Fréttablaðið - 29.11.2013, Síða 84

Fréttablaðið - 29.11.2013, Síða 84
29. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 54 visir.is Frekari umfjöllun um Olísdeild karla. FÓTBOLTI Selfoss átti spútniklið Pepsi- deildarinnar síðastliðið sumar en liðið hafnaði í 6. sæti deildarinnar. Þrír útlendingar voru fengnir til liðsins sem annars var að mestu leyti byggt á heimastelpum. „Við erum dálítið montin af því hve margar ungar stelpur af Suðurlandinu eru í liðinu okkar. Ætli við höfum ekki verið með yngsta liðið,“ segir Gunnar Rafn Borgþórsson, þjálfari Selfoss, ánægður með árangurinn. Hann hafi verið betri en búist var við en í takt við vonir þeirra. Á engan er hallað þegar sagt er að Guðmunda Brynja Óladóttir hafi farið fyrir Selfyssingum. Framherjinn, sem skoraði ellefu af nítján mörkum liðsins í deildinni auk þess að leggja upp tvö, hefur verið afar eftirsótt hjá öðrum íslenskum félögum. „Það voru mörg félög sem vildu kaupa hana, sem er ekki algengt í íslenskum kvennafótbolta,“ segir Gunnar Rafn um stjörnu liðsins. Hann segist hafa sest niður með Guðmundu strax eftir tímabilið og ákvörðunin hafi í raun verið sett í hennar hendur. „Hefði hún séð sér hag í því hefði hún að sjálfsögðu fengið að fara.“ Aðspurður um markmið næsta tímabils segir Gunnar Rafn Selfyss- inga ekki fara fram úr sér. Horft sé til lengri tíma í uppbyggingu liðsins. „Auðvitað vilja allir byggja upp á sínum heimastelpum. Við tökum aldrei fleiri en þrjá útlendinga,“ segir þjálf- arinn sem ætlar að treysta á sömu íslensku stelpurnar og síðastliðið sumar. Þær séu efnilegar og reynsl- unni ríkari. Búinn að ræða við Dagnýju „Ég ætla ekki að henda þeim út fyrir einhverjar fallbyssur sem geta komið okkur upp um tvö eða þrjú sæti í deildinni.“ Gunnar Rafn finnur ekki fyrir neinni pressu eða stressi um skjótan árangur á Selfossi. Markmiðið sé að festa liðið í sessi. Innan nokkurra ára standi vonir til að liðið verði að stöð- ugu liði í efri hluta deildarinnar. Þótt liðið sé skipað ungum stelpum hefur hann ekki áhyggjur af of miklu álagi á unga fætur. Leikmenn ættu ekki að þurfa að vera lykilmenn bæði í 2. flokki og meistaraflokki eins og oft vill verða. „Við erum sem betur fer með fjöl- mennan 2. og 3. flokk. Það eru margar stelpur af Suðurlandinu sem leita til okkar því hér er faglegt og gott starf,“ segir Gunnar. Einn Sunn- lendingur hefur verið orðaður við endurkomu upp á síðkastið. Landsliðskonan Dagný Brynj- arsdóttir, sem spilar með Florida State-háskólanum í Bandaríkjunum og spilað hefur með Val undan- farin sumur, er uppal- in á Hellu. Hún er samnings- laus og veltir möguleikum sínum fyrir sér. „Ég er að sjálfsögðu búinn að tala við hana eins og örugglega allir þjálf- arar í Pepsi-deildinni,“ segir Gunn- ar Rafn. Hann telur þó ólíklegt að Selfoss verði fyrir valinu og reyndar íslensk lið yfirhöfuð. Hans tilfinning sé að miðjumaðurinn spili ytra næsta sumar. kolbeinntumi@frettabladid.is SPORT MÖRG FÉLÖG VILDU KAUPA GUMMU Selfyssingar tjalda ekki til einnar nætur þegar kemur að kvennaliðinu í knattspyrnu. Liðið er skipað ungum stelpum og þjálfarinn ætlar að treysta á þær í framhaldinu en ekki fá stór nöfn til liðsins. Miklu máli skiptir að sú besta verði áfram hjá Suðurlandsliðinu. Leikmaður Félag Mörk Mörk liðs Hlutfall Guðmunda Brynja Óladóttir Selfoss 11 19 58% Telma Hjaltalín Þrastardóttir Afturelding 8 17 47% Harpa Þorsteinsdóttir Stjarnan 28 69 41% Ashlee Hincks FH 12 35 34% Elín Metta Jensen Valur 17 53 32% Shaneka Gordon ÍBV 13 43 30% Berglind Bjarnadóttir HK/Víkingur 5 20 25% Sandra María Jessen Þór/KA 9 38 24% Greta Mjöll Samúelsdóttir Breiðablik 9 38 24% Mackenzie Scovill Þróttur 3 13 23% Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@frettabladid.is Þær mikilvægustu í Pepsi-deildinni 2013 Við erum dálítið montin af því hve margar ungar stelpur af Suðurland- inu eru í liðinu okkar. Gunnar Rafn Borgþórsson þjálfari Selfoss Guðmunda skoraði 58% marka Selfoss liðsins í sumar. 42% markanna dreifðust á aðra leikmenn liðsins. MARKASKOR 17 ára landslið 19 ára landslið Mfl. Selfoss FÉLAG SELFOSS FÆÐINGARÁR 1994 LEIKIR LEIKIR LEIKIR MÖRK MÖRK MÖRK FÓTBOLTI Fulltrúar okkar í Evrópudeild UEFA áttu góðan dag í gær. Jóhann Berg Guðmundsson skoraði síðara mark hollenska liðsins AZ Alkmaar í 2-0 sigri á Maccabi Haifa frá Ísrael en með sigrinum er AZ öruggt áfram í 32-liða úrslit keppninnar, þó að enn sé ein umferð eftir af riðlakeppninni. Aron Jóhannsson var einnig í byrjunarliði AZ en var tekinn af velli á 81. mínútu. Tottenham vann sinn fimmta sigur í jafn mörgum leikjum í sínum riðli, í þetta sinn gegn Tromsö í norðurhluta Noregs, 2-0. Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn og átti þátt í báðum mörkum enska liðsins. Tottenham er nú öruggt með efsta sæti síns riðils. Ólafur Ingi Skúlason var í byrjunarliði Zulte-Ware- gem sem vann góðan sigur á Wigan, 2-1. - esá Jóhann Berg skoraði og Gylfi lagði upp HANDBOLTI FH var nálægt því að snúa vonlausri stöðu gegn Haukum sér í hag í toppslag Olísdeildar karla og Hafnarfjrðarrimmu af bestu gerð í gærkvöldi. Haukar unnu, 31-27, en FH náði að minnka muninn í tvö mörk eftir að hafa verið tíu mörkum undir þegar aðeins fjórtán mínútur voru eftir af leiknum. Fram og ÍR unnu einnig sigra í sínum leikjum í deildinni í gær. - esá Ótrúleg endurkoma FH dugði ekki til gegn Haukum NÍU MÖRK EKKI NÓG Ásbjörn Friðriksson, FH, í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.