Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.2001, Side 67

Læknablaðið - 15.11.2001, Side 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRAMTÍÐ LANDSPÍTALA Um þetta stendur valiö og þó aðallega tvo síðast- töldu kostina því flestir virðast vera á því að nýbygg- ing sé ekki fýsilegur kostur, hún sé svo dýr og taki allt of langan tíma. Fjórði möguleikinn hefur raunar ver- ið nefndur sem er sá að spítalinn starfi áfram bæði á Flringbraut og í Fossvogi en hann á sér fáa formæl- endur. Flestir telja einsýnt að spítalinn verði að vera á einum stað, ekki síst í Ijósi þess að flestir sjúklingar þurfa á þjónustu fleiri en einnar sérgreinar að halda og oft getur verið miklum erfiðleikum bundið að flytja þá langar leiðir. Pað eru líka allir sammála um að þessari bið eflir ákvörðun um framtíðarstaðsetningu sjúkrahússins verði að linna sem fyrst. Sífelld biðstaða reynir á þol- rifin í starfsfólki og óvissan kemur niður á starfsanda, afköstum og vellíðan starfsfólks og sjúklinga. Enda- lausar bráðabirgðalausnir á aðsteðjandi húsnæðis- vanda deilda og sérgreina eru heldur ekki til þess fallnar að bæta ástandið, svo ekki sé minnst á þann kostnað sem af slíkum hringlanda hlýst. „Húsasóttin“ í rénun Læknar og annað starfsfólk hefur löngum skipst í tvær fylkingar milli Fossvogs og Hringbrautar og hafa menn gjarnan tekið afstöðu með sínum vinnustað. Hefur á stundum kveðið svo rammt að þessu að menn eru sagðir hafa tekið illvíga „húsasótt". í blöð- um hefur mátt lesa greinar eftir lækna og aðra starfs- menn þar sem þeir tíunda kosti „síns húss". Nú virðast þessar fylkingar vera að riðlast því skipulags- og þróunarnefnd læknaráðs Landspítala sem skipuð er tveimur læknum úr Fossvogi og tveim- ur af Hringbraut hefur tekið af skarið og lagt til að framtíðaruppbygging sjúkrahússins verði við Hring- braut. Bjarni Torfason er formaður nefndarinnar en aðrir nefndarmenn eru Árni V. Þórsson, Runólfur Pálsson og Sigurður Ólafsson. Bjarni segir að sameining sjúkrahúsanna hafi ver- ið gæfuspor en að það hafi bara verið fyrsta skrefið í átt að markmiðinu sem hljóti að vera eitt, öflugt og vel starfandi sjúkrahús. „Það er mjög mikilvægt að slíkt sjúkrahús sé á háskólasvæðinu og þar með í tengslum við uppbyggingu akademískrar þjónustu. Hér er gömul hefð fyrir sjúkrahúsi, nægt rými, fallegt bæjarstæði og áform uppi hjá borginni um góðar um- ferðartengingar. Hér er talsvert af þokkalegu hús- næði sem má nýta, barnaspítalinn er á byggingarstigi og það verður ekki hætt við hann. Við þetta má bæta því að víða um heim hefur sú stefna rutt sér til rúms að betra sé að hafa sjúkrahúsin í miðborgum en í út- hverfum. Þetta er stærsti vinnustaður landsins og hann þarf ýmsa þjónustu sem er að hafa í miðbænum auk þess sem hann gefur miðbænum mikið líf með öllu þessu starfsfólki og þeirri þjónustu sem sjúkra- húsið hefur upp á að bjóða. Hér er nóg pláss og ljóst að flugvöllurinn fer einhvern tímann eða að það verður þrengt að honum. Þegar það gerist mun há- skólasvæðið flæða hingað að spítalasvæðinu." - Var ekkert erfitt að sætta sjónarmið lækna á báð- um stöðum? „Nei, þessi húsasótt sem talað er um er í rénun. Ég held að þeir séu afar fáir sem eru svo bundnir húsinu sem þeir vinna í að þeir geti ekki hugsað sér að flytja. Auk þess vinna flestir læknar á báðum stöðum, eink- um núna eftir sameiningu spítalanna. Læknar eru sammála um að mikilvægast sé að taka ákvörðun sem fyrst um framtíðarstaðsetninguna og þeir eru tilbúnir að taka þeirri niðurstöðu sem út úr því kemur, hver svo sem hún verður því allir möguleikarnir hafa sína kosti og sína galla.“ Einkennileg tímasetning ákvörðunar Hver sem niðurstaðan verður um staðsetninguna þá liggur ljóst fyrir að sjúkrahúsið verður starfrækt á tveimur og raunar fleiri stöðum næstu árin. I ljósi þess tók stjórnarnefnd Landspítala ákvörðun um samein- Lóö Landspítala eins og hún gæti litið út eftir flutning Hringbrautar til suðurs. Spítalinn á tilkall til lóðarinnar umhverfis Læknagarð og einnig sunnan hinnar nýju Hring- brautar (þar sem moidar- flagið er lengst til vinstri á myndinni). Pá gera stjórn- endur spítalans sér vonir um að í framtlðinni gœti spítalinn einnig fengið lóð- ina sem Umferðarmiðstöð- in stendur á og jafnvel einnig spilduna handan nýju Hringbrautarinnar þarfyrirsunnan. (Mynd unnin fyrir skrifstofu borg- arverkfræðings.) Læknablaðið 2001/87 927

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.