Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 85

Læknablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 85
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 12 i ul María Heimisdóttir Netfang: mariah@decode.is Faraldsfræði í dag Úrvinnsla gagna og túlkun niðurstaðna Úrvinnsla gagna úr sjúklingasamanburðarrannsókn- um (SSR) felst fyrst og fremst í samanburði á tíðni áreitis meðal þeirra sem hafa sjúkdóminn og hinna sem hafa hann ekki. Yfirleitt eru bornar saman hlut- fallslíkur (odds) á áreiti meðal þessara hópa með því að reikna hlutfall þeirra (odds ratio). Þetta hlutfall gefur til kynna hlutfallslega tíðni áreitis meðal sjúkra miðað við heilbrigða en segir í raun ekki beinlínis til um áhættu (risk) á að fá sjúkdóminn, að því gefnu að áreitið sé til staðar. Þetta hlutfall er þó oft notað sem nálgun við hlutfallslega áhætta (relative risk), sem er hlutfall nýgengis (eða áhættu) meðal þeirra sem hafa orðið fyrir áreiti og hinna sem ekki hafa orðið fyrir því. Til að túlka megi hlutfall hlutfallslíka sem hlut- fallslega áhættu verður tilteknum skilyrðum að vera fullnægt. Þessi skilyrði eru hin sömu og almennt eru sett um vel gerðar sjúklingasamanburðarrannsóknir, það er að rannsóknin innihaldi eingöngu ný tilfelli (incident cases), að eldri tilfelli (prevalent cases) séu ekki hluti af samanburðarhópnum og að val þátttak- enda sé ekki háð áreiti. Ef sjúklingasamanburðarrannsókn nær til alls þýð- isins og byggist á nýjum tilfellum er unnt að meta nýgengi innan hennar og reikna hlutfallslega áhættu beint. Ef rannsóknin byggist ekki einvörðungu á nýjum tilfellum en upplýsingar um nýgengi liggja fyrir er einnig mögulegt að meta hlutfallslega áhættu og ekki þörf á að nálgast hana með hlutfalli hlutfallslíka. Þegar áhætta tengd áreitinu hefur verið metin er næsta skref að kanna líkur á að um tilviljun sé að ræða. Flest tölfræðiforrit gera þetta raunar um leið og áhættan er reiknuð og birta p-gildi og vikmörk. Auk þess að reikna áhættu í sjúklingasamanburðar- rannsóknum er nauðsynlegt að kanna líkur á röskun- um (confounding), með því að bera hópana tvo saman nteð tilliti til fyrirliggjandi eiginleika, svo sem lýðfræði- legra þátta. Síðan má meta áhrif raskandi þátta og sam- verkandi þátta (effect modifiers) á áhættuna með því að beita stigskiptingu (stratification) og/eða með því að nota fjölþátta (multivariate) tölfræðiaðferðir. Gildi og niðurstöður sjúklingasamanburðarrann- sókna ber að túlka í ljósi helstu kosta og galla þessa rannsóknarforms (1). Sjúklingasamanburðarrann- sóknir henta vel til að rannsaka sjaldgæfa sjúkdóma og sjúkdóma með langan huliðstíma. Einnig gefa sjúklingasamanburðarrannsóknir kost á að rannsaka marga orsakaþætti eða áreiti sent tengjast einum sjúkdómi eða útkomu. Á móti kemur að sjúklinga- samanburðarrannsóknir henta alla jafna illa til að meta áhrif sjaldgæfra áreita og ekki er unnt að reikna nýgengi nema rannsóknin nái til alls þýðisins. Auk þess er stundum erfitt að henda reiður á tímaröð í sambandi áreitis og sjúkdóms þannig að óyggjandi sé að hin grunaða orsök hafi verið til staðar á undan afleiðingunni. Síðast en ekki síst er sjúklingasaman- burðarrannsóknum sérlega hætt við kerfisbundnum skekkjum, bæði valskekkju (selection bias) og upp- lýsingaskekkju (information bias). Valskekkja getur orðið til ef val á þátttakendum (sjúkdóms- eða samanburðartilfellum) er á einhvern hátt tengt áreitinu. Þetta leiðir til þess að þeir sem taka þátt í rannsókninni eru ekki sambærilegir við það þýði sem rannsóknin átti að beinast að og gefa því ekki raunsanna mynd af því þýði sem þeir koma úr. Þannig getur samband áreitis og sjúkdóms meðal þeirra sem eru valdir til og samþykkja að taka þátt í rannsókninni verið annað en það sem gerist almennt meðal þýðisins sem rannsóknin átti að fjalla um. Sérlega mikil hætta er á valskekkju í sjúklingasamanburðarrannsóknum þar sem bæði áreitið og sjúkdómsgreiningin hafa átt sér stað þegar val á þátttakendum fer fram. Sem dæmi má nefna að ef þátttaka í rannsókn er léleg er ástæða til að ætla að þeir sem taka þátt séu á einhvem hátt ólíkir þeim sem gera það ekki. Ef sá ntunur tengist áreitinu sem verið er að kanna leiðir það til val- skekkju. Niðurstöðurnar eru auðvitað aðeins byggðar á þeim sem tóku þátt og eiga ekki við þýðið sem rannsókninni var upphaflega beint að. Hætta á upplýsingaskekkju er hinn megingalli sjúklingasamanburðarrannsókna. Slík skekkja verð- ur til þegar öfiun upplýsinga um áreitið er háð því hvort um sjúkdóms- eða samanburðartilfelli er að ræða. Um nánari orsakir slíkrar skekkju hefur verið fjallað áður á þessum vettvangi (1,2). Auk kerfisskekkju ber að hafa möguleika á rang- flokkun (misclassification) í huga við túlkun sjúk- lingasamanburðarrannsókna. Rangfiokkun vísar til mistaka eða villna við flokkun sjúklinga með tilliti til áreitis eða sjúkdómsástands. Þannig gelur einstak- lingur sem hefur sjúkdóminn verið flokkaður sem samanburðareinstaklingur eða öfugt. Sambærileg rangflokkun getur orðið á því hvort einstaklingur hefur orðið fyrir áreitinu eða ekki. Ahrif rangflokkunar fara eftir því hvort hún er kerf- isbundin (systematic) eða slembin (random). Nánar verður fjallað um rangflokkun og áhrif hennar síðar. Heimildir 1. Hennekens, Buring. Epidemiology in Medicine. lst ed. Boston/Toronto: Little, Brown and Co; 1987. 2. María Heimisdóttir. Faraldsfræði 5. Kerfisbundin skekkja. Læknablaðið 2001; 87: 253. 3. María Heimisdóttir. Faraldsfræði 11. Sjúklingasamanburðar- rannsóknir IV. Læknablaðið 2001; 87: 845. Læknablaðið 2001/87 945
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.