Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.2001, Side 7

Læknablaðið - 15.11.2001, Side 7
FRÁ RITSTJÓRN Hryðjuverk með smitefnum og eiturefnum Frágangur fræðilegra greina Vilhjálmur Rafnsson Heilbrigisyfirvöld í Banda- ríkjunum hafa nú þegar þetta er skrifað staðfest áreiðanlega að 13 hafi sýkst af miltisbrandi og þar af hafi þrír dáið. Tilfellin eru öll á austurströndinni, Flórída, New York borg, New Jersey og í höfuðborginni Washing- ton. Auk þess leikur grunur á því að sex einstaklingar til viðbótar hafi fengið miltisbrandssmit. Hryðju- verkamenn hafa sent miltisbrandsgró í pósti og þeir sem hafa sýkst hafa opnað póstsendingar eða handfjallað póst sem hefur innihaldið gró. Miltis- brandur hefur lengi verið til í vopnabúrum víða um heim, ætlaður til dreifingar yfir byggðir og borgir óvinarins en dreifingin með pósti nú er ef til vill enn áhrifameiri vegna þeirrar skelfingar sem þetta hefur valdið meðal almennings. Hryðjuverk með smitefnum gera sérstakar kröfur til lækna og heilbrigðiskerfisins í heild. Sjaldgæfir sjúkdómar koma fram í óvenjulegu magni sem kallar á breytt vinnbrögð við greiningu og meðferð og að almenningur fái upplýsingar um gang mála og varnarviðbrögð. Sóttvamalæknir hefur brugðist við þessu síðastnefnda með upplýs- ingum á heimasíðu landlæknisembættisins þar sem fjallað er um miltisbrand og svarað er spurningum um sjúkdóminn: http://www. landlaeknir.is. Læknar geta enn fremur leitað að leiðbeiningum Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar: http://www.who.int/emc/ faqanthrax.html, þar sem meðal annars er að finna ítarlegar leiðbeiningar til almennings og á heima- síðu bandarískra heilbrigðisyfirvalda þar sem finna má leiðbeiningar fyrir heilbrigðisstarfsfólk: http:// www.bt.cdcd.gov Önnur smitefni eru til í vopnabúrum heimsins og ef til vill í höndum hryðjuverkamanna, smitefni sem valda sjúkdómum sem smitast manna á milli, svo sem bólusótt, og hræðsla við slíka árás er staðreynd. Auk bólusóttar hafa aðrir smitsjúkdóm- ar verið nefndir í þessu sambandi, til dæmis svarti dauði (Yersinia pestis), hérasótt (tularemia) og blæðandi veiruhitasóttir (til dæmis ebola veiru- sýking). Lífræn eiturefni (toxín) sem koma til greina í eiturefnahernaði eru meðal annars sperðil- eitur (botulín toxín) og stafýlókokka enterótoxín B. Eftir atburðina þann 11. september síðastliðinn og nú miltisbrandsárásir með póstsendingum, kemur í hugann hvort efnavopn og eiturhernaður komi næst. Einkum kemur í hugann eiturárás í neðanjarðarlestarkerfi í Japan fyrir nokkrum árum þar sem öfgahópur beitti eiturefninu sarini með þeim afleiðingum að nokkrir dóu og þúsundir fengu langvarandi eitranir. Fleiri gerðir eiturefna koma til greina í hernaði og hryðjuverkum og þau eru flest acetýlkólinesterasalokar og valda öndun- arlömunum. Meira er hægt að lesa um sýkla- og eiturvopn í bráðabirgðaútgáfu frá Alþjóðaheil- brigðisstofnuninni: http://www.who.int I höndum hermdarverkamanna geta slíkar eitranir tekið til fleiri manna en heilbrigðiskefið nær að sinna í tæka tíð. Arásin í neðanjarðarlestarkerfinu á það sam- merkt með miltisbrandsárásunum í Bandaríkjun- um að vera beint gegn almenningi og ætlað að skapa ótta við notkun á samgöngutækjum og sam- skiptaleiðum og ráðast því að hornsteinum tækni- samfélagsins. Hræðslan við yfirvofandi leyndarárás getur lamað svo marga einstaklinga að þjóðfélagið bíði meira en efnahagslegt tjón sem þó gæti verið bæði alvarlegt og langvarandi. Eru Islendingar viðbúnir yfirvofandi sýkla- og eiturefnahryðjuverkum? Hafa yfirvöld viðbúnað til að bregðast við lamandi ótta þjóðfélagsþegn- anna sem slíkar árásir hér á landi gætu vakið? í röðum íslenskra lækna eru menn með reynslu og þekkingu af bæði sýkla- og eiturefnahernaði og þeim ótta sem slíkt getur skapað. Þetta kom fram á fjölmennum fundi á Landspítala í síðustu viku og er nú unnið að samhæfingu viðbragða gegn hryðju- verkavá fyrir þjóðfélagið í heild. En það hlýtur einnig að vera hlutverk sérhvers læknis að afla sér þekkingar, vinna að því að draga úr ótta hjá fólkinu í landinu og minnka þannig afleiðingar hræðslunn- ar í samfélaginu. Höfundjur er sérfræðingur í atvinnulækningum og prófessor í heilbrigðisfræði við læknadeild HÍ. Höfundar sendi tvær gerðir handrita lil ritstjórnar Læknablaðsins, Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi. Annað án nafna höfunda, stofnana og án þakka sé um þær að ræða. Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis að allir höfundar séu lokaformi greinar samþykkir og þeir afsali sér birtingarrétti til blaðsins. Handriti skal skilað með tvöföldu línubili á A-4 blöðum. Hver hluti skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtalinni röð: • Titilsíða: höfundar, stofnanir, lykilorð á ensku og íslensku • Ágrip og heiti greinar á ensku • Ágrip á íslensku • Meginmál • Þakkir • Heimildir Töflur og nivndir skulu vera á ensku eða íslensku, að vali höfunda. Tölvuunnar myndir og gröf komi á rafrænu formi ásamt útprenti. Tölvugögn (data) að baki gröfum fylgi með, ekki er hægt að nýta myndir úr PowerPoint eða af netinu. Sérstaklega þarf að semja um birtingu litniynda. Eftir lokafrágang berist allar greinar á tölvutæku formi með útprenti. Sjá upplýsingar um frágang fræðilegra greina: http://www.icemed.is/ laeknabladid Umræðuhluti Skilafrcstur efnis í næsta blað er 20. undanfarandi mánaðar nema annað sé tekið fram. Læknablaðið 2001/87 867

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.