Fréttablaðið - 29.11.2013, Side 47

Fréttablaðið - 29.11.2013, Side 47
SPIL FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013 Kynningarblað Ævintýralandið, Besta svarið, Spilin hjá Magna, dýrasta skáksettið, barnaleikir á netinu. , Ævintýralandið er alíslenskt spil sem byggist á þykj-ustuleik barna. Í spilinu vinna allir saman og það er tilval- ið fyrir fjölskyldur með börn á aldr- inum 4 til 12 ára. Einn leikmaður er stjórnandi leiksins. Hann er sögu- maður í ævintýri en aðrir þátt- takendur skapa og leika hver sína söguhetju í því. Sögur eru dregn- ar af handahófi og inn í þær flétt- ast talandi dýr, spennandi fólk og alls kyns hlutir sem sumir hafa yfir- náttúrulega krafta. Magnús Halldór Pálsson hefur reynslu af spilinu og er afar ánægð- ur. „Ég hafði augastað á Ævintýra- landinu frá því spilið var gefið út. Á þeim tíma var dóttir mín þó aðeins tveggja ára og því ekki tímabært að kaupa það. Í haust fór Áróra dóttir mín að segja mér sögur og brandara eins og henni þykir skemmtilegt og ég tók eftir því að sögurnar fóru að verða flóknari og ítarlegri. Þá datt mér í hug að tími væri til að festa kaup á spilinu,“ lýsir Magnús sem var sjálfur spenntur fyrir að prófa. Kvöldið eftir að Magnús keypti spilið settist hann niður með Áróru og móður hennar til að spila. „Ég var sögumaður og þær mæðg- ur spiluðu og lituðu,“ segir Magn- ús en skemmst er frá því að segja að Áróra var í skýjunum. „Þar sem móðir hennar er upptekin í skóla höfum við Áróra spilað mikið tvö saman og það þykir henni alveg jafn gaman,“ segir Magnús sem telur að Ævintýralandið geti haft mjög þroskandi áhrif. „Mér finnst sem þykjustuleikir Áróru séu orðn- ir mun f lóknari og dýpri núna,“ segir hann. Ein af mörgum jákvæðum hlið- um spilsins að mati Magnúsar er hvað það er sveigjanlegt. „Það er ekkert mál að víkja út af reglum og söguþræði. Þá tekur spilið heldur ekki langan tíma. Gert er ráð fyrir tíu mínútum á hverja sögu og því tekur um hálftíma að fara í gegn- um þrjár slíkar,“ segir hann og telur jafnframt lítið mál að laga spilið að aldri og þroska spilaranna. Magnús og Áróra eru afar náin og eyða miklum tíma við spil og lestur. Magnús telur Ævintýraland- ið enn eitt tækið til að eiga góðar stundir saman. „Foreldrið þarf að vera tilbúið að sleppa dálítið fram af sér beislinu,“ segir Magnús glettinn en bætir við að það ætti ekki að reynast erfitt enda hafi krakkarnir ekkert fyrir því að lifa sig inn í ævintýraheim- inn og foreldrarnir hrífist ósjálf- rátt með. Ímyndunaraflið fer á flug í Ævintýralandinu Ævintýralandið er skemmtilegt fjölskylduspil fyrir fullorðna og börn. Magnús Halldór Pálsson hefur spilað Ævintýralandið með dóttur sinni Áróru, fjögurra ára. Hann segir spilið veita þeim feðginum góðar samverustundir auk þess sem það þroski ímyndunarafl þeirrar stuttu. Magnús Halldór Pálsson með dóttur sinni Áróru og vini þeirra Þórarni Rúnarssyni. MYND/VALLI Höfundar Ævintýralandsins eru hjónin Rúnar Þór Þórarinsson og María Huld Pétursdóttir en hug- myndina að spilinu fengu þau árið 2001 þegar elsti sonur þeirra var lít- ill. „Þá fórum við að velta fyrir okkur hvernig væri best að tengjast honum og hvernig við gætum orðið honum náin, líka eftir því sem hann elt- ist,“ segir María og úr varð að þau ákváðu að þróa spil sem byggðist á þykjustuleik. „Enda eru krakkar í þykjustuleik alla daga,“ segir hún og brosir. Ævintýralandið varð síðan að veruleika árið 2011 þegar eldri strák- urinn var tólf ára. „Við vorum því með hugmyndina í vinnslu í tíu ár en síðustu fimm til sex árin vorum við komin með prótótýpur og gátum spilað og þróað spilið áfram þann- ig,“ útskýrir María. Í Ævintýralandinu geta foreldr- ar fengið innsýn í ímyndunarheim barnanna. „Dregnar eru sögur og lesnar upphátt og lýsa þær alls kyns verkefnum og þrautum. Börnin eru virkir þátttakendur í þeim,“ lýsir María en bendir á að stjórnandi spilsins verði að kunna að lesa enda taki foreldrar yfirleitt að sér það hlut- verk. „Barnið kemur með sínar hug- myndir um hvernig megi leysa verk- efnin,“ segir María. Þannig geti for- eldrið komist að ýmsu um hugarheim barnanna. „Maður fær að vita hvern- ig barnið hugsar sem er sérstaklega skemmtilegt hjá yngri krökkunum, þeir koma manni alltaf á óvart. Iðu- lega búa börnin sjálf til verkefni sem hvergi finnast í sögunni og þá geta hlutverkin snúist og foreldrið orðið þátttakandi í ævintýri barnanna.“ María og Rúnar stofnuðu fyrir- tækið Pælingu sem gefur út Ævin- týralandið. Þá barst þeim góður liðs- styrkur þremur árum áður en spilið kom út. „Ólafur Stefánsson hand- boltamaður heyrði af spilinu og sýndi því mikinn áhuga og fannst hugmyndin spennandi. Hann próf- aði spilið með börnunum sínum og vildi endilega taka þátt í þessu með okkur,“ segir María og bend- ir á að Ólafur hafi notað spilið tals- vert sjálfur. „Óli er fæddur sögumað- ur og hreifst af því hvernig ævintýrið sprettur upp úr samskiptum á milli þeirra sem spila og þroskar skapandi hugsun og orðfæri.“ Þróuðu Ævintýralandið í tíu ár Höfundar spilsins, Rúnar Þór Þórarinsson og María Huld Pétursdóttir, fengu hugmyndina að Ævintýralandinu þegar eldri sonur þeirra var lítill. MYND/VALLI Frábær íslensk spilahönnun Ármann Halldórsson, kennari og spilahönnuður, skrifaði dóm um Ævintýralandið á bloggsíðu sinni en hann hafði spilað spilið með dætrum sínum 7 og 11 ára. Hér eru nokkrir punktar sem hann setti fram um kosti spilsins: – Í þessu spili er unnið með hug- myndir úr klassískum spunaspil- um, þær einfaldaðar og snikkaðar til, til að henta yngri spilurum. Það eru karakterblöð þar sem eru sex eiginleikar sem maður getur raðað á fimm stjörnum í upp- hafi. Að auki getur maður fengið verkfæri, félaga, furðuhluti og hluti. Spilahópurinn glímir svo saman við ákveðin verkefni/sögur og fær að launum peninga – peningarnir koma í stað reynslustiga (XP). Það sem minni sjö ára finnst mest spennandi er að fá að kaupa nýja hluti, öðrum finnst mest gaman að lita karakterana sína og aðrir lifa sig inn í sögurnar. – Kostur við þetta spil er að í því er mikill sveigjanleiki, maður losnar við samkeppni (þó ekki alveg, því gæta þarf að því að allir hafi sitt hlutverk í hverri sögu). Annar kostur er að spilið er fallega hannað, teikningarnar eru flottar og það ýtir undir ímyndunaraflið. – Þá tel ég að hér sé um frábæra íslenska spilahönnun að ræða og ég vona að það komi fleiri svona spil á markað. – Ég tel líka að þetta spil eigi fullt erindi inn í skólastofuna og frístunda- heimilin þar sem hér er ýtt undir samvinnu og samræður, læsi, tölvísi, rýmisskynjun, leikræna tjáningu og margt annað það sem góð spil geta gert – áfram Ævintýralandið!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.