Læknablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 7
FRÁ RITSTJÓRN
Hryðjuverk með smitefnum
og eiturefnum
Frágangur
fræðilegra greina
Vilhjálmur
Rafnsson
Heilbrigisyfirvöld í Banda-
ríkjunum hafa nú þegar
þetta er skrifað staðfest
áreiðanlega að 13 hafi sýkst
af miltisbrandi og þar af hafi
þrír dáið. Tilfellin eru öll á
austurströndinni, Flórída,
New York borg, New Jersey
og í höfuðborginni Washing-
ton. Auk þess leikur grunur á
því að sex einstaklingar til
viðbótar hafi fengið miltisbrandssmit. Hryðju-
verkamenn hafa sent miltisbrandsgró í pósti og
þeir sem hafa sýkst hafa opnað póstsendingar eða
handfjallað póst sem hefur innihaldið gró. Miltis-
brandur hefur lengi verið til í vopnabúrum víða um
heim, ætlaður til dreifingar yfir byggðir og borgir
óvinarins en dreifingin með pósti nú er ef til vill
enn áhrifameiri vegna þeirrar skelfingar sem þetta
hefur valdið meðal almennings.
Hryðjuverk með smitefnum gera sérstakar
kröfur til lækna og heilbrigðiskerfisins í heild.
Sjaldgæfir sjúkdómar koma fram í óvenjulegu
magni sem kallar á breytt vinnbrögð við greiningu
og meðferð og að almenningur fái upplýsingar um
gang mála og varnarviðbrögð. Sóttvamalæknir
hefur brugðist við þessu síðastnefnda með upplýs-
ingum á heimasíðu landlæknisembættisins þar sem
fjallað er um miltisbrand og svarað er spurningum
um sjúkdóminn: http://www. landlaeknir.is. Læknar
geta enn fremur leitað að leiðbeiningum Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar: http://www.who.int/emc/
faqanthrax.html, þar sem meðal annars er að finna
ítarlegar leiðbeiningar til almennings og á heima-
síðu bandarískra heilbrigðisyfirvalda þar sem finna
má leiðbeiningar fyrir heilbrigðisstarfsfólk: http://
www.bt.cdcd.gov
Önnur smitefni eru til í vopnabúrum heimsins
og ef til vill í höndum hryðjuverkamanna, smitefni
sem valda sjúkdómum sem smitast manna á milli,
svo sem bólusótt, og hræðsla við slíka árás er
staðreynd. Auk bólusóttar hafa aðrir smitsjúkdóm-
ar verið nefndir í þessu sambandi, til dæmis svarti
dauði (Yersinia pestis), hérasótt (tularemia) og
blæðandi veiruhitasóttir (til dæmis ebola veiru-
sýking). Lífræn eiturefni (toxín) sem koma til
greina í eiturefnahernaði eru meðal annars sperðil-
eitur (botulín toxín) og stafýlókokka enterótoxín B.
Eftir atburðina þann 11. september síðastliðinn
og nú miltisbrandsárásir með póstsendingum,
kemur í hugann hvort efnavopn og eiturhernaður
komi næst. Einkum kemur í hugann eiturárás í
neðanjarðarlestarkerfi í Japan fyrir nokkrum árum
þar sem öfgahópur beitti eiturefninu sarini með
þeim afleiðingum að nokkrir dóu og þúsundir
fengu langvarandi eitranir. Fleiri gerðir eiturefna
koma til greina í hernaði og hryðjuverkum og þau
eru flest acetýlkólinesterasalokar og valda öndun-
arlömunum. Meira er hægt að lesa um sýkla- og
eiturvopn í bráðabirgðaútgáfu frá Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni: http://www.who.int I höndum
hermdarverkamanna geta slíkar eitranir tekið til
fleiri manna en heilbrigðiskefið nær að sinna í tæka
tíð. Arásin í neðanjarðarlestarkerfinu á það sam-
merkt með miltisbrandsárásunum í Bandaríkjun-
um að vera beint gegn almenningi og ætlað að
skapa ótta við notkun á samgöngutækjum og sam-
skiptaleiðum og ráðast því að hornsteinum tækni-
samfélagsins. Hræðslan við yfirvofandi leyndarárás
getur lamað svo marga einstaklinga að þjóðfélagið
bíði meira en efnahagslegt tjón sem þó gæti verið
bæði alvarlegt og langvarandi.
Eru Islendingar viðbúnir yfirvofandi sýkla- og
eiturefnahryðjuverkum? Hafa yfirvöld viðbúnað
til að bregðast við lamandi ótta þjóðfélagsþegn-
anna sem slíkar árásir hér á landi gætu vakið? í
röðum íslenskra lækna eru menn með reynslu og
þekkingu af bæði sýkla- og eiturefnahernaði og
þeim ótta sem slíkt getur skapað. Þetta kom fram á
fjölmennum fundi á Landspítala í síðustu viku og
er nú unnið að samhæfingu viðbragða gegn hryðju-
verkavá fyrir þjóðfélagið í heild. En það hlýtur
einnig að vera hlutverk sérhvers læknis að afla sér
þekkingar, vinna að því að draga úr ótta hjá fólkinu
í landinu og minnka þannig afleiðingar hræðslunn-
ar í samfélaginu.
Höfundjur er sérfræðingur í atvinnulækningum og prófessor í
heilbrigðisfræði við læknadeild HÍ.
Höfundar sendi tvær gerðir
handrita lil ritstjórnar
Læknablaðsins,
Hlíðasmára 8, 200
Kópavogi. Annað án nafna
höfunda, stofnana og án
þakka sé um þær að ræða.
Greininni fylgi yfirlýsing
þess efnis að allir höfundar
séu lokaformi greinar
samþykkir og þeir afsali
sér birtingarrétti til
blaðsins.
Handriti skal skilað með
tvöföldu línubili á A-4
blöðum. Hver hluti skal
byrja á nýrri blaðsíðu í
eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar,
stofnanir, lykilorð á ensku
og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og nivndir skulu vera
á ensku eða íslensku, að
vali höfunda.
Tölvuunnar myndir og gröf
komi á rafrænu formi
ásamt útprenti. Tölvugögn
(data) að baki gröfum fylgi
með, ekki er hægt að nýta
myndir úr PowerPoint eða
af netinu.
Sérstaklega þarf að semja
um birtingu litniynda.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi
með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
http://www.icemed.is/
laeknabladid
Umræðuhluti
Skilafrcstur efnis í næsta
blað er 20. undanfarandi
mánaðar nema annað sé
tekið fram.
Læknablaðið 2001/87 867