Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 8

Læknablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 8
f uKtavtf* VOLVOi [7 Xn U yjj Sigurvegarar hversdagsins ,» nuoitiwp OJLVC Reykjavikurmaraþon 1997 FwNTEX' FLUOXETIN Yfir 30 milljónir manna um heim allan hafa treyst á Fontex gegn þunglyndi. Góður vitnisburður lækna er ekki tilviljun. Þeir vita að forysta okkar á markaðnum er verðskulduð. Ábendingar: Þunglyndi, ICD 10: Til meðferðar á vægum - erfiðum geðdeyfðarköstum. með eða án kvíða. Lotugræðgi. Áhrif af meðferð við lotugræðgi í meira en 8-12 vikur er óvlss. Þráhyggjusýki. Skammtar og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna: Vlð þunglyndi. með eða án kvíða: 20 mg einu sinni á dag. Við lotugræðgi: 60 mg á dag. Við þráhyggjusýki: 20 mg á dag. ef ekki næst viðunandi árangur. má auka skammtinn eftir 3-4 vikur. Allar ábendingar: Skammta má hækka eða lækka. Skammtar yfir 80 mg/dag hafa ekki verlð rannsakaðir. Aldraðir: Rannsóknlr benda ekki til þess að nauðsyn sé á skammtabreytingum hjá öldruðum. Fyrir böm: Upplýsingar um reynslu og áhrif skortir. Flúoxetín má taka án tillits til máltíða. Ekki er nauðsynlegt að minnka skammta smám saman þegar meðferð er hætt. þar sem flúoxetín og virka umbrotsefnið norflúoxetín hafa lángan helmingunartíma. Við alvarlega skerta lifrarstarfsemi og/eða ef lyfið er gefið samtímis öðrum lyfjum: Til greina kemur að gefa þessum sjúklingum lægri eða færri skammta. Frábendingar: Ofnæmi fyrir flúoxetíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta við flogaveiki, alvarlega nýrnabilun. lifrarsjúkdóma. nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varnaðarorð og varúðarreglur: Forðast skal samtímis meðferð með MAO-hemli. vegna hættu á serótóninheilkennl. Ef sjúkllngur hefur áður verið i meðferð með óafturkræfum MAO-hemli þurfa a.m.k. 2 vikur að líða. áður en meðferð með flúoxetíni hefst. Flytja má sjúklinga. sem eru í meðferð með afturkræfum MAO-hemlum með stuttan helmingunartíma (t.d. móklóbemíði) yfir á flúoxetin eftir einn sólarhring. Hins vegar þurfa um 5 vikur að líða. áður en sjúklingar, sem eru í meðferð með flúoxetini. eru settir á MAO-hemil. Við meðferð á þunglyndistímabilum sjúklinga með geðklofa geta geðveikielnkenni versnað. Hjá sjúklingum með manio depressive sjúkdóm. getur sjúkdómurlnn sveiflast yfir í maniu. Gæta ber varúðar hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Útbrot. bráðaofnæmi og stigvaxandi bráðaofnæmi, stundum alvarlegu. með einkennum í húð. nýrum. lifur eða lungum hefur verði lýst hjá sjúklingum sem fengu flúoxetín. Hætta skal meðferð ef fram koma útbrot eða önnur ofnæmisviðbrögð sem ekki eiga sér aðra orsök. Eins og með önnur þunglyndislyf. er mælt með því að flúoxetín sé notað með varúð ef sjúklingur hefur sögu um krampa. Lýst hefur verið tilfellum um lækkun natríums. í flestum tilfellum hefur verið um að ræða aldraða sjúklinga. sem fengu jafnframt meðferð með þvagræsilyfjum. eða með vökvatap af öðrum orsökum. Blóðsykurslækkun hefur komið fram hjá sykursjúkum í flúoxetín meðferð. en blóðsykurshækkun eftir að meðferð er hætt. Meðferð með flúoxetíni getur leitt til tannskemmda vegna munnþurrks. Milliverkanir: Gæta skal varúðar þegar lyf sem umbrotin eru með cýtókróm P450IID6 og hafa tiltölulega þröngan lækningalegan stuðul eru notuð samtímis flúoxetini. eða ef flúoxetín hefur verið notað á síðustu 5 vikum. Plasmaþéttni fenýtóíns. halóperidóls. karbamazepíns. klózapíns, díazepams. alprazólams. litíums. imipramíns og desipramíns getur breyst. og í einstaka tilfellum geta klínisk eitrunareinkenni komið fram. Samtímis notkun flúoxetíns og litíums getur orsakað skjálfta og skort á samhæfingu (serótónínheilkenni). Einkennin hverfa þegar meðferð er hætt. Gæta skal varúðar við skömmtun þessara lyfja og fylgjast með klinísku ástandi. Flúoxetín er mikið próteinbundið og þvi getur samtímis notkun lyfja sem eru mikið próteinbundin. haft áhrif á blóðþéttni þeirra beggja. Við samtimis notkun flúoxetíns og warfaríns hefur i einstaka tilfellum komið fram breyting i segavarnandi áhrifum. Fylgjast skal með sjúklingum i warfarín meðferð í upphafi eða við lok flúoxetín meðferðar. Samtímis notkun flúoxetíns og raflostsmeðferðar (ECT) hefur í einstaka tilfellum lengt krampaköst. Ef gefa á lyf sem hafa milliverkanir við flúoxetín eða virka umbrotsefnið norflúoxetín eftir að meðferð lýkur. er mikilvægt að hafa í huga langan helmingunartíma þeirra. Nauðsynlegt getur verið að breyta skömmtum sykursýkilyfja. ef sjúklingur er samtímis í meðferð með insúlíni og/eða sykursýkilyfjum til ínntöku. Ekki ætti að nota tryptófan með lyfinu. Aukaverkanir: Eftirfarandi aukaverkanir tengjast verkunarhætti sérhæfðra serótóninupptökuhemla (SSRD: Almennar: Ósjálfráð einkenni þ.m.t. munnþurrkur. aukin svitamyndun. æðavíkkun og kuldahrollur. Ofnæmiseinkenni (sjá Varnaðarorð og varúðarreglur). Serótónínheilkenni. sem lýsir sér með breytingum á geði og vöðvavirknl ásamt truflunum á starfsemi ósjálfráða taugakerfisins. Ljósnæmi. Meltingarfæri: Niðurgangur. ógleði. uppköst. meltingartruflanir. kyngingartregða. bragðskynstruflanir og mjög sjaldan lifrarbólga. Innkirtlar: Ónóg seytun ADH. Blóðrás og sogæðakerfi: Bjúgur (ecchymosis). Miðtaugakerfi: Óeðlllegar hreyfingar/sjálfti. Lystarleysi. Kvíði og skyld einkenni. Svimt. Þreyta. Erfiðleikar við einbeitingu og hugsanatruflanir. Manía. Svefntruflanir. öndunarfæri: Geispar. Húð: Hárlos. Skynfæri: Sjóntruflanir. Þvag- og kynfæri: Þvagteppa. Langvinn stinning. Truflanir á kynlífi. þ.m.t. minnkuð kynhvöt. seinkað eða ekkert sáðlát. ná ekki fullnæglngu og getuleyst. Einkenni eins og svimi. náladofi. höfuðverkur. kvíði og ógleði hafa komið fram þegar meðferð með geðdeyfðarlyfjum er hætt. Hættan á þessum einkennum er minni hjá flúoxetíni en öðrum geðdeyfðarlyfjum þar sem bæði flúoxetín og virka umbrotsefnið hafa tiltölulega langan helmingunartíma. Pakkningar og verð 1. febrúar 2000: Hylki 20 mg: 100 stk. — 11.899 kr. Lausnartöflur til inntöku 20 mg: 30 stk. — 5.309 kr.: 100 stk. — 14.847 kr. Mixtúra 4 mg/ml: 70 ml — 3-954 kr. Hámarksmagn sem ávísa má með lyfseðli er sem svarar 30 daga skammti. Lyfið er lyfseðilsskylt og greiðslufyrirkomulag er B. Markaðsleyfishafi er Eli Lilly Danmark A/S. A. Karlsson hf. • Brautarholt 28 • 105 Reykjavík Sími 5 600 900 • Fax 5 600 901 • www.lilly.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.