálaður því hann sá að ég var betri en hann hafði talið. Hann húðskammaði mig fyrir að hafa hætt í eitt ár,“ segir Heimir og brosir. Hélt að starfið væri hans 2011 Úr varð að Heimir spilaði með hléum í áratug í meistaraflokki ÍBV í stöðu miðvarðar ásamt því að þjálfa. Hann stýrði kvennaliði félagsins í fimm ár og karlaliðinu sömuleiðis í fimm ár. „Ég fékk alltaf stærra og stærra hlutverk hjá ÍBV. Þeir bjuggu mig í raun og veru til. Ég verð þeim ævinlega þakklátur fyrir að hafa haft trú á mér.“ Sumarið 2011 ákvað hann að nóg væri komið og tilkynnti áður en tímabilið var úti að hann yrði ekki áfram hjá ÍBV. „Það er erfitt að vera þjálfari í Eyjum. Ég vildi gefa Eyjamönn- um tíma til að finna nýjan þjálf- ara og honum kost á að vera með mér síðustu leikina og kynnast félaginu,“ segir Heimir. Skömmu síðar hringdi síminn. Geir Þor- steinsson, formaður KSÍ, var á línunni. „Ég bjóst við því að ég væri að fara að verða næsti landsliðsþjálf- ari,“ segir Heimir og hlær. Geir hafi tjáð honum að sambandið væri í leit að erlendum þjálfara og vildi Heimi sem hans aðstoðar- mann. „Þeir réðu mig áður en gengið var frá ráðningu á aðalþjálfara,“ segir Heimir. KSÍ heyrði hljóðið í Roy Keane og skömmu síðar var nafn Lars Lagerbäck komið upp á borðið. Heimir þekkti aðeins til Svíans frá því Lagerbäck kenndi honum í þrjá daga á þjálfaranám- skeiði á Englandi. „Ég veit ekkert hvort hann man eftir mér en ég vissi vel hver hann var.“ Hefði endað illa Síðan eru liðin tvö ár og karla- landsliðið náði sínum besta árangri frá upphafi. Liðið beið lægri hlut í umspilsleikjum gegn Króötum um laust sæti á HM á dögunum og eru væntingar til liðsins miklar. Heim- ir segist sjá það núna, eftir árin tvö sem aðstoðarmaður Svíans, að hann hafi ekki verið tilbúinn að taka við landsliðinu fyrir tveimur árum eins og hann taldi sig vera. „Ég sé sjálfur núna að það hefði aldrei gengið. Ég hefði haldið áfram að þjálfa landsliðið eins og ÍBV. Það hefði alltaf endað illa,“ segir Heimir. Hann nefnir sem dæmi að hann hafi, sem þjálf- ari ÍBV, lagt upp með að hafa skemmtilegar æfingar þegar illa gekk til að hressa hópinn við. Hjá Lars sé hins vegar stöðugt unnið í ákveðnum hlutum. „Leikmenn vita að hverju þeir ganga. Þeir ráða ekki neinu en vita nákvæmlega hvað er að gerast í íslenska landsliðinu.“ Mikilvægast sé að leggja áherslu á grunnatriðin á þeim skamma tíma sem landslið- ið komi saman. „Ég hefði örugglega farið í að sýna hvað ég kann mikið á meðan Lars, sem kann miklu meira en ég, einbeitir sér að grunnatrið- unum,“ segir Heimir af einskærri einlægni. Hann segist hafa lært margt af Lars og þá sérstaklega hvernig hann vinni með atvinnu- mönnum líkt og tilfellið er með flesta okkar landsliðsmenn. Erfitt að öðlast virðingu „Ef þú skoðar söguna þá hefur það ekki verið framaskref fyrir þjálf- ara að taka við íslenska landslið- inu,“ segir Heimir. Aðeins í undan- tekningartilfellum hafi menn gert eitthvað merkilegt eftir að hafa gegnt starfi landsliðsþjálfara. „Ég held að ástæðan sé sú að við erum bara aldir upp í áhuga- mannafótbolta. Það er dálítið erfitt að öðlast virðingu atvinnumanna.“ Hann rifjar upp gagnrýni lands- liðsmannsins fyrrverandi, Grétars Rafns Steinssonar, á umhverf- ið sem íslenskir landsliðsmenn þyrftu að sætta sig við. „Ég skil hvað hann átti við. Þó að við séum Ísland, séum lítil þjóð og höfum lítinn pening þá verðum við að skapa þessum mönnum í það minnsta svipaða umgjörð og þeir eru vanir,“ segir Heimir. Lars kunni þá list vel að skapa leik- mönnum frelsi til að vera atvinnu- menn í stað þess að setja reglur líkt og þurfi stundum hjá íslensk- um félagsliðum. Nefnir hann morgunmat leikmanna sem dæmi. „Það er ekki þannig að allir þurfi að mæta á slaginu sjö heldur mega menn mæta á bilinu átta til tíu.“ Þannig geti þeir sofið lengur sem vilja en aðrir vaknað snemma. Æfing sé svo fljótlega í kjölfar morgunverðar svo leikmenn geti nýtt daginn í persónuleg erindi. „Við reynum að hanna þetta þannig að leikmennirnir geti verið þeir sjálfir, notið þess að vera á Íslandi og frjálsir.“ Lars lætur hrósið til annarra Heimir er þakklátur fyrir árin tvö sem aðstoðarmaður Lars Lager- bäck. Þó hafi ekki komið til greina af hans hálfu að vera áfram í hlut- verki aðstoðarmanns. „Ég er það metnaðarfullur að ég ætla ekki að vera heimsins besti aðstoðarþjálfari. Það kom aldrei til greina af minni hálfu,“ segir Heimir. Markmið hans hafi verið að læra sem mest á árunum tveim- ur og sjá svo hvaða tækifæri byðust í fram- haldinu. „Ég er kannski einn af fáum þjálfurum sem þarf ekki á þessu að halda. Ég er með gott starf og alltaf plan B. Ég er heppinn að því leytinu til að ég get sagt nei og á auðvelt með það.“ Ekki hefur farið fram hjá þeim sem setið hafa fundi með þeim Heimi og Lars að virðing þeirra er gagnkvæm. Sví- inn vísar spurningum reglulega til Heimis og bendir á að hann viti hitt og þetta mun betur þrátt fyrir reynslu þess sænska á stóra sviðinu. „Einn af mörgum kostum Lars er að hann lætur þá sem eru í kringum hann líða vel,“ segir Heimir. „Á ákveðn- um augnablikum, þar sem flest- ir myndu taka hrósið til sín og spenna sig upp, þá lætur hann hrósið til annarra. Það er eitt- hvað sem ég hef reynt að tileinka mér og læra af honum.“ Eyjamaðurinn segir Lars alltaf hafa látið sig hafa það á tilfinningunni að þeirra vinna væri fullkomin samvinna. „Við veljum alltaf liðið saman. Auðvitað höfum við aðeins deilt en þá tökum við rökræðu þar til við finnum lausn. Hann hefur aldrei sagt: „Nei, þetta verður svona!““ Töpum aldrei 5-0 á heimavelli Heimir neitar að ljúka við- talinu án þess að ræða um samstarfsfólk sitt í lands- liðinu. „Það hefur verið alveg stórkostlegt að vinna með því,“ segir Heimir og næst á dagskrá eru stuðningsmenn- irnir. „Það er alveg nýtt að endurtekið sé uppselt á Laugar- dalsvöll þegar landsliðið er að spila hvort sem andstæðingur- inn er Albanía eða Kýpur. Að fá í kringum eitt þúsund manns til Króatíu er algjör brandari,“ segir Heimir. Hann segist stoltur af því að hafa tekið þátt í því með stuðn- ingssveitinni Tólfunni að bæði fjölga stuðningsmönnum en einn- ig bæta stemninguna. Aðspurð- ur hvort hann hafi áhyggjur af því að stuðningurinn hverfi um leið og landsliðið steinliggi 5-0 á Laugardalsvelli er Heimir fljótur til svars: „Í fyrsta lagi munum við aldrei tapa 5-0 á Laugardalsvellinum,“ segir Heimir léttur en hugsar sig svo aðeins lengur um. „Nei, ég held að stemningin sé komin til að vera. Ég gef mér það að uppselt verði á Laugardalsvöll það sem eftir er. Ég held að mikið þurfi að ganga á til þess að stemningin hrynji eftir þetta tap í Króatíu.“ Ég hefði haldið áfram að þjálfa lands- liðið eins og ÍBV. Það hefði alltaf endað illa. Það er einn annar tannlæknir í Eyjum og ég er sennilega að ganga af honum dauðum. Heimir Hallgrímsson Tannlækni vantar í Vestmannaeyjum Heimir er kvæntur Írisi Sæmundsdóttur, fyrrverandi landsliðskonu í knatt- spyrnu, og eiga þau tvo syni, Hallgrím 17 ára og Kristófer 11 ára, sem eru á kafi í fótbolta. „Þau eru ákaflega stolt af því að ég sé í þessu starfi og hvöttu mig til að taka það að mér,“ segir Heimir sem rekur tannlæknastofu í Eyjum. Hann segir fjölskylduna orðna vana því að hann sé á kafi í þjálfun meðfram tannlæknastarfinu. Hann er einn með stofu í Eyjum í augnablikinu. „Ég var alltaf með tannlækni hjá mér en nú er hann farinn í sérnám. Ég er í smávandræðum þessa stundina og vantar tannlækni til að leysa mig af.“ Óvíst sé hvort hann þurfi að flytja stofuna upp á land en einhver gæti ímyndað sér að nú hlakkaði í keppinautum á tannlæknamarkaðnum í Eyjum. Heimir þvertekur fyrir það. „Það er einn annar tannlæknir og ég er sennilega að ganga af honum dauðum,“ segir Heimir og hlær. Hann telur þurfa að lágmarki tvo til þrjá tannlækna á Eyjunni fögru til að halda úti góðri þjónustu. „Það er oft talað um 1.200 manns á tannlækni. Kollegi minn yrði með um 4.000 manns á meðan ég væri í burtu. Það er alltof mikið.“ Vildi ekki verða heimsins besti aðstoðarþjálfari Heimir Hallgrímsson hefur lært mikið við hlið Lars Lagerbäck og er til- búinn að stýra skipinu sjálfur eft ir tvö ár. Hann segir erfi tt fyrir áhuga - þjálfara að öðlast virðingu atvinnumanna. Tannlæknirinn í Eyjum gæti verið að setja kollega sinn á Eyjunni fögru í ómögulega stöðu. Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@frettabladid.is TVEIR ÖFLUGIR Heimir Hallgrímsson með Gylfa Þór Sigurðssyni eftir 2-1 sigur á Albönum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.