Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2004, Page 15

Læknablaðið - 15.03.2004, Page 15
FRÆÐIGREINAR / BRISKIRTILSBÓLGA Bráð briskirtilsbólga. Framskyggn rannsókn á nýgengi, orsökum, alvarleika og dánartíðni á Islandi Helgi Birgisson1 SÉRFRÆÐINGUR í ALMENN- UM SKURÐLÆKNINGUM Páll Helgi Möller' SÉRFRÆÐINGUR í ALMENN- UM SKURÐLÆKNINGUM Sigurbjörn Birgisson2 SÉRFRÆÐINGUR í ALMENN- UM LYFLÆKNINGUM Ásgeir Thoroddsen' LÆKNIR Kristján Skúli Ásgeirsson1 LÆKNIR Sigurður V. Sigurjónsson' SÉRFRÆÐINGUR f MYNDGREININGU Jónas Magnússon1 SÉRFRÆÐINGUR í ALMENN- UM SKURÐLÆKNINGUM Ágrip Tilgangur: Að meta orsakir, alvarleika og dánartíðni sjúklinga með bráða briskirtilsbólgu á Landspítala Hringbraut (LSH) og áætla nýgengi á íslandi. Efniviður og aðferðir: Allir sjúklingar sem greindust með bráða briskirtilsbólgu á LSH Hringbraut frá 1. október 1998 - 30. september 1999. Við komu var tekin ýtarleg sjúkrasaga og blóðprufur, framkvæmd var ómun af lifur, gallvegum og brisi og tölvusneið- mynd af kvið var gerð innan 48 klukkustunda. Alvar- leikastigun var gerð að hætti Ranson, Imrie, APACHE II og með mælingu á C-reactive protein (CRP). Balthazar - Ranson kerfið var notað til að meta tölvusneiðmyndirnar. Niðurstöður: Fimmtíu sjúklingar greindust með bráða briskirtilsbólgu, þar af 27 karlar, og var miðaldur allra sjúklinganna 60 ár (19-85). Áætlað nýgengi á Suð- vesturlandi var 32/100.000 fyrir fyrsta kast bráðrar briskirtilsbólgu. Orsakir voru gallsteinar hjá 42%, áfengi 32%, aðrar orsakir 24% og hjá einum sjúklingi (2%) var orsökin óþekkt. Þijátíu og þrjú prósent sjúk- linga höfðu APACHE II gildi >9,38% höfðu Ranson gildi >3,50% höfðu Imrie gildi >3 og 34% höfðu CRP >210 mg/L á fyrstu fjórum dögunum eða >120 mg/L fyrstu vikuna eftir komu. Tveir sjúklingar létust og höfðu báðir alvarlega briskirtilsbólgu. Ályktun: Nýgengi og orsakir bráðrar briskirlilsbólgu er í samræmi við erlendar rannsóknir. Með framsýnu mati er hægt að komast að orsökum briskirtilsbólg- unnar í flestum tilvikum. Mæling CRP gefur góða hugmynd alvarleika briskirtilsbólgu. Inngangur ENGLISH SUMMARY Birgisson H, Möller PH, Birgisson S, Thoroddsen Á, Ásgeirsson KS, Sigurjónsson SV, Magnússon J Acute pancreatitis. Prospective study of inci- dence, aetiology, severity, and mortality in lceland Læknablaðið 2004; 90: 211 -5 Objective: To evaluate the aetiology, severity and mortality of patients with acute pancreatitis at Landspítali - University Hospitai (LSH) and to estimate the incidence in lceland. Material and methods: A prospective study of all patients diagnosed with acute pancreatitis LSH during the one-year period October 1998 - September 1999 inclusive. The main outcome measures were APACHE II, Ranson, and Imrie scores, and C-reactive protein (CRP) concentrations. The Balthazar - Ranson criteria were used for scoring of computed tomograms (CT). Results: Twenty seven of the 50 patients were male. The median age of the whole series was 60 years (range 19- 85). The estimated incidence was 32/100000 for the first attack of acute pancreatitis. The causes were; gallstones 42%, alcohol 32%, miscellaneous 24%, and idiopathic 2%. Thirty three percentage of the patients had APACHE II scores >9, 38% had Ranson scores of >3, 50% had Imrie scores of >3, and 34% had CRP concentrations >210 mg/L during the first 4 days or >120 mg/L during the first week. Seven patients had severe pancreatitis. Two patients in the whole group died, and both had clinically severe pancreatitis. Conclusions: Incidence and aetiology of acute pancreatitis in lceland is in concordance to that described in other studies. Prospective assessment makes it possible to evaluate the aetiological factors more accurately. Measurement of the CRP concentration is an attractive and simple alternative to the severity scoring systems currently in use. 'Skurðlækninga-. lyflækninga-, og 'myndgreiningardeild, Landspítali - háskólasjúkrahús við Hringbraut. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Páll Helgi Möller, Skurðlækningadeild Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. Sími: 5437329. Bréfasími: 5431379. pallm@landspitali.is Lykilorð: bráð briskirtilsbólga, nýgengi, orsakir, alvarleiki, dánartíðni. Bráð briskirtilsbólga er algengur og lífshættulegur sjúkdómur sem hefur lítið verið rannsakaður hér á landi. Nýgengi sjúkdómsins liggur ekki fyrir hérlend- is en á hinum Norðurlöndunum er það á bilinu 23,4- 41,5/100.000 íbúa/ár (1-3). Gallsteinar og áfengi eru tveir algengustu (60-80%) orsakavaldar bráðrar bris- kirtilsbólgu (1-4). Aðrar ástæður, svo sem truflun í innkirtla- og efnaskiptastarfsemi, sýkingar, aðgerðir og aukaverkanir lyfja, eru þekktar. Orsakavaldur er óþekktur í 10-20% tilfella (2). Dánartíðni af völdum bráðrar briskirtilsbólgu hefur minnkað á undanförnum áratugum en síðast- liðin 10 ár hefur dánartíðnin legið á bilinu 2% til 11,4% (1-10). Key words: acute pancreatitis, incidence, aetiology, severity, mortality. Correspondence: Páll Helgi Möller, pallm@landspitali.is Stigunarkerfi eins og Ranson, Imrie og APACHE II (acute physiology and chronic health enquiry score) hafa verið notuð til að spá fyrir um hvaða sjúk- lingar eru í hættu á að fá alvarlega briskirtilsbólgu (8, 11,12). Sjúklingar með >9 á APACHE II og >3 við Ranson eða Imrie hafa auknar líkur á alvarlegri bris- kirtilsbólgu og eiga að fá meðferð undir stöðugu eftir- liti eða gjörgæslu (13, 14). Undanfarin ár hafa augu Læknablaðið 2004/90 211

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.