Læknablaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 77
Samþykkt var að halda næsta ársfund
samtakanna í Nýju Delí 2.-6. maí 2002 sem
þýðir að það ár verða tveir ársfundir, sá
síðari um haustið í Washington DC. Nýr
forseti tók við, Enrice Accorsi frá Chile, og
nýtur hann víðtæks stuðnings og virðingar.
Samtökin verða hins vegar ekki með neinn
„tilvonandi“ forseta (president elect) fram
að næsta ársfundi. Fyrir liggja fjögur fram-
boð til næsta forseta og það sem er óvana-
legt er að tvö framboðin eru frá Norður-
löndunum, Svíþjóð og Finnlandi. LÍ hefur
þegar lýst yfir stuðningi við dr. Anders
Milton frá Svíþjóð, enda veitti hann félag-
inu mikinn siðferðislegan stuðning í gagna-
grunnsmálinu þegar hann var formaður
stjórnar samtakanna, en af því lét hann síð-
astliðið vor. Hann á einnig vísan stuðning
Dana og Norðmanna.
Dreifibréf landlæknisembættisins nr. 7/2001
Tílkynning frá sóttvarnalækni
Bólusetning gegn inflúensu
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin ráðleggur að
inflúensubóluefni á norðurhveli fyrir
tímabilið 2001-2002 innihaldi eftirtalda
stofna (WHO Weekly Epidemiological
Record, 2001; 76(8); 58-61);
A/Moskvu/10/99 (H3N2) - lík veira*
A/Nýju Caledoniu/20/99 (HlNl) - lík
veira
B/Sichuan/379/99 - lík vcira**
* A/Panama/2007/99 stofn er A/Moskvu/10/99 - lík veira
** B/Jóhannesborgar/5/99 og B/Viktoríu/504/2000 stofn
eru B/Sichuan/379/99 - líkar veirur sem hafa verið
notaðar í framleiðslu inflúensubóluefna.
Hverja á að bólusetja?
Alla einstaklinga eldri en 60 ára.
Öll böm og fullorðna sem þjást af lang-
vinnum hjarta-, lungna- nýrna- og lifrar-
sjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdóm-
um og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Starfsfólk heilbrigðisþjónustu og aðra þá
sem daglega annast fólk með aukna
áhættu.
Brýnt er að bólusetningu ljúki eigi síðar
en í nóvemberlok.
Frábendingar
Ofnæmi gegn eggjum, formalíni eða
kvikasilfri. Bráðir smitsjúkdómar.
Bólusetning gegn
pneumókokkasýkingum
Sóttvamalæknir vill einnig minna á bólu-
setningar gegn pneumókokkasýkingum á
10 ára fresti til handa öllum þeim sem eru
eldri en 60 ára og á fimm ára fresti fyrir
einstaklinga sem eru í sérstökum áhættu-
hópum.
Lyfseðlar fyrir lyf án markaðsleyfis
(Undanþágueyðublöð)
Ný lyfseðilseyðublöð fyrir lyf án markaðs-
leyfis tóku gildi með reglugerð nr. 111/2001
um gerð lyfseðla og ávísun lyfja, þann 1.
apríl síðastliðinn. Vegna tafa í prentun voru
þessi nýju eyðublöð ekki til hjá Lyfjastofn-
un fyrr en í byrjun júní. Lyfjastofnun hefur
því ákveðið að taka við eldri gerðum eyðu-
blaða til 1. janúar 2002. Ef sækja á um
greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar ríkis-
ins í óskráðum lyfjum er þó eingöngu hægt
að nota nýju eyðublöðin.
Lyfjastofnun hefur einnig ákveðið að
frá og með 1. nóvember næstkomandi
verði eyðublöðin eingöngu seld læknum,
læknastofum og sjúkrahúsum í samræmi
við reglur sem gilda um sölu á öðrum lyf-
seðilseyðublöðum. Þeim tilmælum hefur
verið beint til apóteka að þau verði lækn-
um innan handar og veiti þeim upplýsing-
ar varðandi óskráð lyf (ATC-flokkur,
innflytjandi, framleiðandi og fleira). Vel
útfyllt eyðublöð auðvelda umfjöllun
Lyfjastofnunar um umsóknina og loka-
frágang hennar.
Fréttatilkynning frá Lyfjastofnun