Fréttablaðið - 14.12.2013, Page 4

Fréttablaðið - 14.12.2013, Page 4
14. desember 2013 LAUGARDAGUR | FRÉTTIR | 4 Fjöldi flóttamanna frá Sýrlandi FLÓTTAMENN Einungis hálft prósent af þeim 2,3 milljónum flóttamanna, sem streymt hafa frá Sýrlandi til nágrannalandanna, hefur fengið vilyrði um hæli. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá mannréttindasamtökunum Amnesty International, þar sem spjótunum er sérstaklega beint að Evrópuríkjum fyrir að hafa ekki tekið við fleirum. Aðeins tíu af 28 ríkjum Evrópu- sambandsins hafa tekið við flótta- mönnum frá Sýrlandi, en Þjóðverj- ar hafa verið duglegastir. Þeir ætla að taka við tíu þúsund flóttamönn- um frá Sýrlandi, en öll hin ríkin taka aðeins við 2.340 manns sam- tals. „Evrópusambandið hefur með ömurlegum hætti brugðist því að taka sinn þátt í að útvega flótta- mönnum, sem glatað hafa öllu nema lífi sínu, öruggt skjól,“ segir Salil Shetty, framkvæmdastjóri samtakanna. „Fjöldi þeirra sem það er reiðubúið til að taka við er smánarlegur. Leiðtogar aðildar- ríkja Evrópusambandsins ættu að skammast sín.“ Alls hafa ríki heims ekki opnað landamæri sín fyrir nema 15 þús- und flóttamönnum frá Sýrlandi. Að undanskildum nágrannaríkjunum, sem hafa ekki átt annarra kosta völ en að taka við meira en tveimur milljónum manna. Í smáríkinu Líbanon eru nú 835 þúsund sýrlenskir flóttamenn. Í Jórdaníu eru 566 þúsund manns komnir. Þessi tvö lönd hafa í reynd haft landamærin til Sýrlands gal- opin. Allir sem vilja, fá að fara yfir landamærin. Evrópulönd taka við fáum flóttamönnum frá Sýrlandi Amnesty International gagnrýnir Evrópulönd harðlega í nýrri skýrslu fyrir að taka ekki við nema örlitlu broti af þeim tveimur milljónum flóttamanna, sem streymt hafa frá Sýrlandi til nágrannalanda síðustu misserin. Í Tyrklandi eru auk þess 536 þúsund flóttamenn og til Íraks eru komnir 207 þúsund flóttamenn frá Sýrlandi. Þeir flóttamenn frá Sýrlandi, sem reyna að komast inn fyrir landamæri Evrópusambandsins, reyna flestir að komast til Grikk- lands og Búlgaríu. Þar er þeim hins vegar tekið afar fjandsamlega, að sögn Amnesty International. Þeir sem komast til Búlgaríu eru settir í fangelsi og búa þar við ömurleg skilyrði, en þeir sem kom- ast með bátum til Grikklands eru iðulega sendir aftur út á haf, jafn- vel þótt augljóst sé að verið sé að senda þá beina leið í lífshættu. gudsteinn@frettabladid.is Aðeins 16 lönd hafa til þessa gefi ð staðfest loforð um móttöku fl óttamanna frá Sýrlandi Heimildir: Amnesty International, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna Austurríki 500 Finnland 500 Frakkland 500 Svíþjóð 400 Þýskaland 10.000 Ungverjaland 10 Írland 90 Moldóva 50 Ísland 0 Noregur 1.000 Lúxemborg 60 Liechtenstein 4 Holland 250 Sviss 50 Spánn 30 ESB í heild 12.340 ESB að undanskildu Þýskalandi 2.340 Ástralía 500 Kanada 1.300 Bandaríkin Ótakmarkaður fj öldi Samtals 15.244 auk viðbótar- fj ölda til Bandaríkjanna SJÁVARÚTVEGUR Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráð- herra hefur gefið út hvalveiði- kvóta næsta árs og er kvótinn í samræmi við ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar. Leyfðar verða veiðar á 229 hrefnum á landgrunnssvæðinu og 154 langreyðum en það á að samrýmast markmiðum um sjálf- bæra nýtingu. - jme Ráðherra gefur út kvóta: 229 hrefnur og 154 langreyðar UTANRÍKISMÁL Sjötta hver króna sem ríkissjóður greiddi á síðasta ári í það sem flokkast til opin- berrar þróunaraðstoðar er vegna starfa Íslendinga hér heima og á erlendum vettvangi. Þetta kemur fram í frétt Viðskiptablaðsins. Samtals eru þetta um 540 millj- ónir af heildarframlagi Íslend- inga sem nam um 3,3 milljörð- um árið 2012. Um 170 milljónir voru vegna starfa Íslendinga hér innanlands eða um 5,2 prósent af heildarframlagi Íslendinga. Samtals fara um 16,4 prósent af allri þróunaraðstoð Íslands í kostnað við störf Íslendinga. Um er að ræða 19,5 starfsgildi hér á landi en 18,65 starfsgildi á erlendum vettvangi. - hrs Þróunaraðstoðin deilist víða: 16% fara í störf Íslendinga AÐSTOÐ Íslensk þróunaraðstoð hefur meðal annars farið í að byggja upp skóla og sjúkrahús í Malaví. MYND/GUNNAR SALVARSSON 7.13.2013 ➜ 13.12.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is 1.152 kostar að vinna örugglega í Lottói kvöldsins. Vinn- ingurinn verður um 125 milljónir króna. Nei, er svarið við því hvort ráðlegt er að stökkva til með þessa upphæð. Áhættan er mikil ef spilarar, tveir eða fleiri, deila með sér vinningnum. 118 milljarðar á Norðurlöndunum miðað við fyrra ár. Markað- urinn er því tvöfalt stærri en á Íslandi. erlendir nem- endur frá 87 löndum stunda nám við Háskóla Íslands– frítt. 16% raunlækkun varð á fjárveit- ingum til HÍ milli áranna 2008 og 2012. er heildarvelta 13 fyrirtækja sem fengu styrk úr Tækni- þróunarsjóði árið 2005. 56% Aðeins biðu 3 eftir hjarta- þræðingu um mitt ár 2011. Í október voru þeir dagar eru til jóla! 85.541.040 kr. 10 123 Frumkvöðlar á Austurlandi vilja bjóða ferðafólki að ganga úr Lóni í Fljótsdal sem er um 100 km langur spotti. Það tekur 7 daga að ganga alla leiðina. Sala á skyri hefur aukist um Pfaff Grensásvegi 13 Sími 414 0400 www.pfaff.is Aðeins í dag! SINGER OVERLOCKVÉL Verð áður: 69.900,- Tilboð: 54.900,- Opið í dag, laugardag frá kl. 11–16 Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Mánudagur Vaxandi SV-átt. GÓÐVIÐRI UM HELGINA Í dag verður hæg suðvestanátt með stöku éljum vestantil en annars bjartviðri. Hiti um og undir frostmarki en frostlaust við suðurströndina. Hæglætis veður, léttskýjað og kólnar á morgun. -1° 2 m/s 2° 5 m/s 0° 3 m/s 4° 7 m/s Á morgun Hæg suðlæg en stíf NA-átt SA-til. Gildistími korta er um hádegi 0° -2° -4° -6° -6° Alicante Basel Berlín 18° 4° 5° Billund Frankfurt Friedrichshafen 7° 4° 5° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 5° 5° 21° London Mallorca New York 11° 18° 1° Orlando Ósló París 27° 1° 8° San Francisco Stokkhólmur 15° 3° 0° 4 m/s 2° 8 m/s 0° 4 m/s 1° 8 m/s 0° 2 m/s 0° 5 m/s -5° 5 m/s -1 -2° -2° -2° -3°
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.