Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2001, Page 86

Læknablaðið - 15.11.2001, Page 86
^ mm IRADEMARK B Rispeidal^" risperidone! r Frelsi til að taka þátt í samfélaginu Risperidone vs. olanzapine* Risperidone hefur marktœkt meiri áhrif á pósitíf einkenni Risperidone hefur marktœkt meiri áhrif á kvíöa og þunglyndi Risperdal (Janssen-Cilag, 920123) MIXTÚRA, TÖFLUR; N 05 A X 08 R B Eiginleikar: Risperídón er geðlyf (neurolepticum) al flokki benzíoxazólafleiða. Það er sértaekur mónóamínvirkur blokki, sem hefur mikla sakni í serótónínvirka S-HT^- og dópamínvirka D^-viðtaka Ábendingar: Bráðar og langvinnar geðtruflanir (psykósur) vegna geðklofa. Geðtruflanir sem líkjast geðklofa (schizopreniform disorder). Risperdal er einnig ætlað til langtíma notkunar til þess að koma í veg fyrir að sjúkdómurinn taki sig upp að nýju hjá sjúklingum með langvinnan geðklofa. Hegðunartruflanir hjá sjúklingum með vitglöp. Frábendingar: Ofneysla af barbitúrsýrusamböndum, ópíötum eða áfengi. Varúð: Lifrar- og nýrnasjúkdómur. Flogaveiki. Krampar. Parkinsons sjúkdómur. Hjartabilun. Útbreidd aeðakölkun. Stöðubundinn lágþrýstingur. Aukaverkanir: Algengasta aukaverkunin er svefnleysi (allt að 13%). Algengar (>l%): Almennar: Höfuðverkur. Þyngdaraukning. Hjarta- og aðakerfi: Lágþrýstingur (þar með talinn stöðubundinn lágþrýstingur), hraðtaktur (þar með talinn reflex hraðtaktur) eða háþrýstingur. Hiðtaugakerfi: Svefnleysi. Æsingur. Hraðsla og þreyta. Syfja, svimi, minnkuð einbeitingarhaefni. Aukin munnvatnsframleiðsla, extrapýramídal einkenni. Innkirtlar: Minnkuð kyngeta karla, seinkun á sáðláti. Óeðlileg mjólkurmyndun. Tíðastopp, auknar tíðablsðingar og truflanir á tíðahring. Meltingarfari: Hægðatregða, meltingartruflanir, ógleði, uppköst og kviðverkir. Húð: Útbrot. Öndunarfæri: Bólgur í nefi. Augu: Þokusýn. Milliverkanir: Lyfið getur minnkað virkni levódópa og annarra dópamínvirkra lyfja. Karbamazepín lækkar blóðstyrk virks umbrotsefnis risperídóns. Svipuð áhrif má sjá af öðrum lyfjum sem hvetja efnaumbrot í lifur. Ef meðferð með karbamazepíni eða öðrum lyfjum sem hvetja efnaumbrot í lifur er hætt, skal lækka skammta risperídóns. Ef lyfin flúoxetín eða paroxetín eru gefin með, getur þurft að breyta skömmtun risperidóns. Skammtastærðir handa fullorðnum: Lyfið má gefa einu sinni eða tvisvar á dag. Skammtar eru hækkaðir smám saman vegna hættu á stöðubundnum lágþrýstingi. Upphafsmeðferð er 2 mg á dag. A öðrum degi má auka skammtinn í 4 mg á dag. Síðan er skammtur einstaklingsbundinn eftir einkennum. Hægt er að auka skammtinn á lengri tíma ef það er læknisfræðilega æskilegt. Algengur viðhaldsskammtur er 4-6 mg á dag. Sumir sjúklingar hafa gagn af lægri skömmtum. Hámarksskammtur er 16 mg á dag. Aldraðir. Ráðlagður upphafsskammtur er 0.5 mg 2 sinnum á dag. Skammtinn má leiðrétta einstaklingsbundið með 0,5 mg 2 sinnum á dag að I til 2 mg 2 sinnum á dag. Aldraðir þola lyfið vel. Bráðar og langvinnar geðtruflanir vegna geðklofa: Þegar hentugum skammti er náð má íhuga skömmtun einu sinni á dag. Hegðunartruflanir við vitglöp: Meðferðina á að hefja með 0,25 mg tvisvar sinnum á dag. Skammtinn má auka eftir þörfum um 0,25 mg tvisvar sinnum á dag, þó ekki oftar en annan hvern dag. Heppilegur skammtur fyrir flesta er I mg á dag. Sumir sjúklingar geta þurft allt að 2 mg á dag. Þegar hentugum skammti er náð má íhuga skömmtun einu sinni á dag.Skipti af annarri geðlyfjameðferð: Þegar meðferð með risperídóni er hafin í stað annarra geðlyfja, skal minnka skammta fyrri meðferðar smám saman til að forðast fráhverfseinkenni. Þegar meðferð með risperídóni er hafin í stað geðlyfja með forðaverkun, þarf engan aðlögunartíma og risperidón er gefið strax í stað fyrri meðferðar. Nauðsyn þess að halda áfram andkólínvirkri lyíjameðferð skal endurmeta reglulega. Skammtastærðir handa bömum: Börn eldri en 15 ára: Sömu skammtar og handa fullorðnum. Börn yngri en 15 ára: Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum yngri en 15 ára. Athugið: Lyfið getur haft áhrif á viðbragðsflýti og ber að hafa það í huga við akstur bifreiða eða stjórnun annarra vélknúinna tækja. Blöndun: Mixtúruna má blanda í heita og kalda drykki aðra en áfenga drykki og te, t.d. gosdrykki. appelsínusafa, sódavatn. heitt kaffi eða mjólk. Sjá nánari upplýsingar í sérlyfjaskrá. Pakkningar og hámarksvcrð I. Ol. 2001. Mixtúra I mg/ml: 100 ml —14.303 kr.Töflur 0,5 mg: 20 stk. —1.783 kr. Töflur I mg: 6 stk. —1.000 kr. / 60 stk. — 6.917 kr. Töflur 2 mg: 60 stk. —12.743 kr. Töflur 3 mg: 60 stk.—18.516 kr. Töflur 4 mg: 60 stk. — 23.907 kr. Töflur 6 mg: 28 stk. — 17.280 kr. JANSSEN-CILAG Thorarensen Lyf Vnnagarðar 18 104 Rcrkj..(k Slmi 568 6044 *R.R.Conley et al; Journal of the European College of Neuropsychopharmacology 2000; I0:S3

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.