Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.11.2013, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 29.11.2013, Qupperneq 78
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 48 Ég fann draumaprinsinn minn– allt ykkur að þakka. Við erum bæði mjög ánægð og undrandi. - Kona 26 ára Ég fann konu hér. Bauð henni uppá ís og þá vorum við búin að vera í sms-bandi. Við vorum tilbúin að hittast og fá okkur ís. Ég bauð henni upp á JoJo-ís, er hún var búin að fylla sína ísdós þá kom ég til að borga með korti, en því var hafnað. Þá voru góð ráð dýr. Ég sagði að ég þyrfti að redda þessu með peningana. Bað hana að bíða eftir mér, er ég kom aftur var hún ekki búin að missa áhugann á karl- inum. Við hlógum að þessu af því að ég var með pening í vasanum til að borga ísinn. Við erum enn saman, og þakka ég Makaleit fyrir mig. Mjög sáttur í dag enda náði ég í yndislega og góða konu - Maður 55 ára Já ég fann félaga á vefnum sem ég er mjög ánægð með og hef ráðlagt öllum einhleypum sem ég þekki að prufa vefinn ykkar - Kona 46 ára REYNSLUSÖGUR NOTENDA MAKALEITAR.IS Match.com er ein fyrsta stefnumótasíðan á netinu og var opnuð árið 1995. Síðan er sú stærsta í heiminum en aðrar helstu stefnumótasíður á markaðinum eru eHarmony, PlentyOfFish og OK Cupid. Sumar stefnumótasíður skera sig úr fjöldanum. ScientificMatch býður til dæmis upp á pörun út frá DNA-mengi og segir það auka tíðni fullnæginga kvenna. Síðan Ashley Madison tengir maka sem eru að halda framhjá. Þá eru einnig til síður sem sérhæfa sig í sérstökum þjóð- ernis- eða trúarhópum. JDate er fyrir gyðinga, Christian Mingle og ChristianCafe fyrir kristið fólk, Love from India og Shaadi fyrir einhleypt, indverskt fólk, Amigo fyrir spænskumælandi einstak- linga og Asian People Meet fyrir fólk af asískum uppruna. ➜ Stefnumótasíður við allra hæfi FRÓÐLEIKUR UM STEFNUMÓTAVENJUR BANDARÍKJAMANNA 11% fullorðinna Banda- ríkja manna hafa notað stefnumótasíður á net- inu eða stefnumóta- smáforrit. 38% af þeim sögðust vera einhleypir og að leita sér að maka. 66% þeirra Banda- ríkjamanna sem hafa notað stefnumótasíður á netinu hafa farið á stefnumót með ein- hverjum sem þeir hittu á vefsíðu eða í gegnum smáforrit. 23% þeirra Banda- ríkjamanna sem hafa notað stefnumótasíður á netinu hafa hitt maka sinn á síðunum. 42% Bandaríkja-manna þekkja einhvern sem nýtir sér stefnu- mótasíður. 29% Bandaríkja-manna þekkja einhvern sem hefur nýtt sér stefnu- mótasíður til að fi nna maka. 33% Bandaríkja-manna hafa borgað fyrir að skrá sig á stefnu- mótasíðu eða keypt stefnumótasmáforrit. 24% Bandaríkja-manna hafa daðrað við ein- hvern á netinu. * Heimild: Könnun sem var gerð af Princeton Survey Research Associates International 17. apríl til 19. maí á þessu ári. „Vefurinn fór í loftið 2. mars á þessu ári og nú eru 2.300 virkir notendur á síðunni. Okkar markhópur er fólk sem er að leita að ástinni og lífsförunaut, ekki fólk sem leitar að skyndi- kynnum,“ segir Björn Ingi Halldórsson, hönn- uður stefnumótasíðunnar Makaleit.is. Hann segir marga hafa fundið maka í gegnum síðuna. „Töluverður fjöldi hefur fundið ástina á síð- unni og það er mjög gaman að sjá að þetta ber árangur. Þetta byrjaði sem áhugamál hjá mér en er mjög gefandi. Það er sérstök tilfinning að vita að þetta virkar í alvörunni.“ Björn Ingi er einnig hæstánægður með að afar lítið hafi verið um að fólk misnoti vefinn. „Allar myndir fara í gegnum samþykktar- ferli áður en þær birtast. Það eru ekki allir not- endur sem setja inn mynd af sér en langflestir. Það eru hátt í tvö þúsund myndir á vefnum og hingað til hef ég aðeins hafnað tveimur því þær voru af kynferðislegum toga. Þá hef ég aðeins fengið þrjár tilkynningar um að notandi sé að misnota vefinn frá öðrum notendum. Það segir mikið um fólkið sem skráir sig.“ Björn Ingi leggur mikið upp úr því að vef- urinn sé smekklegur og segir kynjahlutfallið jafnt. Hann er með alls kyns nýjungar í bígerð og byrjar með hraðstefnumót á mánudaginn á Hressó hressingarskála. Þátttakendur þurfa að vera skráðir notendur Makaleitar.is til að skrá sig en hægt er að fá fría prufuáskrift í tíu daga. Þegar prufuáskriftin er liðin kostar aðgangur- inn 490 krónur á mánuði. „Fyrsta hraðstefnumótið er fyrir fólk á aldr- inum 50 til 65 ára, mánudaginn á eftir fyrir 30 til 40 ára og því næst fyrir 20 til 30 ára og kost- ar aðeins 995 krónur. Hraðstefnumótið fer fram í lokuðum sal og mér datt í hug að skipta stefnu- mótinu í tvo hluta. Í fyrri hlutanum fá allir þrjár mínútur með einstaklingi af hinu kyninu og þurfa að svara þremur léttum spurningum saman. Það er góð leið til að brjóta ísinn því í seinni hlutanum er frjálst spjall í fimm mín- útur og þá hefur fólk eitthvað til að tala um. Ef þessi hraðstefnumót gefast vel hef ég í hyggju að bjóða upp á aðrar uppákomur þar sem fólk getur hist í öruggu umhverfi,“ segir Björn Ingi og bætir við að framtíð Makaleitar.is sé björt. liljakatrin@frettabladid.is Fjölmargir fi nna ástina á Netinu Björn Ingi Halldórsson er maðurinn á bak við stefnumótasíðuna Makaleit.is. Síðan hefur verið opin í tæplega ár og hafa fj ölmargir notendur fundið sinn lífs- förunaut á vefnum. Björn segir nánast ekkert um það að fólk misnoti síðuna. 44% ➜ 2005 59% ➜ 2013 47% ➜ 2005 53% ➜ 2013 29% ➜ 2005 21% ➜ 2013 n/a ➜ 2005 32% ➜ 2013 Skoðanir fólks á stefnumótum á netinu Stefnumót á netinu er góð leið til að kynnast fólki Stefnumót á netinu gera fólki kleift að fi nna maka sem passar því betur Fólk sem notar stefnu- mótaþjónustur á netinu er örvæntingarfullt Stefnumót á netinu hamla því að fólk festi ráð sitt Heimild: Pew Research Center‘s Internet & American Life Project í Bandaríkjunum. Könnunin árið 2005 var framkvæmd 14. september til 8. desember. 3.215 manns, átján ára og eldri, tóku þátt. Könnunin í ár var framkvæmd 17. apríl til 19. maí. 2.252 manns, átján ára og eldri, tóku þátt. Allir sem tóku þátt eru búsettir í Bandaríkjunum. Markmiðið er að halda áfram að þróa vefinn og stækka hann. AMOR INTERNETSINS Björn Ingi og síðan hans koma fólki saman. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Ég keypti Eldsmiðjuna árið 1994 og vakti og svaf á gólfinu. Ég vann þar alla daga og hunsaði slappleika sem ég fann fyrir. Fimm árum síðar leið yfir mig í vinnunni og þá fór ég upp á sjúkrahús. Það kom í ljós að ég var með heilahimnubólgu og ég þurfti að liggja á spítala í tvær vikur. Ég var heppinn að lifa af. Ég fór ansi nálægt því að fara yfir móð- una miklu,“ segir Þorleifur Jónsson, betur þekktur sem Tolli, sem opnar veitingastað- inn La Luna í keiluhöllinni í Öskjuhlíð og Egilshöll í næstu viku. Hann segist hafa lært sína lexíu. „Ég lærði af þessu að vinna aðeins minna. Ég fékk mann til að leysa mig af og sá þá að ég hafði alveg efni á því. Ég dró mig meira og meira úr daglegum rekstri þangað til ég gat stjórnað fyrirtækinu og notið þess að eiga það. Ég seldi Eldsmiðjuna árið 2007 en þá átti ég einn mánuð eftir í þrettán árin. Ég þorði ekki að fara í þá tölu.“ Tolli keypti La Luna í mars í fyrra og rak staðinn á Rauð- arárstíg þangað til fyrir stuttu. „Staðsetningin hentaði ekki og mér var boðið að koma með fyrirtækið inn í Keilu- höllina þannig að ég stökk á það. Ég á mjög stóran aðdáendahóp sem ég vissi ekki um fyrr en staðnum á Rauðarárstíg var lokað. Það var grátur og gnístran tanna þegar hann lokaði. Fólk hringdi í mig og grenjaði. Það lá við að ég hefði búið til pitsur í eld- húsinu heima enda margir sem sögðust ekki ætla að borða pitsur fyrr en ég myndi opna aftur,“ segir Tolli. Hann býður fylgjendum La Luna á Facebook í generalprufu í Egils- höll um helgina. Hann segist vera frumkvöð- ull í pitsubakstri. „Árið 1996 bjó ég til Pepperoni Special og breytti pitsunni á Íslandi til frambúðar. Mat- seðillinn sem ég bjó til það ár er enn í notkun á ýmsum pitsustöðum. Ég hef verið kallaður pitsuhvíslarinn.“ liljakatrin@frettabladid.is Breytti pítsubransanum og er kallaður pítsuhvíslarinn Þorleifur Jónsson opnar La Luna í keiluhöllinni í Egilshöll og Öskjuhlíð. Hann segist vera frumkvöðull í pitsubakstri á Íslandi. FRUMKVÖÐULL Tolli byrjaði að bjóða upp á súrdeigs- pitsur í fyrra á undan öllum öðrum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.