Fréttablaðið - 29.11.2013, Síða 88

Fréttablaðið - 29.11.2013, Síða 88
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 58 FÓTBOLTI Ryan Giggs hefur verið á toppnum í fótboltaheiminum í meira en tvo áratugi og ef marka má spila- mennsku kappans í fyrrakvöld þá er það nánast óskiljanlegt að velski miðjumaðurinn hafi komið í heim- inn 29. nóvember 1973. Ryan Giggs fagnar fertugsaf- mæli sínu í dag en hann er enn á fullri ferð með aðalliði Manchester United og bætir leikjamet félags- ins í hvert skipti sem hann stígur inn á völlinn. „Ég hef svo sem ekki hugsað sérstaklega um þessi tíma- mót. Þegar ég var stíga mín fyrstu spor með liðinu þá sá ég menn eins og Brucey og Robbo sem voru 33 og 34 ára gamlir. Mér fannst þeir vera ævagamlir þá svo ég get varla ímyndað mér hvað ungu strákarn- ir halda um mig í dag,“ sagði Ryan Giggs í viðtali við The Telegraph. Hann er spurður út í fertugsaf- mælisdaginn. „Þetta er nú bara eins og hver annar dagur. Þeir eru margir svona dagar eins og afmælis dagar eða jól sem maður eyðir á fótboltaæfingum. Ég mun eyða jóladegi á hótelherbergi í Hull. Ég löngu orðinn vanur þessu enda búinn að standa í þessu í 22 ár,“ sagði Giggs. Giggs hefur fengið ótal gull- in tækifæri til að setja punktinn aftan við magnaðan feril en hann er ekki tilbúinn að segja nóg komið þótt það þekkist varla í boltanum að leikmenn spili á hæsta stigi og með einu besta félagsliði heims á hans aldri. Fyrir vikið hefur hann séð til þess að mörg meta hans verða seint bætt auk þess sem hann bætir við nýjum metum á hverju ári. „Ég veit ekki lengur hvað ég á að segja um Ryan,“ sagði Wayne Roo- ney eftir sigurinn á Bayer Leverku- sen. Giggs hljóp yfir tíu kílómetra í leiknum og aðeins tveir leikmenn United-liðsins náðu því. Hann var allt í öllu í leik liðsins á miðjunni og þegar sumir tóku að þreytast í þýska liðinu þá klóruðu þeir sér örugglega í höfðinu yfir lungnaþoli „gamlingjans“. Ryan Giggs er óhræddur við að láta heyra í sér í klefanum og miðl- ar af reynslu sinni til yngri leik- manna United-liðsins. Hann ræðir þetta í fyrrnefndu viðtali í The Telegraph. „Ég verð enn þá reiður í búnings- klefanum. Ég öskra á strákana og ég er „kvartari“. Ef einhver gerir mistök þá læt ég viðkomandi vita af því. Það er hluti af mínu starfi og ég vona að þessir strákar læri af því. Það styrkti mig þegar Bryan Rob- son gerði það við mig þegar ég var yngri,“ rifjar Ryan Giggs upp. Ryan Giggs var boðinn fyrsti samningurinn hjá Manchester United á 17 ára afmælisdaginn þegar Manchester United hafði ekki unnið enska meistaratitilinn í að verða aldarfjórðung. Giggs átti heldur betur eftir að bæta úr því. Hann hefur nú unnið 35 titla með félaginu, þar af varð hann enskur meistari í þrettánda sinn síðastlið- ið vor. Giggs fékk íþróttahæfileika sína í vöggugjöf frá föður sínum sem var rúgbý-leikmaður. Það gat samt eng- inn séð fyrir sér hversu lengi hann héldi sér á toppnum. Það er magnað að vera enn hjá sama félagi eftir 23 ár og það er enn magnaðra að hann sé enn að berjast um sæti í byrj- unarliði Man chester United þegar hann dettur inn á fimmtugsaldur- inn. Já, Giggs er fyrir löngu orðinn eitt af undrum fótboltans. „Fólk mun alltaf ræða aldur Ryans en það getur enginn efast um getu hans inni á fótboltavellin- um. Hann er frábær og sýndi það í kvöld í öllu sem hann gerði í leikn- um. Hann átti nóg inni og er æðis- lega fjölhæfur leikmaður,“ sagði David Moyes, núverandi knatt- spyrnustjóri, eftir 5-0 útisigur á Bayer Leverkusen í fyrrakvöld. Giggs spilaði þarna sinn 148. leik í Meistaradeildinni en fyrr í vetur bætti hann leikjametinu í deild þeirra bestu við öll sem hann hefur safnað að sér á stórkostlegum ferli. „Hann er ótrúlegur og það er jafnvel hægt að segja að hann sé alltaf að verða betri. Yfirsýn- in og sendingin í síðasta markinu sem Nani skoraði var stórbrot- in. Hann er líka í mögnuðu formi. Ég er heppinn að fá að vinna með honum,“ sagði Moyes, en hann réð Ryan Giggs sem aðstoðarþjálfara þegar hann tók við liðinu af Sir Alex Ferguson. „Manchester United hefur verið fullkominn klúbbur fyrir mig,“ sagði Ryan Giggs einhvern tímann, en það er hægt að segja á móti að Ryan Giggs hafi verið fullkominn leikmaður fyrir Manchest er United. Hann er hvergi nærri hættur og er opinberlega farinn að tala um að spila þúsund leiki fyrir Manchester United. Það þýðir bara eitt til tvö tímabil í viðbót, sem ætti að gleðja stuðningsmenn United sem elska manninn nú nóg fyrir. Ég mun eyða jóladegi á hótelherbergi í Hull. Ég er löngu orðinn vanur þessu enda búinn að standa í þessu í 22 ár. Óskar Ófeigur Jónsson ooj@frettabladid.is TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN Ryan Giggs heldur upp á stóráfanga í dag. NORDICPHOTOS/GETTY Fertugur og enn í fullu fj öri Afmælisbarn dagsins er Ryan Giggs, sigursælasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Líklegt er að metin hans standi um ókomna tíð. Hann er á sínu 24. tímabili með Manchester United og sýndi snilli sína enn á ný í stórsigri í Meistaradeildinni í vikunni. Helstu titlar Ryan Giggs á ferli sínum með Manchester United Enska úrvalsdeildinEnska bikarkeppnin Enski deildabikarinnMeistaradeildin Samfélagsskjöldurinn ÁR 1993 1994 1996 1997 1999 2000 2001 2003 2007 2008 2009 2011 2013 ÁR 1993 1994 1996 1997 2003 2007 2008 2010 2013 ÁR 1999 2008 ÁR 1992 2006 2009 2010 ÁR 1994 1996 1999 2004
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.