Fréttablaðið - 14.12.2013, Síða 98

Fréttablaðið - 14.12.2013, Síða 98
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 70 endingu sæst við það sem maður finnur að lokum. Viðkunnanlegur maður, Wilson? Ójá, það fannst mörgum. Hann varð heilmikil hetja í fjölmiðlum út á baráttu sína gegn klík- unum við Princeton háskóla og 1910 ákvað hann að láta slag standa og útvíkka baráttu sína fyrir betra samfélagi, hann var þá flestum að óvörum kosinn ríkisstjóri New Jersey, óreyndur í pólitík með öllu, en þótti strax lofa svo góðu í embætti að 1912 völdu demókratar hann sem forsetaefni sitt og hann náði að komast alla leið í Hvíta húsið. Barátta hans var háð á grunni mannrétt- inda, ekki réttinda auðhringa. Og í Hvíta húsinu gerðist Wilson afar umsvifamik- ill forseti, „Nýtt frelsi“ hét stefna hans og dró að ýmsu leyti dám af framfaramálum þeim sem Theodore Roosevelt fyrrum for- seti hafði haldið á lofti, en Wilson tókst með hægð sinni og seiglu að koma öllu fleira í framkvæmd en Teddy hafði lukk- ast. Stuttur listi yfir þær helstu lagasetn- ingar sem honum tókst að koma gegnum þingið: stofnun bandaríska seðlabankans Federal Reserve System, lög gegn tollmúr- um og hömlum á frjálsri verslun, lög gegn hringamyndun í atvinnulífi og hvers konar spillingu, lög um átta stunda vinnuviku og lög gegn barnaþrælkun. Þeim var ætlað að stemma stigu við því að börnum væri þrælkað út í námum og í verksmiðjum. Reyndar úrskurðaði Hæstiréttur Banda- ríkjanna að barnalögin brytu í bága við stjórnarskrá og kaupsýslumönnum yrði að vera heimilt að „ráða“ börn í vinnu en lögin sýndu þó góða viðleitni og svipuð lög voru svo á endanum sett nokkru seinna. Sanngjarnar hugmyndir Og fleiri þjóðþrifamálum tókst Wilson að koma gegnum ameríska þingið, þótt oftar en ekki hömuðust hinar gömlu pólitísku klíkur spilltra stjórnmálamanna og auð- kýfinga gegn fyrirætlunum hans. Hann storkaði til dæmis mörgum þegar hann skipaði Gyðing í embætti hæstaréttardóm- ara, en það var fyllilega í samræmi við stuðning hans við margvíslega minnihluta- hópa. Wilsons verður þó ekki síst minnst fyrir framgöngu sína á alþjóðavettvangi – fyrri heimsstyrjöldin braust út í Evrópu í forsetatíð hans og hann lýsti sig lengi and- vígan því að Bandaríkjamenn skiptu sér nokkuð af þeim hryllingi öllum, en 1917 var það ekki lengur raunhæft og Wilson virkj- aði allan hinn mikla hernaðarmátt Banda- ríkjanna í þágu Vesturveldanna. Hann setti síðan fram nákvæmar hugmyndir um hvernig skyldi skipa málum þegar styrjöld- inni lyki, og þóttu þær bæði sanngjarnar og raunhæfar. Hann beitti sér líka fyrir stofn- un Þjóðabandalagsins sem var sérstaklega ætlað að koma í veg fyrir nýja heimsstyrj- öld, en veiktist illa árið 1919 og gat því ekki beitt sér fyrir því að Bandaríkjamenn yrðu með í bandalaginu. Án Bandaríkjanna skorti Þjóðabandalagið þann slagkraft sem ella hefði máske dugað til að halda aftur af stríðsherrum á fjórða áratugnum. Kynþáttahatari og ekkert annað Og ykkur finnst Wilson ennþá viðkunn- anlegur og velmeinandi? Það er erfitt að verjast þeirri niðurstöðu, og jafnvel að hann hafi verið sannkallað mikilmenni. En þá kemur hin rotna rúsína í pylsuendan- um. Staðreyndin sem hlýtur að kollvarpa áliti nútímamanna á Woodrow Wilson og gera hann í raun óskiljanlegan. Hann var nefnilega rasisti. Meðan hann var rektor Princeton lagist hann gegn því að svart- ir námsmenn fengju skólavist, hann lýsti hvað eftir annað yfir skilningi sínum á baráttu hinna illræmdu ofbeldisseggja í Ku Klux Klan gegn jafnrétti svartra í Bandaríkjunum, og hann jók mjög aðskiln- að hvítra og svarta í allri stjórnsýslu vest- anhafs. Hann neitaði að skipa svertingja í nokkur mikilvæg embætti í höfuðborginni Washington og hann beitti sér fyrir því að svartir menn þyrftu að nota sérstök klósett á opinberum stöðum og þess háttar. Og er þá fátt eitt talið. Allt þetta gerði Wilson undir því yfirskini að það væri svert- ingjum sjálfum fyrir bestu, en í raun var hann einfaldlega kynþáttahatari og ekk- ert annað. Hann sagði dónalega „negra- brandara“ og þótt hann sæktist mjög eftir atkvæðum svertingja í forsetakosningun- um 1912 og lofaði að bæta hag þeirra, þá sveik hann það allt saman strax og hann var kominn í embætti – í reynd hægði Wilson á réttindabaráttu svartra og sneri henni jafnvel við, það liðu áratugir þangað til aðskilnaðarpólitík Wilsons og félaga var kveðin í kútinn af Rosu Parks og fleiri bar- áttumönnum. En hvernig fer það saman við baráttu- manninn fyrir mannréttindum minnihluta- hópa, við heimspekihöfundinn sem hvatti okkur til að hugsa um og taka ábyrgð á öðru fólki? Er hægt að virða sem mikil- menni svo mótsagnakenndan mann? FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson hefur löngum verið veikur fyrir Woodrow Wilson Bandaríkjaforseta sem barðist gegn auð- hringjum og fyrir mannréttindum og alþjóða- samvinnu. En í miðri sál Wilsons virðist hafa verið furðulegur brestur. WOODROW WILSON 1856-1924 Hvað er mikilmenni? Menn sem koma einhverju stórfenglegu til leiðar, skyldi maður ætla, einhverju sem aðrir menn hafa ekki getað hreyft eða jafnvel ekki einu sinni dottið í hug, eitthvað þvíumlíkt, væri það ekki brúkleg skilgreining? Eflaust – en hversu gallaðir mega hinir miklu menn þá vera til að vera sviptir nafnbót mikilmennis- ins? Því fór ég að velta fyrir mér eftir að hafa skoðað svolítið ævi, störf og skoðanir manns sem löngum hefur þótt einn hinn frábærasti í röðum Bandaríkjaforseta. Það er maður sem vann vissulega mikil afrek í starfi og vildi vinna þau ennþá fleiri, hug- myndir hans um skipan heimsmála voru bæði góðar og framsæknar og ef hann hefði ekki veikst illa undir lok starfstíma síns og náð að fylgja þeim hugmyndum eftir, þá getur verið að heimurinn hefði sloppið við eitthvað af þeim hörmungum sem síðan dundu yfir. Efstur á listum Sem sé í alla staði aðdáunarverður maður, er það ekki? Jú, ekki er því að neita að Woodrow Wilson (forseti 1913-1921) hefur hlotið hin bestu eftirmæli. Bandarískir sagnfræðingar hafa hann undantekningar- laust í hópi hinna allra efstu á listum yfir sínu mikilfenglegustu forseta, hann er þar í kátum hópi Rooseveltanna tveggja, Jeffersons, Washingtons og náttúrlega HIÐ MÓTSAGNAKENNDA MIKILMENNI Lincolns. Og í Evrópu hefur Wilson verið í jafnvel ennþá meiri metum en vestanhafs, enda reyndi hann eftir fyrri heimsstyrj- öldina að koma á þeirri nýju heimsskipan sem hann og fleiri töldu nauðsynlega til að koma í veg fyrir annan hildarleik af sama tagi. Það tókst ekki, en Wilson hefur ævin- lega verið mikils metinn í Evrópu fyrir að reyna. Þannig er óhætt að segja að Woodrow Wilson Bandaríkjaforseti hafi verið hinn besti maður, er það ekki? Ósvikið mikil- menni? En nei, það er nefnilega ekki hægt. Einn þáttur í fari Wilsons var nefnilega svo ógeðfelldur að það hlýtur að varpa skugga á hina sem jákvæðari voru, og verður raunar æ meira áberandi eftir því sem tímar líða. Mikil hetja í fjölmiðlum Woodrow Wilson átti mjög óvenjulegan feril af Bandaríkjaforseta að vera. Lang- flestir þeirra hafa komist í embætti eftir að hafa unnið sig upp í gegnum stjórn- kerfið eða verið sigursælir herforingjar. Þetta eru sem sagt menn sem hafa látið hendur skipta, í ýmsum skilningi þeirra orða. Wilson var hins vegar fræðimaður umfram allt. Hann fæddist 1856, faðir hans var guðfræðingur og sjálfur las hann lög, mannkynssögu og stjórnmálafræði. Hann fór að skoða bandarískt stjórnkerfi og fann því margt til foráttu – hann benti á spillingu og samtryggingu pólitískra smá- kónga sem sköruðu eld að eigin köku en hirtu ekki um þarfir fólksins í heild, hann sá meinbugi á þingræðinu eins og það var praktíserað vestra, hann gagnrýndi hve litla ábyrgð stjórnmálamenn bæru í raun á gerðum sínum, auðugir iðnjöfrar réðu svo bak við tjöldin því sem þeir vildu ráða. Þetta eru kunnugleg umkvörtunarefni rúmum hundrað árum eftir að Wilson fór að láta til sín taka en sjálfur reyndi hann að leggja sitt af mörkum til að betrum- bæta samfélagið í kringum sig með því að gerast rektor Princeton-háskóla, þar vakti hann athygli fyrir að berjast gegn áhrif- um auðmanna við stjórn skólans og krefj- ast hiklaust samfélagslegrar ábyrgðar, „Princeton í þjónustu þjóðarinnar og allra þjóða“ varð óopinbert mottó skólans fyrir atbeina Wilsons. Að auki skrifaði Wilson heilmikið um sögu Bandaríkjanna og hann skrif- aði nokkur stutt heimspekileg verk sem gengu líka út á þá ábyrgð sem hann vildi að menn tækju á eigin lífi og annarra, „On Being Human“ hét ein bókin, hugsaðu vel um annað fólk, stóð þar, gefðu þér alltaf tíma til að íhuga hlutina vel, vertu alltaf til reiðu fyrir aðra. Önnur hét „When a Man Comes to Himself“ og fjallar eins og nafnið bendir til um leit hvurs manns að sjálfum sér og hvernig maður getur svo að Og ykkur finnst Wilson ennþá viðkunnan- legur og velmein- andi? Það er erfitt að verjast þeirri niðurstöðu, og jafnvel að hann hafi verið sannkallað mikilmenni. En þá kemur hin rotna rúsína í pylsuend- anum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.