Læknablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 75
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ALÞJÓÐAFÉLAG LÆKNA
Stjórnarfundur Alþjóðafélags lækna í Ferney Voltaíre
Aðalfundur Alþjóðafélags lækna (WMA) var
áætlaður 4.-7. október í Nýju Delí í Indlandi, en í
kjölfar atburðanna í Bandaríkjunum hinn 11. sept-
ember síðastliðinn var fundinum frestað af öryggis-
ástæðum. í staðinn var ákveðið að halda stjórnarfund
á santa tíma í Frakklandi, í heimabæ aðalskrifstof-
unnar. Að venju voru haldnir nefndarfundir í fasta-
nefndum félagsins og fór mestur tíminn í þá, enda
fara þar fram umræður um efnisatriði og er þá oftast
búið að ganga frá ágreiningsmálum þegar málin
koma til stjórnar til afgreiðslu.
Nokkur mál sem voru rædd:
1. Ályktun uni gagnagrunna: Áður en kom að fundi
fastanefndar hittust þeir fulltrúar úr vinnuhópn-
um sem voru á staðnum. I þeirra umræðum var
ljóst að töluverð vinna var eftir, meðal annars
varðandi skilgreiningar. Pví ákvað formaður
nefndarinnar, dr. Jim Appleyard, að leggja plagg-
ið ekki fyrir til efnislegrar meðferðar, en þess í
stað voru nokkrar almennar umræður. I þeim
gerði formaður LÍ grein fyrir samkomulagi stjórn-
ar félagsins við IE. Vinnan heldur nú áfram í
vinnuhópnum og fékk hann stuttan tíma eða til
loka nóvember til að koma fram með næsta upp-
kast sem gert er ráð fyrir að senda til læknafélaga
til umsagnar.
2. Helsinkiyfirlýsingin: I kjölfar nýjustu útgáfu þess-
arar yfirlýsingar haustið 2000 komu fram ýmsar
ábendingar og gagnrýni sem snertu tvær greinar í
yfirlýsingunni. Önnur fjallar um notkun lyfleysu í
lyfjarannsóknum og hin um hvernig niðurstöður
eru nýttar fyrir þá sem hafa tekið þátt í viðkom-
andi rannsókn. Vinnuhópur lagði annars vegar til
að samtökin birtu texta til útskýringar (notes of
clarification) og hins vegar kom hann með tillögu
að breytingu á umræddum greinum í sjálfri yfir-
lýsingunni. Stjórn Alþjóðafélags lækna ákvað hins
vegar að breyta engu í yfirlýsingunni, en sam-
þykkti skýringartextann. Nánari grein verður gerð
fyrir þessu í Læknablaðinu á næstunni.
3. Notkun sýklavopna: Fyrir fundinum lág ítarleg
tillaga frá bandaríska læknafélaginu sem samin
hafði verið fyrir atburðina þar í landi í september
síðastliðnum. Þessi tillaga fékk góðar undirtektir
og var samþykkt af hálfu fastanefndar og stjórnar
en kemur síðan til lokaafgreiðslu á næsta ársfundi.
Vegna hryðjuverkanna og þeirrar umræðu sem
orðið hefur um möguleika á frekari hryðjuverk-
um, meðal annars með sýklum var ákveðið að
senda út fréttatilkynningu og hins vegar var sam-
þykkt stytt tillaga sem álit stjórnar (Council
Resolution). Þá tillögu er hægt að kynna út á við
sem slíka, en það er ekki hægt nteð upprunalegu
tillöguna fyrr en ársfundur hefur afgreitt hana.
4. Yfirlýsing uiii sjálfstæði lækna (the autonomy of
physicians): Þessi yfirlýsing hefur verið lengi í
vinnslu og var Iögð fram fimmta útgáfan. Ekki var
heldur hægt að afgreiða hana og reyndar kom
fram tillaga um að vísa henni frá. í kjölfarið urðu
líflegar umræður og skiptust menn í tvö horn, ann-
ars vegar þeir sem töldu þetta vera mikilvægt
plagg enda væri sjálfstæði lækna víða í hættu,
meðal annars vegna áhuga yfirvalda á að halda
þeim í skefjum eða skipta sér af vinnuaðstæðum
þeirra og möguleikum. Aðrir töldu að fyrri yfirlýs-
ingar nægðu, enda hefur verið vikið að þessu áður.
Settur var saman nýr vinnuhópur til að koma með
nýjar tillögur næst.
5. Yfirlýsing um uppbyggingu heilbrigðiskerfa
(sustainability of health care systems). Þótti frem-
ur óklár yfirlýsing og var vísað áfram til vinnuhóps.
6. Yfirlýsing um flæði lækna milli landa og land-
svæða (physicians’ migration). Kanadíska lækna-
félagið hefur lagt þessa tillögu fram og bauðst til
þess að vinna að þessu áfram ásamt öðrum og
buðu í því tilviki fram vinnukraft og að afla fjár.
Fyrir liggur að áhugi á þessu efni stafar bæði af
tilhneigingu til aukinna hafta og frelsis. íslensku
fulltrúarnir héldu því á loft að flutningur lækna
milli landa væri íslenskri læknisfræði lífsnauðsyn-
legur bæði til náms og starfa og að það fyrirkomu-
lag hefði verið lengi á Norðurlöndunum, öllum til
góðs. Ljóst er að þessi vinna er afar umfangsmikil
ef hún á að skila einhverju, samanber vinnu
SNAPS-hópsins á Norðurlöndum þar sem hópur-
inn getur unnið úr aðgengilegum gögnum frá öll-
um löndunum og komið með áætlanir sem á þeim
byggjast. Víðast eru slík gögn ekki aðgengileg,
áreiðanleg eða yfir höfuð til. Þar við bætist að
læknismenntun nær ekki alls staðar máli, en það
er atriði sem Norðurlöndin þurfa ekki að hafa
áhyggjur af. Samþykkt var þó að koma þessari
vinnu af stað vegna tilboðs Kanadamanna um að
þeir legðu bæði til mannafla og reyndu að afla
utanaðkomandi fjár.
7. Stuðningur við Taiivan: Stutt tillaga um að styðja
að Taiwan fengi áheyrnarfulltrúa hjá Alþjóða-
félagi lækna. Ekki var erfitt að styðja þessa tillögu,
en hér var greinilega um viðkvæmt mál að ræða og
ýmsir hræddir um að Alþjóðafélag lækna yrði
talið of pólitískt. Tillagan var þó samþykkt með
þeirri breytingu að fram kom að samtökin tækju
enga afstöðu til lagalegrar stöðu Taiwan. Þrátt
fyrir þetta gátu sum lönd (Bandaríkin og Suður
Afríka) ekki stutt tillöguna, en sátu hjá.
Jón Snædal'
Sigurbjörn
Sveinsson2
Höfundar eru
'varaformaöur LÍ,
2formaður LÍ.
Læknablaðið 2001/87 935