Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.2001, Side 75

Læknablaðið - 15.11.2001, Side 75
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ALÞJÓÐAFÉLAG LÆKNA Stjórnarfundur Alþjóðafélags lækna í Ferney Voltaíre Aðalfundur Alþjóðafélags lækna (WMA) var áætlaður 4.-7. október í Nýju Delí í Indlandi, en í kjölfar atburðanna í Bandaríkjunum hinn 11. sept- ember síðastliðinn var fundinum frestað af öryggis- ástæðum. í staðinn var ákveðið að halda stjórnarfund á santa tíma í Frakklandi, í heimabæ aðalskrifstof- unnar. Að venju voru haldnir nefndarfundir í fasta- nefndum félagsins og fór mestur tíminn í þá, enda fara þar fram umræður um efnisatriði og er þá oftast búið að ganga frá ágreiningsmálum þegar málin koma til stjórnar til afgreiðslu. Nokkur mál sem voru rædd: 1. Ályktun uni gagnagrunna: Áður en kom að fundi fastanefndar hittust þeir fulltrúar úr vinnuhópn- um sem voru á staðnum. I þeirra umræðum var ljóst að töluverð vinna var eftir, meðal annars varðandi skilgreiningar. Pví ákvað formaður nefndarinnar, dr. Jim Appleyard, að leggja plagg- ið ekki fyrir til efnislegrar meðferðar, en þess í stað voru nokkrar almennar umræður. I þeim gerði formaður LÍ grein fyrir samkomulagi stjórn- ar félagsins við IE. Vinnan heldur nú áfram í vinnuhópnum og fékk hann stuttan tíma eða til loka nóvember til að koma fram með næsta upp- kast sem gert er ráð fyrir að senda til læknafélaga til umsagnar. 2. Helsinkiyfirlýsingin: I kjölfar nýjustu útgáfu þess- arar yfirlýsingar haustið 2000 komu fram ýmsar ábendingar og gagnrýni sem snertu tvær greinar í yfirlýsingunni. Önnur fjallar um notkun lyfleysu í lyfjarannsóknum og hin um hvernig niðurstöður eru nýttar fyrir þá sem hafa tekið þátt í viðkom- andi rannsókn. Vinnuhópur lagði annars vegar til að samtökin birtu texta til útskýringar (notes of clarification) og hins vegar kom hann með tillögu að breytingu á umræddum greinum í sjálfri yfir- lýsingunni. Stjórn Alþjóðafélags lækna ákvað hins vegar að breyta engu í yfirlýsingunni, en sam- þykkti skýringartextann. Nánari grein verður gerð fyrir þessu í Læknablaðinu á næstunni. 3. Notkun sýklavopna: Fyrir fundinum lág ítarleg tillaga frá bandaríska læknafélaginu sem samin hafði verið fyrir atburðina þar í landi í september síðastliðnum. Þessi tillaga fékk góðar undirtektir og var samþykkt af hálfu fastanefndar og stjórnar en kemur síðan til lokaafgreiðslu á næsta ársfundi. Vegna hryðjuverkanna og þeirrar umræðu sem orðið hefur um möguleika á frekari hryðjuverk- um, meðal annars með sýklum var ákveðið að senda út fréttatilkynningu og hins vegar var sam- þykkt stytt tillaga sem álit stjórnar (Council Resolution). Þá tillögu er hægt að kynna út á við sem slíka, en það er ekki hægt nteð upprunalegu tillöguna fyrr en ársfundur hefur afgreitt hana. 4. Yfirlýsing uiii sjálfstæði lækna (the autonomy of physicians): Þessi yfirlýsing hefur verið lengi í vinnslu og var Iögð fram fimmta útgáfan. Ekki var heldur hægt að afgreiða hana og reyndar kom fram tillaga um að vísa henni frá. í kjölfarið urðu líflegar umræður og skiptust menn í tvö horn, ann- ars vegar þeir sem töldu þetta vera mikilvægt plagg enda væri sjálfstæði lækna víða í hættu, meðal annars vegna áhuga yfirvalda á að halda þeim í skefjum eða skipta sér af vinnuaðstæðum þeirra og möguleikum. Aðrir töldu að fyrri yfirlýs- ingar nægðu, enda hefur verið vikið að þessu áður. Settur var saman nýr vinnuhópur til að koma með nýjar tillögur næst. 5. Yfirlýsing um uppbyggingu heilbrigðiskerfa (sustainability of health care systems). Þótti frem- ur óklár yfirlýsing og var vísað áfram til vinnuhóps. 6. Yfirlýsing um flæði lækna milli landa og land- svæða (physicians’ migration). Kanadíska lækna- félagið hefur lagt þessa tillögu fram og bauðst til þess að vinna að þessu áfram ásamt öðrum og buðu í því tilviki fram vinnukraft og að afla fjár. Fyrir liggur að áhugi á þessu efni stafar bæði af tilhneigingu til aukinna hafta og frelsis. íslensku fulltrúarnir héldu því á loft að flutningur lækna milli landa væri íslenskri læknisfræði lífsnauðsyn- legur bæði til náms og starfa og að það fyrirkomu- lag hefði verið lengi á Norðurlöndunum, öllum til góðs. Ljóst er að þessi vinna er afar umfangsmikil ef hún á að skila einhverju, samanber vinnu SNAPS-hópsins á Norðurlöndum þar sem hópur- inn getur unnið úr aðgengilegum gögnum frá öll- um löndunum og komið með áætlanir sem á þeim byggjast. Víðast eru slík gögn ekki aðgengileg, áreiðanleg eða yfir höfuð til. Þar við bætist að læknismenntun nær ekki alls staðar máli, en það er atriði sem Norðurlöndin þurfa ekki að hafa áhyggjur af. Samþykkt var þó að koma þessari vinnu af stað vegna tilboðs Kanadamanna um að þeir legðu bæði til mannafla og reyndu að afla utanaðkomandi fjár. 7. Stuðningur við Taiivan: Stutt tillaga um að styðja að Taiwan fengi áheyrnarfulltrúa hjá Alþjóða- félagi lækna. Ekki var erfitt að styðja þessa tillögu, en hér var greinilega um viðkvæmt mál að ræða og ýmsir hræddir um að Alþjóðafélag lækna yrði talið of pólitískt. Tillagan var þó samþykkt með þeirri breytingu að fram kom að samtökin tækju enga afstöðu til lagalegrar stöðu Taiwan. Þrátt fyrir þetta gátu sum lönd (Bandaríkin og Suður Afríka) ekki stutt tillöguna, en sátu hjá. Jón Snædal' Sigurbjörn Sveinsson2 Höfundar eru 'varaformaöur LÍ, 2formaður LÍ. Læknablaðið 2001/87 935

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.