Fréttablaðið - 14.12.2013, Page 24
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
Dagur Hjartarson ljóðskáld
Lúdó og Passíusálmar
Vinur minn Palli Magg var búinn að bjóða mér í lúdó
með víðri skírskotun. Svo var hann eitthvað að tala
um að lesa upp Passíusálmana afturábak standandi
á haus. Þetta verður svona klassísk strákahelgi.
Gerður Kristný
rithöfundur
Sundmót og sin-
fóníutónleikar
Ég ætla á jólasundmót
KR með syni mínum og á
jólatónleika Sinfó í Hörpu.
Klukkan 17.15 verð ég með
jólahugvekju í Hannesar-
holti.
Anna Pála Sverrisdóttir
formaður Samtakanna 78
Jólahald í Brasilíu
Eftir annasama viku flýg ég til
Amsterdam í dag. Kærastan
mín mun sýna mér borgina í
einn dag og á morgun fljúgum
við til Brasilíu þar sem við
eyðum jólunum með frænd-
fólki kærustunnar og gamlárs-
kvöldi á ströndinni í Ríó!
Margrét Erla Maack
sirkuslistakona
Skemmtir rithöfundi
Ég mæti útúrhæpuð í útvarp-
ið í Grínista hringborðsins
á Rás 2. Í kvöld ætla ég fínt
út að borða með Bjössa vini
mínum og svo spilum við
partýmúsík í fimmtugsaf-
mæli rithöfundar.
Tónlistarmennirnir Snorri Helgason og Lay Low blása í kvöld til tónlistar-veislu á skemmtistaðn-um Gaukur á Stöng. Lay Low og Snorri sendu
bæði frá sér breiðskífu á árinu;
Lay Low gaf nýverið út plötuna
„Talking About the Weather“ en
plata Snorra ber nafnið „Autumn
Skies“.
Snorri og Lay Low hafa þekkst
í mörg ár en þau voru saman í
menntaskóla. Þau eru ekki óvön
samstarfi en það hófst í haust og
hafa þau nú þegar haldið nokkra
tónleika saman. Þau koma bæði
til með að spila nýtt efni af nýju
plötunum sínum í bland við gam-
alt, svo búast má við bæði fjöl-
breyttum og huggulegum tónleik-
um. „Það kemur svo bara í ljós á
tónleikunum sjálfum hvort við
komum til með að spila einungis
hvort í sínu lagi eða hvort við spil-
um eitthvað saman. Svo er alveg
möguleiki að við verðum með eitt-
hvað smá jólaþema í tilefni árstím-
ans. Við ætlum líka bæði að selja
plöturnar okkar á staðnum á vínyl
svo fólk getur komið og keypt af
okkur í jólagjafir. Mér finnst alltaf
svo miklu persónulegra og meira
kósý að kaupa verkin beint af lista-
manninum heldur en að kaupa
þau bara út í búð,“ segir Lay Low.
Hún fluttist nýverið búferlum frá
Reykjavík og býr í Ölfusi. Hún seg-
ist hafa orðið fyrir miklum áhrif-
um frá landsbyggðinni síðan hún
flutti og þeirra gætir á nýju plöt-
unni hennar „Það er alveg óhjá-
kvæmilegt að verða fyrir áhrifum
þegar maður er svona í kyrrð og
rólegheitum. Svo hefur náttúran
auðvitað áhrif á alla, ekki bara
listamenn heldur allt fólk. Það
verður ekki hjá því komist.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Lay
Low heldur tónleika í Reykjavík
síðan hún hélt útgáfutónleika fyrir
nýju plötuna sína í haust. „Síðan þá
er ég bara búin að vera að spila úti
á landi,“ segir Lay Low. „Gaukur-
inn hafði samband bæði við mig
og Snorra og bað okkur að spila á
þessum tónleikum saman. Okkur
fannst það bara tilvalið svo við
ákváðum að slá til. Það er gaman
að breyta til og spila í Reykjavík
aftur.“ Tónleikarnir verða haldn-
ir á Gauknum í kvöld, húsið opnar
klukkan níu og miðaverð er 2.000
krónur.
HELGIN
14. desember 2013 LAUGARDAGUR
Gallerí Kunstschlager er á Rauðar-
árstíg 1. Þar eru haldnar mánaðar-
legar myndlistarsýningar ásamt því
að í galleríinu er vikulega kynntur
til leiks listamaður vikunnar. Næst-
komandi laugardag verður haldinn í
galleríinu árlegur jólabasar, en þar
gefst listamönnum kostur á að selja
myndlistarverkin sín fyrir jólin.
„Það verða til sölu listaverk eftir
alls konar fólk en pælingin er að
gefa fólki tækifæri til þess að kaupa
hjá okkur myndlist til að lauma í
jólapakkana,“ segir Þorgerður Þór-
hallsdóttir, einn skipuleggjenda bas-
arsins. „Það mega hverjir sem er
koma til okkar og selja verkin sín.
Hugmyndin er að vekja athygli á að
það er sniðugt að fjárfesta í mynd-
list. Það verða til sölu alls konar
listaverk og við hvetjum alla list-
unnendur og líka bara þá sem eru
forvitnir um list að koma og skoða
og kaupa hjá okkur. Það verða léttar
veitingar í boði og mikil stemning.
Við sem rekum galleríið og nokkrir
listamannanna verðum á svæðinu
og tökum á móti fólki. Svo verður
að sjálfssögðu posi á staðnum.“
Dagskráin hefst klukkan fjögur
en þá byrjar sjálfur jólabasarinn.
Klukkan fimm verður svo haldið
útgáfuhóf í tilefni af útgáfu tíma-
ritsins Listvísir sem er tímarit
eftir nemendur í Myndlistaskólan-
um. Jólabasarinn heldur svo áfram
fram á kvöld og verður opinn fram
að jólum. Í fyrra tóku 60 listamenn
þátt í basarnum og von er á enn
fleirum í ár. Basarinn verður opinn
alla daga fram að jólum frá 16-20.
- jme
Listaverk eru tilvalin jólagjöf
Jólabasar í Galleríi Kunstschlager verður opnaður í dag. Þar munu ýmsir lista-
menn selja myndlistarverkin sín og verður basarinn opinn fram að jólum.
JÓLABASAR Þorgerður Þórhallsdóttir, Claudia Hausfeld, Sindri Leifsson og Guðlaug
Eyþórsdóttir með nokkur verkanna sem seld verða á jólabasar í Galleríi Kunst-
schlager í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Höfum verið vinir
síðan í menntaskóla
Lay Low og Snorri Helgason stilla saman strengi sína á tónleikum á Gauk á
Stöng og spila nýtt efni í bland við gamalt. Á staðnum verður einnig hægt að
kaupa breiðskífur þeirra á vínylformi en það er tilvalin jólagjöf.
GAMLIR VINIR Snorri Helgason og Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir munu spila
nýtt efni í bland við gamalt á huggulegum tónleikum á Gauknum í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Júlía Margrét
Einarsdóttir
LÉTTARI JÓ LAMATSEÐILL
Miðbæjarmenning við Ingólfstorg
Þriggja rétta á Fjalakettinum.
Kvöldið á skilið rómantík.
VERÐ: 7.990 KR.
Aðalstræti 16 / 101 Reykjavík / Sími 514 6060 / www.fjalakotturinn.is
Brjóstahaldari
kr. 4.990.
Nærbuxur
kr. 2.490.