Fréttablaðið - 29.11.2013, Síða 34

Fréttablaðið - 29.11.2013, Síða 34
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 32 Sósíalíska sambandslýðveldið Júgóslavía var formlega stofnað 29. nóvember árið 1945. Það var síðan leyst upp árið 1992 í um- brotum stríðsins á Balkanskaga. Sambandsríkin voru sex: Bosnía og Hersegóvína, Króatía, Makedónía, Svartfjallaland, Serbía og Slóvenía. Undir stjórn Josips Broz Tito kappkostaði Júgóslavía að halda hlutleysi sínu á árum kalda stríðsins og var eitt af stofnríkjum Óháðu hreyfingarinnar, sem stofnuð var í Belgrad árið 1961. Vaxandi þjóðernisstefna innan sambandsríkjanna sex á níunda og tíunda áratugnum leiddi til uppreisna og innbyrðis átaka sem að lokum leiddu til blóðugrar styrjaldar og upplausnar ríkisins. Heimild: Wikipedia TÍMAMÓT Okkar kæri bróðir, mágur og frændi, ÞÓRÐUR GUÐJÓNSSON dömuklæðskeri og bankastarfsmaður, Grettisgötu 32, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir að kvöldi laugardagsins 23. nóvember. Bálför fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 4. desember kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Guðni Guðjónsson Barbara Stanzeit Jóna S. Sigurðardóttir Helgi Þór Guðmundsson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS BJÖRG ÁSGEIRSDÓTTIR lést á heimili sínu mánudaginn 25. nóvember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 5. desember kl. 13.00. Jóhann Jörundur Halldórsson Sigrún Halldóra Jóhannsdóttir Haraldur Þór Agnarsson Særún Björg Jóhannsdóttir Guðrún Ásgerður Jóhannsdóttir Jóhann Freyr Vilhjálmsson Agnar Friðberg Þór Haraldsson Sólveig Guðrúnardóttir Ilva og Ísabella Rún Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BERGÞÓRA JENSEN andaðist á hjúkrunarheimilinu Droplaugar- stöðum föstudaginn 22. nóvember. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 4. desember kl. 13.00. Jóhanna Gunnlaugsdóttir Árni Árnason Sigríður Anný Gunnlaugsdóttir Ægir Breiðfjörð Steinunn Gunnlaugsdóttir Brjánn Árni Bjarnason barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN KJARTANSDÓTTIR frá Akrakoti, síðast til heimilis á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili, Akranesi, andaðist 25. nóvember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 3. desember kl. 14. Kjartan Björnsson Eufemia Berglind Guðnadóttir Ása María Björnsdóttir Róbert Hólm Júlíusson Ólafur Rúnar Björnsson Kristín Svafa Tómasdóttir Ellert Björnsson Björn Björnsson Sigþóra Ársælsdóttir Guðrún Björnsdóttir Róbert Jósefsson Ólafía Guðrún Björnsdóttir Kristófer Pétursson Hjördís Holm Ingi Holm og ömmubörn. Innilegar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur samúð og hlýju við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, RAGNARS PÉTURSSONAR fv. kaupfélagsstjóra. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild 2B, Hrafnistu í Hafnarfirði, fyrir hlýhug og góða umönnun. Guðrún Valdís Ragnarsdóttir Pétur Ragnarsson Jónína Ragnarsdóttir Ragnheiður Ragnarsdóttir Hanna Ragnarsdóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur bróðir okkar, REYNIR ÁGÚST ÁRNASON Hólmgarði 22, lést mánudaginn 18. nóvember. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 2. desember kl. 13.00. Systkini hins látna. Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi, sonur og bróðir, VIÐAR GÍSLASON Gautavík 27, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 23. nóvember. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 4. desember kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Andrés Viðarsson Margrét Helga Skúladóttir Telma Svava Andrésdóttir Dagbjört Ólafsdóttir Svanbjörg Gísladóttir Ester Gísladóttir Þórir Gíslason Nemendur og kennarar Salsa Ice- land munu næsta laugardag dansa til styrktar Barnaspítala Hringsins í dansstúdíói sínu á Grensásvegi 12a. Þetta er annað árið í röð sem Salsa Iceland heldur góðgerðardag. „Við munum bjóða upp á marg- víslega danstíma milli kl. 11.00 og 16.00 fyrir byrjendur jafnt sem dansvana og ekki er þörf á að mæta með dansfélaga,“ segir Edda Blöndal, stofnandi Salsa Ice- land og upphafskona átaksins. Átakið var hugmynd Eddu, en hún var í fæðingarorlofi í fyrra. „Ég hafði fengið sex tíma svefn eina nóttina, sem er nú ekki vaninn þegar maður er með nýfætt barn og mér fannst ég svo úthvíld og fín að ég ákvað að henda bara í þennan góðgerðardag í fyrra. Hann tókst svo vel að það var ekkert annað að gera en að endur- taka leikinn,“ útskýrir Edda. „Við hjá Salsa Iceland erum öll fólk með lítil börn og höfum þurft að leita á náðir Barnaspítalans þannig að okkur þótti þetta málefni vel við hæfi,“ segir hún jafnframt. Edda hefur vakið athygli fyrir átakið. „Það hrósa manni allir fyrir að vera einhver dýrlingur, en átak- ið er náttúrulega algjörlega sjálfs- elskt. Manni líður svo vel af því að hjálpa til,“ segir Edda, létt í bragði. Edda bætir við að það sé mikilvægt að við hlúum hvert að öðru. „Það er líka bara svo mikil neikvæðni í sam- félaginu og niðurskurður alls stað- ar. Við þurfum að vera góð hvert við annað. Við, dansfíklarnir, getum gert þetta – dansað fyrir málefni sem skiptir máli!“ segir Edda jafnframt. Inngangseyrir í hvern tíma er fimm hundruð krónur. „Svo eru frjáls fram- lög ef fólk vill gefa meira,“ bætir hún við. Um kvöldið verður svo haldið salsa- ball þar sem inngangseyririnn rennur einnig óskertur til Barnaspítalans. Þá verða veglegir happdrættisvinningar í boði WOW. „Öllum er velkomið að líta inn yfir daginn eða um kvöldið alveg óháð því hvort fólk vill dansa, en það vill ef til vill styrkja gott málefni,“ segir Edda að lokum. olof@frettabladid.is Dansað fyrir Hringinn Edda Blöndal, upphafskona góðgerðardags Salsa Iceland, fékk hugmyndina í fæðingar orlofi í fyrra. Hún segir gaman að dansa fyrir málefni sem skiptir máli. ENGINN DÝRLINGUR Edda Blöndal segir átakið algjörlega sjálfselskt, því henni líði vel með að verða að liði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÞETTA GERÐIST: 29. NÓVEMBER 1945 Júgóslavía var formlega stofnuð BELGRAD Fyrrverandi höfuðborg Júgóslavíu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.