Fréttablaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 108

Fréttablaðið - 14.12.2013, Blaðsíða 108
14. desember 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 80TÍMAMÓT Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JAKOB ALBERTSSON Aflagranda 40, Reykjavík, áður Öldugötu 40, lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. desember. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 17. desember kl. 15.00. Blóm og kransar eru afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík eða MND-félagið. Elín Guðmundsdóttir Guðmundur Jakobsson Anna Lilja Guðmundsdóttir Albert Jakobsson Sigurborg Jóhannsdóttir Sigríður Jakobsdóttir Einar Marinó Jóhannsson Stefán Jökull Jakobsson Linda Björg Helgadóttir og barnabörn. VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann www.kvedja.is Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN R. SÍMONARSON skipstjóri, lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Ísafirði, fimmtudaginn 12. desember. Helga Þórdís Gunnarsdóttir Björn Jóhannsson Kristín Á. Bjarnadóttir María Björk Jóhannsdóttir Benedikt Jónasson Guðmundur Friðrik Jóhannsson Dagný Rósa Pétursdóttir Sigríður Erla Jóhannsdóttir Stefán Þ. Tómasson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR SVEINSSON Ástjörn 7, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi mánudaginn 9. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Berglind Anna Sigurðardóttir Svavar Hilmarsson Magnús Sveinn Sigurðsson Borghildur Ágústsdóttir Sölvi Björn Sigurðsson Helga Soffía Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ARNMUNDUR KRISTINN JÓNASSON lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 12. desember sl. Útförin fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 23. desember kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á KFUM & K og Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík. Aðalheiður Sighvatsdóttir Arnfríður Inga Arnmundsdóttir Hafþór Ragnarsson Sighvatur Arnmundsson Elísabet Gunnarsdóttir Erla Guðrún Arnmundardóttir Beausang Jeffrey Robert Beausang Gyða Rut Arnmundsdóttir Arnar Sölvi Arnmundsson Arna Björgvinsdóttir og barnabörn Herbert Guðmundsson tónlistarmaður verður sextugur á morgun. Hann er langt frá því að leggja tónlistarferil sinn á hilluna og segist aldrei hafa haft jafn mikið að gera á ferli sínum og núna í ár. Hann er þakklátur fyrir rósirnar fimm sem eru lögin sem tengja hann við hverja kynslóðina á fætur annarri. „Can´t Walk Away, Time, I Believe in Love, Hollywood og Svaraðu eru lögin sem gefa mér gigg í hverri viku og ég er bara stoltur af þeim. Lífið er bara frábært,“ segir Herbert Guðmundsson sem hefur í nógu að snúast þessa dag- ana. Herbert er staddur í Senu þegar blaðamaður nær tali af honum og seg- ist vera þar til að sækja standa undir nýja tvöfalda safndiskinn sinn sem hann hyggst keyra sjálfur út á útsölu- staði. Aðspurður um útkeyrsluna segir hann: „Ég sem lögin mín, ég syng þau, ég útset þau og gef sjálfur út diskana mína. Ég er bara að þessu til að hjálpa þeim í Senu og ég er vanur að sinna mínu efni sjálfur.“ Flakkað um ferilinn Eftir fjörutíu ára feril í tónlistarbrans- anum heldur Herbert upp á starfsaf- mælið með útkomu safndisksins, Flakk- að um ferilinn. „Þetta er fimmtánda platan mín en ég er að gefa út tuttugu lög og tuttugu myndbönd á þessum safndiski. Þarna eru meira að segja fjögur óútkomin lög með hljómsveitinni Eik sem voru tekin upp í sjónvarps- sal þegar ég var með sítt hár.“ Herbert segist eiga á annað hundrað laga á skrá hjá Stefi og er ánægður með árangur- inn í gegnum tíðina. „Sumir eiga 400 hundruð lög svo þetta er ágætis árang- ur fyrir mann sem hefur aldrei verið á mála hjá mafíunni,“ útskýrir hann og heldur áfram: „Ef Skífan eða aðrir risar voru ekki með þig í gamla daga þá var ekki verið að auglýsa þig og þína tónlist í gluggunum.“ Herbert segir diskinn einnig innihalda efni frá níunda áratugnum þegar hann kom fram með hljómsveitinni Kan þegar allir voru í eitísgallanum með blásið hárið, en myndböndin nálgaðist hann hjá RÚV. Sextugsafmælið Í tilefni af stórafmælinu mun Herbert koma fram á tónleikum á Kex Hostel milli 21 og 22 á morgun, sunnudags- kvöld. Hjörtur Howser mun spila á hljómborð, Haraldur Þorsteinsson spilar á bassa, Tryggvi Hübner spilar á gítar og Ingólfur Sigurðsson á slag- verk. Herbert hvetur fólk til að mæta í kaffi og rjómatertu en sjálfur segist hann vakna hress og glaður á hverjum morgni eftir að hann varð reglumaður sem reykir hvorki né drekkur. Tón- leikarnir verða myndaðir af ungum kvikmyndagerðarmönnum, þeim Frið- riki Grétarssyni og Ómari Sverris- syni, en þeir eru um þessar mundir að gera heimildarmynd um litríkan feril Herberts. Hamingjusamur reglumaður „Ég hef aldrei haft svona mikið að gera á ævinni. Í sumar var ég pant- aður til Benidorm ásamt Lísu unnustu minni í hálfan mánuð til að syngja og skemmta menntaskólakrökkum svo það má segja að lagið Can´t Walk Away sé búið að tengja mig við hverja kyn- slóðina á eftir annarri.“ Herbert er trúlofaður Lísu Dögg Helgadóttur sem hann segir að aðstoði sig mikið við textagerð og prófarkalestur á efninu sem hann gerir. marinmanda@frettabladid.is Ég sem lögin, syng, gef út og á minn feril sjálfur Tónlistarmaðurinn Herbert Guðmundsson heldur tónleika á Kex Hostel á morgun í tilefni af sextugsafmæli sínu. Hann er líka að senda frá sér nýjan tvöfaldan safndisk. ALLTAF Í STUÐI Herbert keyrir tvöfalda safndiskinn sinn út sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Michael James Owen fæddist þennan dag árið 1979 og fagnar því 34 ára afmæli sínu í dag. Snemma komu fram fótboltahæfileikar hans en þegar Owen var aðeins tólf ára gamall sýndi stórliðið Liverpool áhuga á honum. Ferill hans hófst fyrir alvöru árið 1996 þegar hann byrjaði að spila með Liverpool og á árunum 1997-2004 var hann einn markahæsti leikmaður liðsins. Owen spilaði einnig knattspyrnu með öðrum stórliðum en þau eru meðal annars Real Madrid, Newcastle United og Manchester United. Owen er giftur Louise Bonsall en saman eiga þau fjögur börn. ÞETTA GERÐIST: 14. DESEMBER 1979 Enskur knattspyrnu- maður fæðist HERBERT GUÐMUNDSSON ásamt Lísu Dögg Helgadóttur. ÞORSTEINN KARLSSON fd. 19.01. 1960 dd. 05.12. 2013 HAFLIÐI ALFREÐ KARLSSON fd. 24.06. 1953 dd. 06.12. 2013 Útför bræðranna Hafliða Alfreðs Karlssonar og Þorsteins Karlssonar, sem létust svo sviplega á bráðadeild Landspítalans í Fossvogi, fer fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 17. desember kl. 13.00. Kristín Rúnarsdóttir Karl Jóhann Hafliðason Sveinn Óskar Hafliðason Þórdís Natalía Karlsdóttir Ragnar Karlsson Ragna Karlsdóttir Guðmundur Karlsson Magnús Karlsson og fjölskyldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.