Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.11.2013, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 29.11.2013, Qupperneq 8
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Í hvað stefnir hallinn á ríkissjóði á þessu ári? 2. Hver sakar forsætisráðherra um lygilega sögufölsun? 3. Hversu margir leikmenn voru inná alla undankeppnina í HM? SVÖR: 1. Í 25,5 milljarða króna. 2. Hrafnhildur Sig- urðardóttir, formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna. 3. Þrír. Hönnun og handverk í Kópavogi Safnaðarheimili Kópavogskirkju Laugardaginn 30. nóvember kl. 12-18 Andreu Kerti Ástrós Steingrímsdóttir Bolabítur Cool Design Dagmar Valsdóttir Elsku Alaska Evuklæði Svava Eygló Karólína Design Fluga design Gallery Maja / Kalma design Guðrún Kolbeins Design Gunnlaug Hannesdóttir Hanna Júlía Hafsteinsdóttir ÍSAFOLD design jbj design Kristrún Tómasdóttir Maria del Carmen Nadine Prjónafabrikkan Rannveig Tryggvadóttir rolla Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir Vala Björg Arnardóttir Þuríður Ósk Sölusýning þar sem 24 aðilar úr Kópavogi sýna íslenska listiðn, handverk og hönnun. Þetta er einstakt tækifæri sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Listamennirnir og hönnuðirnir sjálfir verða á staðnum og kynna vörur sínar. FJARSKIPTI Fjarskiptafyrirtækin Vodafone, Síminn og Nova munu frá og með 13. desember bjóða upp á snjallsím- ana iPhone 5s og iPhone 5c milliliðalaust. Hingað til hafa fyrirtækin keypt símana í gegnum erlenda milliliði en núna þarf þess ekki lengur vegna samninga sem hafa verið undirritaðir við Apple. Símarnir verða því fáan- legir á Íslandi á svipuðum tíma og í stærri löndum Evrópu. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins lækkar útsöluverð iPhone alls staðar, jafnvel um tugi þúsunda króna. Aðspurð segist Liv Bergþórs- dóttir, forstjóri Nova, vera mjög ánægð með samninginn. „Við hjá Nova höfum unnið að því um langt skeið að ná þessum beina samn- ingi við Apple og það er mikið fagnaðarefni að það hafi nú tek- ist. iPhone er vinsælasti farsím- inn hjá viðskiptavinum Nova en nú þegar eru yfir fjörutíu þúsund iPhone-far- símar í notk- un á farsíma- kerfi Nova,“ segir hún. „Við erum að bjóða mjög gott verð á þessum símum í dag. Þeir munu lækka eitthvað í verði en mismikið eftir tegund- um. Við getum ekki boðið símana á sama verði og í Ameríku heldur verður það nær því sem þekkist á Norðurlöndum.“ Samkvæmt heimildum blaðs- ins gerir samningur Vodafone við Apple að verkum að viðskipta- vinir fyrirtækisins geti notfært sér 4G-virkni iPhone og iPad sem skilar sér í auknum gagna- flutningshraða. Hingað til hefur gagnaflutningshraði tækjanna verið takmarkaður við 3G. Hvað varðar 4G-mál hjá Nova, segir Liv undir Apple komið að opna fyrir þjónustuna. „Það hefur þegar verið gert fyrir iPad og við erum að vona að það verði gert fyrir iPhone í desember. Nova er eina farsímafyrirtækið sem býður upp á 4G-þjónustu í farsíma. Við vitum að viðskiptavinir okkar bíða spenntir eftir að fá 4G í iPhone,“ segir hún. freyr@frettabladid.is Apple semur við fjarskiptafyrirtækin Fjarskiptafyrirtækin Vodafone, Síminn og Nova bjóða milliliðalaust upp á vörur frá Apple frá og með þrettánda desember. iPhone lækkar um tugi þúsunda í verði. HÖFUÐSTÖÐVAR Fjarskiptafyrirtækin ætla að bjóða upp á snjallsímana iPhone 5s og iPhone 5 milliliðalaust frá og með 13. desember. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Snjallsímarnir iPhone 5s og iPhone 5c komu á markað í september í fyrra og var það í fyrsta sinn sem Apple setti tvo síma á markað sam- tímis. Þetta var einnig í fyrsta sinn sem Apple seldi iPhone samtímis í mörgum löndum. Apple seldi samanlagt um níu milljónir nýrra iPhone-síma fyrstu þrjá dagana sem iPhone 5s og iPhone 5c fóru í sölu, sem er nýtt met. Til samanburðar seldust árið áður um fimm milljónir iPhone 5-snjallsímar fyrstu helgina sem þeir voru til sölu. Níu milljónir seldust á þremur dögum DÓMSMÁL Endurupptökunefnd hefur hafnað kröfu tveggja sak- borninga í Baugsmálinu um að málið verði tekið upp aftur hjá Hæstarétti. Þeir Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggvi Jónsson, sem hlutu tólf og átján mánaða fangelsisdóm í Hæsta- rétti í febrúar síðastliðnum, töldu villu hafa orðið til þess að dómur- inn var svo þungur, og fóru því fram á að málið yrði tekið upp aftur í Hæstarétti til að fá dómsorðið leið- rétt, segir Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs. Gestur segir að í dóminum hafi komið fram að Jón Ásgeir hafi brot- ið meira af sér en Tryggvi. Engu að síður hafi Tryggvi hlotið þyngri dóm. Það segir Gestur að bendi til þess að Hæstiréttur hafi við ákvörðun refsingar dæmt síðara málið sem hegningarauka við fyrra Baugsmál- ið. Dómur í því máli féll í júní 2008. Þar fengu Jón Ásgeir og Tryggi einnig fangelsisdóma sem voru skil- orðsbundnir til tveggja ára. Því hafi ekki átt að líta á síðari dóminn sem hegningarauka við þann fyrri. Í niðurstöðu endurupptöku- nefndar segir að ekki hafi verið sýnt fram á að verulegir gallar hafi verið á meðferð málsins þann- ig að það hafi haft áhrif á niður- stöðu þess, og beiðni Jóns Ásgeirs og Tryggva því hafnað. - bj Töldu villu í dómi Hæstaréttar hafa orðið til að þyngja refsingu í Baugsmáli: Ósk um endurupptöku hafnað Mál sakborninganna í Baugsmálinu gegn íslenska ríkinu er nú til meðferðar hjá Mannréttindadómstóli Evrópu. Ríkið hefur skilað greinargerð í málinu og verjendur skilað skriflegum viðbrögðum við henni. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eins sakborninga í málinu, segir að dómur geti fallið fljótlega eftir áramót. Falli dómur Mannréttindadómstólsins sakborn- ingum í hag hefur það talsvert fordæmisgildi. Þeir halda því fram að þar sem skattayfirvöld hafi sektað sakborningana hafi þeim verið gerð tvöföld refsing með skilorðsbundnum fangelsisdómi Hæstaréttar. Gestur segir það hafa verið viðtekna venju að ákæra fyrir dómi fólk sem áður hafi verið sektað af skattyfirvöldum, og því gæti þurft að vinda ofan af tugum mála falli dómur Mannréttindadómstólsins ríkinu í óhag. Bíða dóms Mannréttindadómstólsins VIÐSKIPTI Hagnaður Arion banka fyrstu níu mánuði þessa árs nam 10,1 milljarði króna eftir skatta samanborið við 14,5 milljarða króna á sama tímabili á árinu 2012. Þetta kemur fram í uppgjöri bankans. Hagnaður þriðja ársfjórðungs hjá bankanum var 4,2 milljarðar sem er 900 milljónum krónum meira en í fyrra. Höskuldur H. Ólafsson, banka- stjóri Arion banka, segir í uppgjör- inu að afkoman sé góð og í samræmi við væntingar. Hann er sáttur við rekstur bankans þessa fyrstu níu mánuði ársins á heildina litið, ekki síst í ljósi þess að enn gætir nokk- urrar óvissu í ytra starfsumhverfi bankans. Rekstrartekjur lækka milli ára, námu 31,5 milljörðum samanborið við 34,4 milljarða í fyrra. Helstu ástæður þeirrar lækkunar eru lækkun vaxtamunar, sem meðal annars er tilkomin vegna binding- ar innlána og skuldabréfaútgáfu. Einnig eru aðrar tekjur lægri vegna minni virðisbreytinga eigna. - fbj Hagnaður Arion banka fyrstu níu mánuði ársins lægri en á sama tíma í fyrra: Arion hagnast um 10 milljarða Í ARION BANKA Höskuldur Ólafsson bankastjóri er ánægður með afkomu Arion banka. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SJÁVARÚTVEGUR Matís hefur látið búa til smáforrit (app), sem gerir sjómönnum kleift að reikna út hversu mikinn ís þeir þurfa til kæl- ingar afla, að því er fram kemur á vef Matís. Í forritinu er tekið með í reikninginn hver sjávarhitinn er, lofthiti og dagar á sjó. Enn sem komið er geta bara þeir sem eru með síma eða spjaldtölvur með Android-stýrikerfinu notað forritið, en það er væntanlegt fyrir tæki frá Apple og tæki með Wind- ows-stýrikerfi. - bj Sjómenn með snjallsíma: Reikna ísþörf með nýju appi VEISTU SVARIÐ?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.