Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.11.2013, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 29.11.2013, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 29. nóvember 2013 | SKOÐUN | 25 Gamall maður í fjölskyldunni sagði eftirfarandi sögu um leið og hann handlék nýkeyptan snjallsímann: „Það er nú meira hvað tækninni hefur fleygt fram! Þegar ég lærði að skrifa þurfti ég að notast við svo- kallaða blekbyttu. Þá þurfti maður að dýfa pennanum í þetta furðulega ílát á nokkurra málsgreina fresti til að geta haldið áfram að skrifa. Og þar sem ég var aldrei mjög flinkur við þetta voru öll blöð mín, öll föt og flestallir líkamspartar útötuð í bláum og svörtum blettum. Þegar ég flutti til Vesturlanda fékk ég reyndar stundum penna og stundum blýant en þó aldrei hvort tveggja við sömu aðstæður. Svo var mikið lagt upp úr því að allir næðu tökum á tilteknum skrifstíl. Ég var ásamt öðrum börnum látinn sitja tímum saman og endurhandskrifa orð með tengiskrift í þar til gerðar skriftarbækur. Þetta var gert svo árum skipti. Ég var reyndar svo lánsamur að þegar ég gekk í gagnfræðaskóla var þar fólk sem gerði sér grein fyrir mikilvægi þess að börn til- einkuðu sér tæknina. Þess vegna var lagt upp úr því að við lærðum öll á ritvél. Það átti nú eftir að nýt- ast manni vel, að hafa lært fingra- setninguna.“ Gamli maðurinn í þessari sögu er ég sjálfur. Já, ég lærði vélrit- un á ritvél í tölvuveri Hagaskóla um 1994. Og þrátt fyrir að vera nokkurn veginn jafngamall fyrstu einkatölvunni þá tók ég mitt fyrsta forritunarnámskeið um tvítugt, á seinasta ári í menntaskóla. Þar lærðum við Turbo Pascal, einungis fjórum árum eftir að framleiðand- inn, Borland, hafði hætt þróun þess. Góðir af óhófi Skólakerfið kenndi fólki ekki á tölvur. Fólk af minni kynslóð lærði á þær í gegnum hvers kyns grúsk. Menn þurftu til dæmis að leysa eitthvert tæknivandamál með minni eða hljóðkorti til að geta spilað tölvuleik. Þannig lærðu menn á arkitektúrinn og stýri- kerfið. Eitt má þó bóka: Að flest þetta fólk hafi í ófá skipti fengið að heyra að það væri „alltaf í tölv- unni“. Það ætti að gera eitthvað uppbyggilegt. Eins og „að fara í labbitúr“. En einhvern veginn þá reyndist það ágætis undirbúningur undir lífið að vera alltaf í tölvunni. Því satt að segja er ég eiginlega alltaf í tölvunni. Og mér sýnist starfs- möguleikar þeirra sem voru alltaf í tölvunni ekki síðri en þeirra sem náðu fullkomnun í þeirri list að vera „úti í labbitúr“. Sporni-sporn Ég nota ensku heilmikið í vinnunni. Það er nú önnur náms- grein sem skólakerfið kenndi manni varla. Næstum því allir kunnu ensku heilmikið þegar þeir byrjuðu að læra hana og þeim leiddist því í tímum. Hjá flestum sem ég þekki komst það í vana að hunsa þetta fag algerlega. Þannig að þegar kom að einhverju sem maður gæti hafa haft gagn af þá var það orðið of seint. Allur áhugi var farinn. En hugsið ykkur því- lík sóun: Nánast allir skilja ensku og flestir tala hana sæmilega óhindrað. En ritunarhæfileikar flestra Íslendinga, þegar kemur að enskunni, eru langt frá því að vera góðir. Miðað við alla þessa ensku í umhverfinu ættum við að geta miklu betur. En til þess þarf helst að byrja að kenna ensku fimm ára. Mér virðist reyndar sem margt fullorðið fólk líti á það sem hlut- verk sitt að sporna við hinum og þessum áhrifum. Sporna við far- símanotkun. Sporna við áhrifum enskunnar. Sporna við tölvunotkun. Sporna við sjónvarpsglápi. Einu sinni vildu menn sporna við áhrif- um dönskunnar. Nú tala Íslending- ar hvorki dönsku né skilja. Menn hljóta að vera ánægðir. Hættum að hata símana Þegar ég var ungur hafði sumt fólk áhyggjur af því að ég læsi of mikið. Nú hafa menn áhyggjur af því að fólk sé of mikið í símanum. Flestir kennarar banna síma og líta á það sem stórkostlegt vandamál að með- alnemandi gangi nú með nettengda ofurtölvu með myndavél og upp- tökutæki á sér. En svona er þetta. Eitthvað ungt fólk í appabransan- um verður búið að sigra heiminn og fimm sinnum áður en kennarar hætta að líta á síma nemenda sinna sem óvin númer eitt. „Ný tækni? Sóknarfæri? Nei … ógn.“ Í DAG Pawel Bartoszek stærðfræðingur Þegar ég var ungur hafði sumt fólk áhyggjur af því að ég læsi of mikið. Nú hafa menn áhyggjur af því að fólk sé of mikið í símanum. Í stríði við sóknarfærin Ein mest lesna frétt á vef RÚV á dögunum var um beygingarvillu í boðs- kortum forsætisráðu- neytisins sem send voru „vegna hátíðahalda af því tilefni að 350 ár eru liðin frá fæðingu Árna Magn- ússonar handritasafnara. Í hópi boðsgesta eru ýmsir af helstu íslenskumönnum landsins“. Okkur getur öllum orðið á og ég þekki það vel þegar „klippa-og-klístra- aðferðin“ veldur villum og tækn- in dregur athyglina frá hinu sem réttara er. Tölvur eru gagnleg tæki en þær kunna lítt að hugsa út frá málfræðireglum, einkum þegar tungumálið er flókið og fag- urt eins og íslenskan. Tilefni þessa greinarstúfs er að benda á nefnifallsfárið sem virðist verða skæðara með hverju árinu sem líður. Hefurðu tekið eftir því að ekki er lengur hægt að kaupa íbúðir í Hafnarfirði eða Kópavogi eða Ísa- firði? Í auglýsingum flestra fast- eignasala landsins eru einungis til íbúðir í Hafnarfjörður, Kópavogur og á Ísafjörður o.s.frv. Hvenær hófst þessi vitleysa? Ég tel að sökudólgurinn sé Póstur og sími, það virta og góða fyrir- tæki, sem var í eigu almennings fram að einkavæðingunni sem komst mjög í tísku fyrir hrun og sumir þingmenn stjórnar- flokkanna glingra nú við eins og nýfædd og ómálga börn. Fyrir daga póstnúmera voru bréf ætíð send til Reykjavíkur, Ísafjarðar, Hafnarfjarðar, Kópa- vogs og víðar. Þegar ég fékk bréf í pósti á mínum yngri árum var ég ætíð sagður búa á Ísafirði. Engir skrifuðu Ísafjörður í nefnifalli utan á bréf nema kannski útlendingar. Þegar póstnúmerin voru tekin upp af Pósti og síma, gerðust þeir sem því máli stýrðu sekir, að mínu mati, um mikil málspjöll. Líklega var sú skyssa þeim ómeðvituð að segja að póststöðin 400 væri á Ísafjörður og 200 í Kópavogur. Þetta þótti kannski vera fínna og „meira erlendis“ eins og stundum er sagt. Þrátt fyrir allt tókst mér í sumar að finna nýja eign í bæ með vitlausri fallbeygingu í aug- lýsingum en mikið mundi það gleðja mig ef fasteignasalar allir tækju upp hina réttu beyg- ingu staðarnafna. Sama á við um fyrir tæki á vefnum og víðar. Heldur fólk virkilega að útlend- ingar þurfi að fá allt stafað ofan í sig í nefnifalli? Geta þeir ekki fundið skrifstofur Hagkaupa í Holtagörðum? Sum fyrirtæki og stofnanir kunna þetta en önnur ekki. Hér koma dæmi af vefnum: Forsætisráðuneytið er sagt vera í Stjórnarráðshúsinu við Lækjar- torg og Mogginn í Hádegismóum en Eimskip er í Korngarðar 2. Taktu eftir nefnifallsfárinu á komandi dögum og þessum leiðin- lega „erlendishætti“ og leggðu tungunni fögru lið með því að benda þeim er reka fyrirtækin, sem eiga hvergi heima skv. réttri íslensku, á hið rétta. Þessi pistill var ekki skrifaður í Garðabær. Góðar stundir. Nefnifallsfár ÍSLENSKT MÁL Örn Bárður Jónsson áhugamaður um „ástkæra, ylhýra málið“ - Hrein snilld - Í ELDAMENNSKUNA Gerðu máltíðina enn betri með teningunum frá Bong því þeir laða fram það besta úr góðu hráefni. EKKERT MSG ENGIN TRANSFITA ENGIN LITAREFNI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.