Fréttablaðið - 14.12.2013, Page 144
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Tryggir
öruggan bakstur
R O YAL
Leifur B.
Dagfinnsson
Einn af stofnendum og
eigendum Truenorth
ALDUR 45 ára
MAKI: Hlín Bjarnadóttir
BÖRN: Aron Björn, Ísak Örn,
Dagfinnur og Bjarni
FORELDRAR: Helga Bjarnason og
Dagfinnur Stefánsson
Leifur B. Dagfinnsson, einn eigenda og
stofnenda framleiðslufyrirtækisins True-
north, hefur átt frábært ár en fyrirtækið er
10 ára í ár. Fyrirtækið átti stóran þátt í nýrri
kvikmynd, The Secret Life of Walter Mitty,
sem var að hluta til tekin upp á Íslandi.
Myndin var forsýnd á fimmtudag í Smára-
bíói við góðar undirtektir. TrueNorth hefur
komið að gerð fjölda þekktra kvikmynda.
NÆRMYND
„Leifur er einstaklega skemmtilegur
maður, með skrítinn og skemmtilegan
húmor. Hann er hjartahlýr,
góður og traustur vinur.
Hann er mjög ákveðinn
og fylginn sér. Hann er
sveimhugi og það lýsir
honum svolítið. Hans
helsti ókostur er hins
vegar óstundvísi.“
Hlín Bjarnadóttir,
eiginkona.
„.Hann Leifur minn er vinur traustur og
drengur góður.
Hann hefur alltaf sett fjölskyldu og
vini fremst á forgangslistann þrátt fyrir
mikið annríki í starfi.
Hann er með stórt hjarta og stundum
stuttan þráð en þó er hann fyrsti
maðurinn til að biðjast
afsökunar ef hann fer
yfir strikið. Lífssýn Leifs
byggist á náungakær-
leik og hreinskilni.“
Árni Páll Hansson,
vinur og starfsfélagi.
„Hann er mjög duglegur og áræðinn.
Hann er hjartahlýr og umtalsgóður og
segir aldrei ljótt orð
um nokkurn einasta
mann. Hann er yndis-
legur sonur og ég
gæti haldið áfram
endalaust …“
Helga Bjarnason,
móðir.