Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2004, Side 21

Læknablaðið - 15.03.2004, Side 21
FRÆÐIGREINAR / ÖLDRUNARÞJÓNUSTA Vinnuálag og líðan mismunandi starfshópa kvenna í öldrunarþjónustu Hólmfríður K. Gunnarsdóttir' SÉRFRÆÐINGUR í HEIL- BRIGÐISVÍSINDUM Kristinn Tómasson1 SÉRERÆÐINGUR í GEÐ- OG EMBÆTnSLÆKNINGUM Guðbjörg Linda Rafnsdóttir1,2 SÉRFRÆÐINGUR f FÉLAGSFRÆÐI Greinin er byggð á niður- stöðum rannsóknar sem birtist ÍWork 2004; 22: 41-7. Ritstjórn Work hefur góðfúslega veitt leyfi til að niðurstöðurnar birtist á íslensku í Læknablaðinu. Eftirfarandi aðilar styrktu rannsóknina: Efling stéttar- félag, Elli og hjúkrunarheim- ilið Grund, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Sjúkra- liðafélag íslands, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Hrafnista - DAS, Landspítali. 'Rannsókna- og heilbrigðis- deild Vinnueftirlitsins, 2Félagsvísindadeild Háskóla íslands. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Hólmfríður K. Gunnarsdóttir, Rannsókna- og heilbrigðis- deild Vinnueftirlitsins, Bílds- höfða 16,110 Reykjavík. hkg@ver.is Lykilorð: konur, öldrunar- þjónusta, vinna, heilsuvernd. Ágrip Tilgangur: Að rannsaka mögulegt ójafnræði í vinnu- álagi og líðan kvenna í öldrunarþjónustu og hvort einhverjir starfshópar gætu sérstaklega þurft á heilsu- vernd að halda. Efniviður og aðferðir: Um er að ræða þversniðsrann- sókn sem náði til allra starfsmanna á 62 öldrunar- stofnunum og öldrunardeildum á Islandi þar sem voru 10 eða fleiri starfsmenn. Dreift var 1886 spurn- ingalistum með 84 spurningum um lýðfræðileg og vinnutengd atriði, heilsu og lífsstíl. Aldursstaðlað mat á áhættuhlutfalli (OR) með 95% vikmörkum (95% CI) var reiknað. Hjúkrunarfræðingar voru hafðir sem viðmið fyrir aðra starfshópa. Niðurstöður: Svörun var 80%. Hjúkrunarfræðingar voru 16% af heildarhópnum, sjúkraliðar 21%, ófag- lært starfsfólk 44%, ræstitæknar 8% og aðrir 12%. Karlar voru 4,5% starfsmanna. Sjúkraliðar, ófaglærð- ir og ræstitæknar mátu starfið bæði líkamlega erfið- ara og andlega og líkamlega einhæfara en hjúkrun- arfræðingarnir sem leið heldur betur líkamlega og andlega en hinum hópunum. Lítili munur var á heim- sóknum hópanna til lækna. Alyktanir: Mismunandi starfshópar kvenna í öldrun- arþjónustu búa við ólíkt andlegt og sálfélagslegt vinnuálag sem endurspeglast í líðan. Niðurstöður rannsóknarinnar ættu að hvetja heilbrigðisyfirvöld til að huga sérstaklega að heilsuvernd þeirra sem bera hitann og þungann af umönnun aldraðra hérlendis. Inngangur Samkvæmt Ensk-íslensku orðabókinni (1) er enska orðið socioeconomic þýtt með orðinu félagshag- fræðilegur. í þessari grein verður þó notast við orðin félagsleg staða og þjóðfélagshópur sem eru þekkt í málinu og taka til skólamenntunar, starfs/stöðu og efnahags fólks. Sýnt hefur verið fram á það í mörgum rannsókn- um að tengsl eru á milli félagslegar stöðu og heilsu- fars. Þeir sem betur mega sín njóta almennt betri heilsu en aðrir (2,3). Skólaganga, starf og efnahagur eru þær breytur sem lengi hafa verið notaðar til að skipa fólki í þjóðfélagshópa og gagnast nokkuð vel þótt hver þessara mælikvarða hafi sína kosti og galla (2,4,5). Þegar um vinnuna er að ræða er dæmið nokkuð flókið því að það þarf ekki að vera vinnan sjálf í þröng- um skilningi sem hefur áhrif á heilsufarið, heldur allt ENGLISH SUMMARY Gunnarsdóttir HK, Tómasson K, Rafnsdóttir GL Work strain and well being among different groups of female personnel in geriatric care Læknablaöiö 2004, 90: 217-22 Objective: To study possible inequalities in work strain and well-being among women working in geriatric care and to find out if some groups might need special public health measures. Material and methods: In this cross-sectional question- naire reaching throughout lceland, the participants were employees in 62 geriatric nursing homes and geriatric hospital wards with 10 or more employees. A total of 1886 questionnaires were distributed. The 84-item questionnaire included questions on demographic and work-related factors, health and life style. Age-adjusted odds ratios (OR) were calculated and confidence intervals were set at 95% (95% Cl). Registered nurses were taken as a reference category. Results: The response rate was 80%. Registered nurses accounted for 16%, practical nurses 21%, unskilled attendants 44%, cleaning personnel 8% and others 12% of the total group. Men were 4.5% of the group. The practical nurses, unskilled attendants and cleaning personnel assessed work as more physically difficult, and more monotonous both physically and mentally, than did the registered nurses, who enjoyed somewhat more physical and mental well-being than the others. Little difference was found as to visits to doctors. Conclusions: Various personnel groups of women in geriatric care have different physical and psychosocial workload that is reflected in their well being. The results provide opportunities to guide public health measures for people employed in geriatric care. Keywords: women, geriatric care, work, occupational health care. Correspondance: Hólmfríður K. Gunnarsdóttir, hkg@ver.is sem vinnunni fylgir, það er lífshættir og ýmiss konar álag (3). Vinnan virðist ekki heldur vera eins sterkt tengd heilsufari kvenna og karla (6, 7). Hjá konum hefur skólagangan á hinn bóginn reynst hafa ágætt forspárgildi um sjálfmetna heilsu (8). Konur með stutta skólagöngu að baki og í láglaunastörfum eru líklegri en aðrar til að lýsa lélegu heilsufari og vanlíð- an (3). Rannsókn á vinnu og vinnuaðstæðum sjúkraliða og kvenna í heimahjúkrun aldraðra í Svíþjóð leiddi í Læknablaðið 2004/90 217

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.