Læknablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 73
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRAMTÍÐ LANDSPÍTALA
Nýjan spítala þyrftí að reisa hratt
segir Sverrir Bergmann formaður stjórnar læknaráðs Landspítala
háskólasjúkrahúss
Læknablaðið bað Sverri Bergmann formann
stjórnar læknaráðs Landspítala háskólasjúkrahúss
að segja álit sitt á þeim hugmyndum sem fram koma
hjá þeim Bjarna, Runólfi og Sigurði. Hann staðfesti
að stjórnin hefði fengið álit skipulags- og þróunar-
nefndar læknaráðs til umfjöllunar en stjóm þess
hefði áður vísað efni þessu til álits og umfjöllunar
nefndarinnar. Stæði nú yfir umræða um það í stjórn
læknaráðs.
Sverrir sagði að menn hefðu viljað gefa sér tíma til
að ræða þessi mál, ekki síst staðsetningu nýja spítal-
ans því þótt „húsasóttin“ væri vissulega í rénun væru
enn skiptar skoðanir meðal lækna um framtíðarstað
fyrir sjúkrahúsið. Þó virtist sér að meirihluti væri
fyrir því að velja Hringbraut, færri vildu Fossvog en
fæstir Vífilsstaði. Þetta hefði þó ekki verið kannað
með formlegum hætti.
„Við höfum rætt þá erfiðleika sem minnst er á í
áliti nefndarinnar við að starfrækja sjúkrahúsið í
tveimur eða jafnvel fleiri húsum og getum tekið
undir það. Vissulega er erfitt að sameina greinar í
einu húsi eða öðru vegna þess að allar deildir eiga í
nánu samstarfi við aðrar deildir. Hugmyndin sem
fram kemur í áliti dönsku ráðgjafanna um að sam-
eina flestar sómatísku deildirnar á einum stað en
hafa aðrar deildir annars staðar kemur til greina sem
skammtímalausn. Það væri einnig hægt að hafa slysa-
móttöku á einum stað en bráðamóttaka hlyti jafn-
framt að vera í hinum húsunum.
Hins vegar þarf strax að hefjast handa við að
byggja nýjan spítala og láta það ganga nokkuð hratt
svo hann verði ekki orðinn úreltur þegar hann kemst
í gagnið. Ég sé sjálfur marga kosti við að byggja upp
við Hringbraut. Þar er nóg pláss, mörg hús í ágætu
lagi og barnaspítali í byggingu. Önnur hús þyrftu að
hverfa en með breytingum á Hringbrautinni og hugs-
anlega flugvellinum ætti að skapast gott rými fyrir
sjúkrahúsið. Einnig má benda á hin nánu tengsl við
háskólasvæðið en það liggur í augum uppi að ein
bygging hins nýja spítala hlýtur að verða rannsóknar-
ver.“
Nýr spítalí rísi á fimm til tiu árum
- Hversu langur tími má líða þangað til spítalinn er
kominn á einn stað án þess að starfsemin bíði hugs-
anlega skaða af?
„Um það er erfitt að segja. Mér líst ekki á það ef
byggingin á að taka 25 ár eins og minnst er á í grein-
argerð Dananna. Þetta má raunar ekki taka lengri
tíma en 10 ár og þyrfti helst að gerast á skemmri tíma,
jafnvel fimm árum. Það þyrfti að leita leiða til að
fjármagna bygginguna með þeim hætti að hægt væri
að byggja hana hratt. Dæmin sanna að það er hægt að
láta svona byggingu rísa fljótt og vel. I því sambandi
er Smáralind nærtækt dæmi en þar liðu innan við tvö
ár frá því framkvæmdir hófust fyrir alvöru þar til
húsið var opnað almenningi. Þar er að vísu ekki alveg
um sambærilegar framkvæmdir að ræða og sjúkra-
húsbyggingu.
Menn þurfa lfka að hafa það í huga að aliar þessar
bráðabirgðaráðstafanir, flutningar og breytingar á
húsnæði, kosta sitt. Ef hægt væri að hraða byggingu
nýs sjúkrahúss myndi sá kostnaður sparast.“
Skipulaginu þarf að breyta
- En hvað um skipulagsmálin sem Runólfur og Sig-
urður ræða um? Hvernig líst þér á þær hugmyndir?
„Læknaráð er alveg sammála þeim, stjórnfyrir-
komulaginu þarf að breyta, í það minnsta á lækninga-
þættinun, og koma á þeirri skipan að hver sérgrein
hafi sinn forstöðulækni og skipurit. Sérgreinar eru
misstórar og það fer eftir eðli þeirra hvort ástæða er
til að hafa yfirlækni fyrir starfsþætti innan sérgreinar,
meðal annars með tilliti til sérhæfingar innan hennar.
Eins og nú háttar eru sviðsstjórar valdir til tveggja
ára í senn og gegna því hlutverki að vera hluti af
rekstrarstjórn þeirra og annast samhæfingu starfsemi
á sviðinu. Þeir eru ekki valdir eftir reglum um faglega
stjórnendur og eru því ekki forstöðulæknar sviðsins.
Slík staða er ekki til og það flækir málið að í sumum
tilvikum eru sviðsstjórar settir yfir yfirlækna sérgreina
án þess að vera faglegir yfirmenn.
Um þessa skipan hefur verið ágreiningur milli
okkar og stjómenda sjúkrahússins en stjórn lækna-
ráðs lítur svo á að hún sé enn til umræðu eins og flest
annað sem varðar framtíðarskipulag sjúkrahússins.
Stjórn læknaráðs væntir þess að samkomulag verði
um niðurstöðu, annars vegar í tengslum við samninga
við Háskóla Islands og hins vegar í endurskoðun á
núverandi sviðstjórnarkerfi sem á að ljúka eigi síðar
en í október á næsta ári,“ sagði Sverrir Bergmann.
-ÞH
Læknablaðið 2001/87 933