Læknablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 29
FRÆÐIGREiNAR / TÍÐNI KRANSÆÐASJÚKDÓMA
Breytingar á tíðni
kransæðasjúkdóma á Islandi
Nikulás Sigfússon',
Gunnar Sigurðsson2,
Uggi Agnarsson1,
Inga Ingibjörg
Guðmundsdóttir1,
Ingibjörg
Stefánsdóttir',
Helgi Sigvaldason',
Vilmundur
Guðnason'
'Rannsóknarstöð Hjarta-
verndar, 2Landspítali Fossvogi.
Fyrirspurnir, bréfaskipti:
Nikulás Sigfússon,
Rannsóknarstöð Hjarta-
verndar, Lágmúla 9,108
Reykjavík. Sími: 535 1800;
netfang: n.sigfusson@hjarta.is
Lykilorð: kransœðasjúkdómar,
dánartíðni, nýgengi, dánar-
hlutfall, MONICA rannsókn.
Ágrip
Inngangur: Samkvæmt gögnum Hagstofu Islands
voru blóðþurrðarsjúkdómar hjarta sjaldgæf dánar-
orsök í byrjun síðustu aldar. Dánartíðnin fór síðan
stöðugt vaxandi fram á níunda áratuginn en fór eftir
það að lækka.
Markmið þessarar rannsóknar er að kanna ítar-
lega þær breytingar sem orðið hafa á nýgengi, dánar-
tíðni og dánarhlutfalli vegna kransæðastíflu á síðustu
öld.
Efniviður og aðferðir: Upplýsingar um dánartíðni
vegna kransæðasjúkdóms frá 1911-1996 eru fengnar
frá Hagstofu íslands en aldurstaðlaðar tölur eftir
kyni frá 1951-1996. í þessari grein er þó einkum byggt
á niðurstöðum MONICA rannsóknarinnar, sem er
fjölþjóðleg rannsókn á kransæðastíflu undir yfir-
stjórn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. í þessari
rannsókn, sem ísland hefur tekið þátt í síðan 1981,
eru skráð öll tilfelli kransæðastíflu meðal allra karla
og kvenna á aldrinum 25-74 ára á landinu öllu.
Skráningin er gerð eftir stöðluðum skilmerkjum og
gæðaeftirlit er framkvæmt af sérstökum eftirlits-
stöðvum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Skrán-
ingin nær nú yfir tímabilið 1981-1998.
Niðurstöður: Dánartíðni karla og kvenna í blóð-
þurrðarsjúkdómum hjarta fór stöðugt vaxandi fram
yfir 1980 og var þá orsök um 30% dauðsfalla. Aldurs-
stöðluð dánartíðni fór vaxandi hjá báðum kynjum frá
1951 til um 1970, stóð síðan nokkurn veginn í stað
næstu 10 ár en hefur síðan lækkað.
MONICA skráningin sýnir að dánartíðni vegna
kransæðastíflu hefur lækkað um 57% hjá körlum á
aldrinum 25-74 ára á tímabilinu 1981-1998 og um
51% hjá konum.
Nýgengi hefur lækkað um 40% hjá körlum og
34% hjá konum og heildartíðni um 49% og 44%.
Nýgengi, dánartíðni og dánarhlutfall vegna krans-
æðastíflu er hagstæðara á íslandi en í flestum Evr-
ópulöndum.
Alyktanir: Nýgengi og dánartíðni vegna krans-
æðastíflu hefur farið lækkandi á íslandi síðastliðna
tvo áratugi. Dánarhlutfall er nú með því lægsta sem
gerist samanborið við aðrar þjóðir. Líklegt er að for-
varnaraðgerðir verði árangursríkastar til að lækka
tíðni þessara sjúkdóma enn frekar.
Inngangur
Undanfarna áratugi hafa hjartasjúkdómar verið al-
gengasta dánarorsök íslendinga. Þannig má sjá í
ENGLISH SUMMARY
Sigfússon N, Sigurðsson G, Agnarsson U, Guðmunds-
dóttir II, Stefánsdóttir I, Sigvaldason H, Guðnason V
Changes in myocardial infarction incidence and
mortality in lceland
Læknablaðið 2001; 87: 889-96
Introduction: According to public health reports
ischaemic heart disease was an uncommon cause of
death in lceland at the beginning of the last century. This
death rate increased steadily until the ninety-eighties
whereafter it leveled off and started to decline.
The objective of the present study is to assess in detail the
changes in myocardial infarction attack, incidence and
death rate as well as case fatality.
Material and methods: Crude death rate from ischaemic
heart disease is available from the Statistical Bureau of
lceland from 1911 to 1996 and age and sex standardized
death rate from 1951. In this paper, however, the material
is mainly from the MONICA Project, a multinational study
of myocardial infarction under the auspices of the World
Health Organization. The study, in which lceland has
participated since 1981, registers all myocardial infarctions
in people aged 25-74 years in the whole country. The
registration is performed according to standardized criteria
and external quality control was applied throughout by
WHO designated quality control centers. The registration
now covers the period 1981-1998.
Results: The crude death rate in ischaemic heart disease
in both sexes combined increased steadily until about
1980 when it accounted for about 30% of deaths. Age and
sex specific death rate from these diseases increased from
1951 to about 1970, leveled off for the next 10 years and
has since decreased.
The MONICA data show a decline of death rate from
myocardial infarction of 57% in men aged 25-74 during
1981-1998 and a51% decline in women. Incidence rate
has declined by 40% and 34% in men and women
respectively and attack rate by 49% and 44%.
Incidence, death rate and case fatality in myocardial
infarction in lceland compares favorably with other
European countries.
Conclusions: Myocardial infarction incidence and death
rates have been declining in lceland during the last two
decades. Case fatality is now among the lowest compared
to other countries. Preventive measures are most likely to
further reduce incidence and death rates in myocardial
infarction in lceland.
Key words: coronary heart disease, death rate, incidence
rate, case fatality, MONICA study.
Correspondence: Nikulás Sigfússon, E-maii:
n.sigfusson@hjarta.is
Læknablaðið 2001/87 889